Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 74

Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 74
50 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Í tæp ellefu ár hafa þau Daniel Radcliffe, Emma Wat- son og Rupert Grint verið í eigu umheimsins sem Harry Potter, Hermione Granger og Rupert Grint. Lokakafl- inn í þessari einstöku sögu verður opnaður í kvöld þegar Harry Potter og Dauðadjásn- in, fyrri myndin af tveimur, verður frumsýnd. Harry Potter-myndirnar verða átta þegar yfir lýkur. Þremenningarn- ir sem hafa borið uppi síðustu sex myndir hafa auðgast gríðarlega á sínum þætti og þar fremstur í flokki er Daniel Radcliffe sjálfur. Hann þarf ekki að hafa áhyggj- ur af því hvort hann muni eiga fyrir salti í grautinn næstu árin og áratugina. Samkvæmt lista sem Sunday Times birti í apríl á þessu ári er Radcliffe ríkari en prinsarn- ir tveir, þeir Harry og Vilhjálmur, persónuleg auðæfi hans eru metin á 42 milljónir punda eða rúmlega sjö milljarða íslenskra króna. Sem verður að teljast ágætis sjóður að grípa í fyrir 21 árs gamlan strák frá Hammersmith. Emma Watson þarf svo sem heldur ekki að kvíða framhaldinu, Harry Potter hefur aflað henni 20 milljóna punda. Hún hefur þar að auki verið vinsæl og henni er spáð miklum frama þegar Harry Potter er allur. Þriðja hjólið í þessu sambandi er Rupert Grint, sem þau Emma og Daniel hafa lýst sem afslappaðasta náunga í heimi. Sem er kannski ekkert skrýtið, fjölmiðlar hafa ætíð sýnt þeim Emmu og Daniel mest- an áhuga á meðan Rupert hefur getað notið þess að hugsa hvað hann ætti að gera við sínar 20 milljónir punda sem hann er metinn á samkvæmt Sunday Times. freyrgigja@frettabladid.is Strákurinn sem malar gull Flestir þekkja eflaust söguna ævintýralegu um hina atvinnulausu einstæðu móður J.K. Rowling, sem sagði börnunum sínum frá Harry Potter áður en þau fóru að sofa og skrifaði fyrstu söguna um hann á munnþurrkur á litlum veitingastað. Þetta Öskubuskuævintýri er ótrúlegt í ljósi þess að Joanne Katherine Rowling er nú einn ríkasti listamaður Bretlands, auðæfi hennar eru meiri en Sir Mick Jagger og Elton John eiga samanlagt og hún er ríkari en sjálfur bítillinn Sir Paul McCartney. Talan er 519 milljónir punda; 93 milljarðar. MILLJARÐADROTTNINGIN NORDICPHOTOS/GETTY EMMA TEKUR STÓRA STÖKKIÐ Emma Watson vakti mikla athygli þegar Harry Potter og Fönixreglan var frumsýnd árið 2007 og skapaði sér ákveðna sér- stöðu sem tískuhús heimsins voru fljót að taka eftir. STÓRSTJÖRNUR Emma, Daniel og Rupert voru árið 2009 orðin stórstjörnur og farin að venjast því að auga fjölmiðla fylgdist með hverju skrefi þeirra. Og svo virðist sem þau þrjú hafi höndlað frægðina ótrúlega vel. TÍSKUGOÐ OG KYNTÁKN Emma Watson er í dag orðin eitt heitasta tískutáknið í dag sem þeir Daniel Radcliffe og Rupert Grint hafa ekki roð við. Henni er spáð mestum frama þegar Potter er allur. BÖRN Harry Potter-gengið árið 2000 þegar tilkynnt var að þau hefðu hreppt aðalhlutverkið í Harry Potter og viskusteinin- um. Daniel er tólf ára, Rupert þrettán en Emma er yngst, ellefu ára gömul. BYRJUÐ AÐ ÞROSKAST Harry Potter-krakkarnir hafa verið stanslaust í kastljósinu síðan fyrsta myndin var sýnd; hér eru þau saman árið 2002 þegar Harry Potter og leyniklefinn var frumsýndur. AÐ VERÐA STÓR Árið 2004 voru þau Rupert, Emma og Daniel að verða stór og mættu prúðbúin til frumsýning- ar á kvikmyndinni Harry Potter og fanginn frá Azkaban. LÍTIL BREYTING Þau höfðu ekki breyst mikið á því ári sem liðið var frá síðustu mynd þegar þau mættu á Harry Potter og eldbikarinn. „Það er mikill heiður að fá þetta tækifæri. Þetta ýtir manni áfram í að gera fleiri myndir,“ segir María Þórdís Ólafsdóttir. Da ns -stut tmynd hennar, Between, hefur verið valin til þátt- töku á kvikmyndahátíðina Cine- dans í Amsterdam sem fer fram 9. til 12. desember. Hátíðin er ein sú stærsta í Evrópu sem sér hæfir sig í dansi. Þar með verða tvær íslenskar myndir á hátíðinni en Fréttablaðið greindi frá því fyrir skömmu að mynd Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur, Retro grade, hefði verið valin á hátíðina. „Hún fjallar um hvað það er þunn lína á milli draums og veru- leika og á milli sturlunar og þess að vera heill,“ segir hin 23 ára María Þórdís um myndina. „Við erum alltaf að reyna að halda jafnvægi á þessari línu en dettum stöðugt. Ég er að leika mér með þyngdarleysi og öll lögmál eru brotin.“ Between var hluti af skólaverk- efni Maríu í Listaháskólanum, þar sem hún er á þriðja ári á dans- braut. Einar Sverrir Tryggvason samdi tónlistina, Nína Cohagen sá um kvikmyndatöku og María dansaði ásamt Hilmi Jenssyni leikara. - fb Önnur dansmynd til Hollands MARÍA ÞÓRDÍS ÓLAFSDÓTTIR Dans- stuttmynd Maríu, Between, keppir í Amsterdam í desember. „Það er gríðarlegur áhugi á keppninni og allir miðar upp- seldir,“ segir Björg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samfés, en rappkeppnin Rímnaflæði verð- ur haldin í tólfta sinn í kvöld. Rímnaflæðið hefur fest sig í sessi hjá félagsmiðstöðvum víða um land um leið og það vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. „Í ár eru tíu lið skráð til keppni frá jafnmörgum félagsmiðstöðv- um, og eitt kemur alla leið frá Sauðárkróki,“ segir Björg. Hún segir reglurnar vera þær að allt þurfi að vera innan skynsamlegra marka. „Þau mega ekki rappa um eitthvað ósiðlegt og verða því að senda textana til okkar, áður en við samþykkjum atriðin,“ segir Björg. Athyglisvert er að í ár keppa þrjú stelpulið og því vert að spyrja sig hvort áhugi stelpn anna á rappi sé að aukast. „Það held ég alveg klárlega. Ég man allavega ekki eftir því að þrjú lið með ein- ungis stelpur innanborðs hafi áður tekið þátt,“ segir Björg. Kristmundur Axel Kristmunds- son, sem sigraði í söngkeppni framhaldsskólanna í vor og gaf nýverið út lagið „Það birtir allaf til“, hefur margoft tekið þátt í Rímnaflæðinu. Hann mun sjá um að kynna keppnina í ár, ásamt því að taka lagið í dómarahléinu. Keppnin fer fram í Miðbergi í kvöld og hefst klukkan 20.00. - ka Rímnaflæði í Miðbergi í kvöld LEYNAST HÆFILEIKAR Á RÍMNAFLÆÐ- INU? Hver veit nema það leynist annar Kristmundur Axel meðal keppenda í ár.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.