Fréttablaðið - 19.11.2010, Side 29

Fréttablaðið - 19.11.2010, Side 29
FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2010 Innlegg fyrir tásurnarLeggings fyrir börnin Skór á skvísuna Garn, margir litir 100gr. Garn, fyrir börnin 50gr.Strigaskór í skólann Tilefni þessarar greinar er for-síðufrétt Fréttablaðsins 8. nóv- ember. Inntak fréttarinnar er pist- ill Brynjars Níelssonar, formanns Lögmannafélags Íslands, sem birtist í síðasta hefti Lögmanna- blaðsins. Í fréttinni kemur fram að nauðsynlegt er að gerð verði úttekt á laganámi hér á landi og enn fremur að athuga þurfi hvort námið fullnægi eðlilegum kröfum sem gera eigi til slíks náms. Hér skal vakin athygli á því að á liðnum vetri fór fram umfangs- mikil úttekt á laganámi við Háskól- ann á Bifröst, Háskólann á Akur- eyri, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Úttektin var gerð af þriggja manna nefnd á vegum menntamála ráðuneytis ins en í nefndinni voru tveir erlendir sér- fræðingar og einn íslenskur. Niður- stöður úttektar innar eru væntan- legar innan skamms en þar verður að finna mikilvægar upplýsingar um stöðu laga deildanna í heild- rænu samhengi. Úttektin mun veita marktækan samanburð sem von- andi verður grunnur að gagnrýnni en um leið vandaðari umræðu um gæði laganáms á Íslandi. Úttekt- ir sem þessar veita nauðsynlegt aðhald sem laga deildirnar ættu að fagna. Einnig skal bent á að þegar hafa verið gerðar úttektir á laga- námi á Íslandi en nálgast má niður- stöður þeirra á vef menntamála- ráðuneytisins. Laganám hófst við Háskólann á Akureyri haustið 2003. Fyrstu meistaranemarnir útskrifuðust vorið 2008. Þrátt fyrir ungan aldur hefur deildin skapað sér mikils- verða sérstöðu. Í náminu er lögð áhersla á að halda valmöguleikum nemenda opnum jafnt innanlands sem erlendis bæði til framhalds- náms og atvinnu. Þannig miðar deildin ekki eingöngu að því að mennta tilvonandi lögmenn enda eru störf lögfræðimenntaðra fjöl- breyttari en svo. Ekki eru farnar ótroðnar slóðir í lagakennslu heldur er leið Háskólans á Akur- eyri í mörgu svipuð þeirri leið sem farin er við háskóla í Oxford og víðs vegar á Bretlandi og í Banda- ríkjunum. Í BA-náminu er áhersla lögð á gagnrýna hugsun og rök- fræði, mannréttindi, alþjóða- rétt, Evrópu rétt, siðfræði starfs- greina, samanburðar rétt og stjórnskipunar rétt auk kjarna- greina íslenskrar lögfræði. Námið er að hluta til kennt á ensku, sem er ómetanlegt veganesti fyrir nemendur hvort sem þeir hyggj- ast starfa innanlands eða utan. Alþjóðleg nálgun námsins gerir það að verkum að útskrifaðir BA- nemar eiga auðvelt með að sækja framhaldsnám erlendis í lögfræði eða tengdum greinum. Nemend- ur eru einnig hvattir til að fara í skiptinám erlendis á námstíman- um enda býr Háskólinn á Akureyri að sterku alþjóðlegu tengslaneti. Meistaranámið (ML) miðar svo að því að mennta nemendur í íslenskri lögfræði og búa þá undir lögmennsku og önnur störf sem krefjast ámóta menntunar. Áhersl- an er því öll á hagnýta íslenska lög- fræði. Grunnurinn úr BA-náminu gerir það að verkum að nemendur hafa öðlast nauðsyn legan og góðan skilning á lögum í víðara samhengi og eru því vel undir meistara námið búnir. Við lagadeild Háskólans á Akur- eyri er heimskautaréttur kenndur á meistarastigi og er það eina náms- braut sinnar tegundar í heiminum. Fjöldi þekktra fræðimanna og sér- fræðinga hafa komið og kennt við deildina enda hefur námið vakið alþjóðlega athygli. Heimskautarétt- ur er sérstaklega mikilvægur í ljósi stöðu Íslands á Norðurheimskauts- svæðinu og mikil þörf er fyrir sér- fræðiþekkingu á þessu sviði. Lagadeild Háskólans á Akur- eyri leggur mikla áherslu á að útskrifa nemendur sem þjálfaðir eru í að beita gagnrýnni hugsun og rökfræði til að leysa viðfangs- efni lögfræðinnar. Í 8. bindi, við- auka 1 í skýrslu Rannsóknar- nefndar Alþingis þar sem fjallað er um háskólasamfélagið er talið nauðsynlegt að efla siðfræði- lega menntun og áherslu á sam- félagsgagnrýni. Það má segja að þessi áhersla hafi verið kjarninn í kennsluaðferðum Lagadeildar Háskólans á Akureyri frá upp- hafi. Mættu fleiri taka sér það til fyrirmyndar. Ef fræðasamfélagið á að geta sinnt samfélags gagnrýni af alvöru er nauðsynlegt að fjöl- breytileg flóra náms fái þrifist á Íslandi. Laganám við HA Laganám Gunnþóra Elín Erlingsdóttir form. Þemis, félags laganema við HA AF NETINU Bernsk niðurskurðarumræða Þó að ég sé bæði mikill notandi bæði heilbrigðis- og menntakerfisins er ég ekki sannfærður um að allt fjármagn þar sé svo vel nýtt að betra sé að leggja niður Þjóðleikhúsið, Sinfoníuhljómsveitina og öll söfn á Íslandi en að hreyfa þar við nokkru. Ótti minn við sjúkdóma og dauða er ekki svo mikill að ég vilji lifa án listar. Og mér finnst ekki sjálfsagt að standa alltaf með Íslendingi gegn útlendingi. Sem betur fer trúi ég takmarkað á þá mynd sem fjölmiðlar draga upp af veruleikanum. Ég veit að á Íslandi eru fjölmargir sem vita af hverju núna er sparað í ríkisrekstrinum. Það er líka til fólk á Íslandi sem er ekki svo upptekið af eigin launum að það vill jafnvel að náunginn hafi starf líka. Og jafnvel held ég að til sé fólk á Íslandi sem veit að kreppan á Íslandi er ekki illum útlendingum að kenna. En í fjölmiðlum fer lítið fyrir slíku fólki. Þar snýst allt um bernska sérhagsmunagæslu. Smugan.is Ármann Jakobsson Vandmeðfarnar þjóðaratkvæðagreiðslur Þjóðaratkvæðagreiðslur eru því vandmeðfarnar og geta ef slælega er að málum staðið gert illt verra. Eigi að síður tel ég að þrátt fyrir þessa þekktu vankanta sé samt sem áður rétt að opan fyrir þjóðaratkvæðgareiðslur í ákveðnum vel skilgreindum tilvikum sem mikilvægt er að útfæra með skil- merkilegum hætti. Málskotsrétturinn er nú höndum forseta eins og Íslendingar fengu að kynnast í kosningunni um Icesave í upphafi árs. Hugsanlega mætti færa málskotséttinn til þjóðarinnar þannig að beiðni tiltekins hlutfalls kjósenda dugi til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mikilvæg mál. Þá mætti einnig hugsa sér að tiltekinn minnihluti þingmanna gætu einnig farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslur. Visir.is Eiríkur Bergmann Einarsson Lagadeild Háskól- ans á Akureyri leggur mikla áherslu á að útskrifa nemendur sem þjálfaðir eru í að beita gagnrýnni hugsun.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.