Fréttablaðið - 19.11.2010, Blaðsíða 63
FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2010 39
Leikarinn Michael Douglas ætlar
að taka sér eins árs frí frá kvik-
myndaleik og ferðast um heiminn
með fjölskyldunni sinni. Douglas
lauk nýverið meðferð vegna
krabbameins í hálsi og undirbýr
nú næstu skref í lífinu. „Þegar
við erum komin í gegnum þetta
erum við Catherine [Zeta Jones]
að spá í að taka eins árs frí fyrir
börnin í skólanum og ferðast
um heiminn. Það væri gaman að
heimsækja Nýja-Sjáland og eyða
tíma í Suður-Afríku,“ sagði hann.
„Framvegis ætla ég að eyða
öllum mínum tíma í mína nán-
ustu fjölskyldu.“
Vill ferðast
um heiminn
MICHAEL DOUGLAS Leikarinn ætlar í árs
frí með fjölskyldunni sinni.
Miley Cyrus hlýtur að hlakka
feikilega mikið til næstu viku.
Hún verður viðstödd The Amer-
ican Music Award á sunnudeg-
inum en á þriðjudeginum verður
hún svo átján ára. Miley segist
reyndar ekki ætla að bjóða í neitt
brjálað partí heldur kjósi hún
frekar að eyða deginum í félags-
skap náinna vina og fjölskyldu.
„Sem betur fer eru verðlaunin
þarna á sunnudeginum en ekki
þriðjudeginum því þá geta allir
vinir mínir verið með mér á
afmælisdeginum og við getum
glaðst saman yfir þessum tíma-
mótum,“ segir Miley.
Stór tímamót
hjá Miley litlu
ÁTJÁN Miley Cyrus verður átján ára á
þriðjudaginn og ætlar að halda upp
á þau tímamót með frægu vinunum
sínum.
Eva Longoria hélt því fram fullum fetum við blaða-
konu Extra, Mario Lopez, að eiginmaður hennar,
hinn franski Tony Parker, hefði haldið við eigin-
konu liðsfélaga hans í San Antonio Spurs. Eva
hefur nú sótt um skilnað frá Parker og óskar eftir
framfærslu frá NBA-leikmanninum.
Samband Parkers og Longoria hefur
hingað til verið talið nokkuð traust
en Lopez, sem er vinkona Longoria,
upplýsir að svo hafi ekki alltaf verið,
Parker hafi til að mynda haldið fram-
hjá eiginkonu sinni þegar þau voru
nýgift. „Longoria komst að því og þau
ákváðu að vinna út úr sínum vanda-
málum. Vandinn var sá að Parker hélt
áfram að halda sambandi við viðhaldið
á Facebook,“ segir Lopez. Dropinn sem
fyllti mælinn var skilaboð sem Longoria komst
yfir og innihéldu innileg orð milli Parker og
viðhaldsins.
Tony Parker er ekki fyrsti íþróttamað-
urinn sem kemst í fréttirnar fyrir lauslæti
og er saga hans átakanlega lík sögu Johns
Terry, fyrirliða enska knattspyrnuliðs-
ins Chelsea. Terry stakk undan liðs-
félaga sínum, Wayne Bridge, þegar
þeir voru báðir leikmenn Chelsea.
Parker er bandarískur Terry
Í VONDUM MÁLUM Körfuboltakappinn Tony
Parker gæti verið í vondum málum eftir að
eiginkona hans, Eva Longoria, upplýsti að
hann hefði haldið við eiginkonu liðsfélaga
síns hjá San Antonio Spurs.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Jerry Hall segist ekki sjá eftir því
að hafa gefið út bókina Jerry Hall:
My Life in Pictures sem skartar
myndum af henni og fyrrverandi
eiginmanni hennar, Mick Jagger, í
tilhugalífinu. Hall og Jagger voru
gift í níu ár og eignuðust saman
fjögur börn.
Hall segist hafa viljað gefa bókina
út til að leyfa börnunum sínum að
sjá að þau voru getin af ást. „Þegar
þú skilur sjá börnin ekki foreldra
sína saman en ég vildi leyfa þeim
að sjá að við áttum margar mjög
góðar stundir saman,“ sagði Hall
í samtali við breska spjall þáttinn
Loose Women.
Hall ver bókina sína
ÁST Jerry Hall vildi sýna börnunum
sínum að hún og Jagger hefðu eitt sinn
verið ástfangin.
NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR
ATH SÍÐASTA HELGIN
FRÁ 29. OKT. TIL 21. NÓV.
GÍFURLEGT ÚRVAL AF ÖLLUM TEGUNDUM
TÓNLISTAR, HLJÓÐBÓKA OG DVD MYNDA