Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 79

Fréttablaðið - 19.11.2010, Page 79
FÖSTUDAGUR 19. nóvember 2010 Breska söngkonan Amy Wine- house ætlar að syngja á sínum fyrstu stóru tónleikum í rúm tvö ár í janúar á næsta ári. Hún ætlar samt ekki að stíga á svið í heimalandi sínu heldur á tón- listarhátíð í Brasilíu. „Amy var boðið að syngja í Brasilíu og hún hafði mikinn áhuga á því vegna þess að hún hefur aldrei komið þangað,“ sagði talsmaður hennar. Winehouse gefur út á næsta ári sína fyrstu plötu síðan Back to Black kom út árið 2006. Hún stefnir á heljarinnar tónleika- ferð til að fylgja henni eftir og þá verður væntanlega nóg af tón- leikum í Bretlandi fyrir hina fjöl- mörgu aðdáendur hennar þar. Tónleikar í Brasilíu AMY WINEHOUSE Breska söngkonan ætlar að syngja á sínum fyrstu alvöru tónleikum í rúm tvö ár. Jazmine Waltz, löguleg snót sem svaf hjá David Arquette skömmu eftir skilnað hans og Courteney Cox, segir leikarann hafa verið óspennandi í rúminu. Þetta kemur fram í viðtali við Waltz í banda- ríska lífsstílstímaritinu Style. David og Jazmine hittust á bar í Los Angeles þar sem Jazmine vann og þau áttu innilega stund á æsku- heimili hans. „Þetta var ekkert lélegt, þetta var heldur ekkert gott, þetta var bara stutt og sársauka- lítið, ákaflega óspennandi,“ segir Jazmine Arquette hafði áður tjáð sig um þessi nánu kynni og viðurkenndi meðal annars að þau hefðu látið honum líða karlmannlega. „Ég hafði ekki átt svona nána stund með neinni síðan að við Courten- ey skildum,“ sagði David og bætti því við að hann hefði grátið eftir að þeim lauk. „Ég áttaði mig á að allt milli mín og Courteney væri búið.“ Grét eftir samfarir BARÞJÓNN OPNAR SIG Jaz- mine Waltz, fyrirsæta og barþjónn, hefur tjáð sig um skyndikynni sem hún átti með leikaranum David Arquette. A L L S K O N A R Í S A M V I N N U V I Ð E N J O Y & 1 0 F I L M S K Y N N A G N A R R J Ó N G N A R R H E I Ð A K R I S T Í N H E L G A D Ó T T I R Ó T T A R P R O P P É E I N A R Ö R N B E N E D I K T S S O N Þ O R S T E I N N G U Ð M U D S S O N F R A M L E I Ð E N D U R S I G V A L D I J . K Á R A S O N & B J Ö R N Ó F E I G S S O N M E Ð F R A M L E I Ð A N D I R A F N R A F N S S O N H L J Ó Ð H Ö N N U N N I C O L A S L I E B I N G H L J Ó Ð U P P T A K A B O G I R E Y N I S S O N K V I K M Y N D A T A K A B J Ö R N Ó F E I G S S O N K L I P P I N G S I G V A L D I J . K Á R A S O N L E I K S T J Ó R I G A U K U R Ú L F A R S S O N F Y R S T A M Y N D I N Í Andri Capone/Rás 2 Pressan Fréttablaðið „Heldur athygli manns frá upphafi til enda” Morgunblaðið „Helvíti hressandi” Erpur Eyvindarsson Nú í bíó

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.