Fréttablaðið - 19.11.2010, Síða 80

Fréttablaðið - 19.11.2010, Síða 80
 19. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR56 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Kolbeinn Sig- þórsson hefur byrj- að vel með íslenska karlalandsliðinu í fót- bolta og er nú kominn í fámennan hóp með þeim Ríkharði Jónssyni og Tryggva Guðmunds- syni. Fréttablaðið skoð- aði byrjun þeirra tólf leik- manna sem hafa náð því að skora tíu mörk eða fleiri fyrir íslenska A-landsliðið. Aðeins fyrrnefndir tveir leik- menn náðu því að skora meira en eitt mark í fyrstu fimm landsleikj- um sínum. Ríkharður Jónsson átti marka- met íslenska karlalandsliðsins í 56 ár eða frá 1951 til 2007, og hann náði þeim frábæra árangri að skora 7 mörk í fyrstu fimm leikj- um sínum með A-landsliðinu. Þar á meðal er ferna hans í 4-3 sigri á Svíum í hans fjórða landsleik og tvenna í 2-0 sigri á Finnum 1948 en það var fyrsti sigurleikur íslenska karlalandsliðsins frá upphafi. Tryggvi Guðmundsson skoraði þrjú mörk í fyrstu fimm landsleikj- um sínum sumarið 1997 en það sumar jafnaði hann einnig marka- metið í efstu deild karla með því að skora 19 mörk í 18 leikjum með ÍBV-liðinu. Tryggvi skoraði ekki fjórða landsmarkið sitt fyrr en fjórum árum og 16 leikjum seinna en það er vonandi að Kolbeinn þurfi ekki að bíða svo lengi eftir fjórða A-landsliðsmarki sínu. Feðgarnir Arnór Guðjohnsen og Eiður Smári Guðjohnsen eru báðir meðal fjögurra markahæstu leik- manna A-landsliðsins en þeir voru báðir rólegir í fyrstu landsleikjum sínum. Arnór skoraði ekki fyrr en í sínum níunda landsleik og Eiður Smári skoraði „bara“ eitt mark í fyrstu tíu landsleikjum sínum. Þriðja A-landsliðsmark Arnórs kom eftir 22 leiki og átta ár með landsliðinu en sonurinn skoraði sitt þriðja landsliðsmark í sínum tólfta A-landsleik. Ríkharður skoraði sitt þriðja landsliðsmark eftir 302 mínútur sem þýðir að Kolbeinn var á undan honum því þessi tvítugi leikmað- ur AZ Alkmaar var aðeins búinn að spila í 289 mínútur í A-landslið- streyjunni þegar hann skoraði sitt þriðja landsliðsmark í Tel Aviv í fyrrakvöld. Tryggvi Guðmundsson gerði reyndar betur en þeir báðir því þriðja landsliðsmark hans kom eftir 172 mínútna leik með A-lands- liðinu. Kolbeinn lék sinn fyrsta lands- leik í Kórnum í mars síðastliðn- um og Ólafur Jóhannesson henti honum strax í byrjunarliðið. Kol- beinn skoraði eftir 37 mínútur þegar hann kom íslenska liðnu í 2-0. Hann fékk þá fína fyrirgjöf frá Steinþóri Frey Þorsteinssyni frá hægri og skoraði af stuttu færi. Kolbeinn var einnig í byrj- unarliðinu í næsta leik á móti Mexíkó, hann náði ekki að skora en lék allan tímann í markalausu jafntefli. Kolbeinn var á bekknum í þriðja landsleiknum sínum sem var jafn- framt sá fyrsti sem hann spilaði á Laugardalsvellinum. Kolbeinn kom inn á í stöðunni 2-0 þegar 18 mínútur voru eftir af leiknum og innsiglaði 4-0 sigur íslenska liðs- ins með marki á 89. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Eggerti Gunnþóri Jónssyni. Kolbeinn náði því líka að skora í fyrsta leiknum sínum á þjóðarleikvanginum alveg eins og í fyrsta A-landsleik sínum 70 dögum áður. Kolbeinn var aftur á bekknum í fjórða landsleiknum sínum en kom sterkur inn af bekknum í 0-1 tapi á móti Dönum á Parken. Kolbeinn lék í þrettán mínútur en minnti vel á sig á þessum kafla. Ólafur Jóhannesson setti Kol- bein aftur í byrjunarliðið sitt í Ísrael í fyrrakvöld og Kolbeinn skoraði þar sitt þriðja landsliðs- mark eftir að hafa fengið óeig- ingjarna sendingu frá Steinþóri Frey Þorsteinssyni sem er þar með búinn að leggja upp tvö af þremur mörkum hans fyrir A- landsliðið. Heiðar Helguson var marka- hæsti landsliðsmaður Íslands á árinu með fjögur mörk og hefur verið á undan Kolbeini í goggunar- röðinni. Kolbeinn hefur hins vegar nýtt tækifærin sín vel í fjarveru Heiðars og ætti að vera orðinn fyrsti maður í framlínu íslenska landsliðsins áður en langt um líður. ooj@frettabladid.is HEIÐAR HELGUSON er byrjaður að æfa með liði sínu, QPR, á nýjan leik eftir að hafa verið frá vegna meiðsla á öxl í fjórar vikur. Þó er óvíst hvort hann geti spilað með liðinu gegn Preston í ensku B-deildinni um helgina. Heiðar missti af landsleiknum gegn Ísrael vegna meiðslanna. HANDBOLTI Einar Hólmgeirsson stórskytta er aftur kominn á ferð- ina með félagi sínu Ahlen Hamm. Hann mun spila sinn fyrsta leik með félaginu í háa herrans tíð um helgina þegar það mætir Aroni Kristjánssyni og lærisveinum hans í Hannover Burgdorf. Einar þurfti að fara í aðgerð á hné í upphafi vetrar en hann hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli í gegnum tíðina. „Ég er ekki alveg kominn á fulla ferð en ætla að reyna að hjálpa til um helgina. Mér líður samt ágæt- lega. Ég er með verki þegar ég hoppa en það er kannski eðlilegt. Það getur vel farið svo að ég losni aldrei við þessa verki og verð því að læra að lifa með þeim,“ segir Einar. Félagi hans veitir ekki af aðstoð hans um helgina enda er liðið aðeins með eitt stig og situr eitt og yfirgefið í neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. „Ég ætla að reyna að vera skyn- samur en það er ekki alltaf minn stíll. Ég vil helst keyra í hlutina á fullu gasi. Þetta er búinn að vera erfiður tími utan vallar og sér- staklega þar sem liðið hefur þurft á mér að halda. Það hafa fleiri leikmenn líka meiðst en við erum að koma til baka,“ sagði Einar en þrír leikmenn liðsins fóru í aðgerð í upphafi tímabilsins. Einar hefur fundið sér ýmislegt til dundurs í meiðslunum og hann tók þátt í að setja afar sérstakt heimsmet í gær. „Það var verið að auglýsa gufu- baðsgarð sem er hérna í bænum. Ákveðið var að setja heimsmet með því að að koma einstaklingum af sem flestum þjóðernum í einn gufubaðsklefa. Það fóru rúmlega 100 manns í klefann en við vorum frá um 90 þjóðum. Þetta var alveg grillað en samt stórskemmtilegt,“ segir Einar hlæjandi en fóru menn naktir í gufuna eins og tíðkast í Þýskalandi? „Nei, reyndar var það ekki gert í þetta skiptið. Þetta var samt ótrú- lega fyndið. Við vorum þarna inni í um fimm mínútur. Það var ekk- ert mál fyrir flesta en gaurinn frá Nepal hefði ekki haft það af að vera mikið lengur þarna. Hann var ekki alveg vanur þessum hita þarna inni. Ég hafði gaman af þessu enda orðinn heimsmethafi. Það er ekki ónýtt að setja heims- met fyrir hádegi,“ segir Einar létt- ur. - hbg Einar Hólmgeirsson kominn á lappir og spilar um helgina – drepur tímann með því að setja heimsmet: Ekki ónýtt að setja heimsmet fyrir hádegi AFTUR Á VÖLLINN Einar Hólmgeirsson mun loksins spila handbolta á nýjan leik um helgina. NORDIC PHOTOS/BONGARTS Ríkharður sá eini sem byrjaði betur Aðeins einn af tólf markahæstu landsliðsmönnum Íslands hefur skorað fleiri mörk í fyrstu fimm lands- leikjum sínum en Kolbeinn Sigþórsson. Kolbeinn skoraði sitt þriðja landsliðsmark á móti Ísrael. RÍKHARÐUR JÓNSSON Skoraði 17 mörk í 33 landsleikjum á árunum 1947 til 1965. KOLBEINN SIGÞÓRSSON Hefur þegar skorað 3 mörk í fyrstu 5 landsleikjum sínum. Hann skoraði fleiri mörk með A-landsliðinu en 21 árs liðinu á árinu. MYND/AFP Fyrstu landsleikir Kolbeins Ísland-Færeyjar 2-0 84 mínútur, 1 mark Mexíkó-Ísland 0-0 90 mínútur Ísland-Andorra 4-0 18 mínútur, 1 mark Danmörk-Ísland 1-0 13 mínútur Ísrael-Ísland 3-2 90 mínútur, 1 mark Samantekt: Leikir: 5 Leikir í byrjunarliði: 3 Mínútur: 295 Mörk: 3 Fyrstu landsleikir Ríkharðs Ísland-Noregur 2-4 90 mínútur Ísland-Finnland 2-0 90 mínútur, 2 mörk Danmörk-Ísland 5-1 90 mínútur Ísland-Svíþjóð 4-3 90 mínútur, 4 mörk Noregur-Ísland 3-1 90 mínútur, 1 mark Samantekt: Leikir: 5 Leikir í byrjunarliði: 5 Mínútur: 450 Mörk: 7 Fyrstu landsleikir Tryggva Ísland-Færeyjar 1-0 45 mínútur, 1 mark Liechtenstein-Ísland 0-4 38 mínútur, 1 mark Ísland-Írland 2-4 21 mínúta Rúmenía-Ísland 4-0 9 mínútur Ísland-Liechtenstein 4-0 90 mínútur, 1 mark Samantekt: Leikir: 5 Leikir í byrjunarliði: 1 Mínútur: 203 Mörk: 3 Mörk í fyrstu fimm A- landsleikjunum sínum hjá þeim sem hafa skorað 10 A- landsliðsmörk eða fleiri Ríkharður Jónsson (17 mörk samt.) 7 mörk Kolbeinn Sigþórsson (3) 3 mörk Tryggvi Guðmundsson (12) 3 mörk Eiður Smári Guðjohnsen (24) 1 mark Pétur Pétursson (11) 1 mark Þórður Guðjónsson (13) 1 mark Ríkharður Daðason (14) 1 mark Helgi Sigurðsson (10) 1 mark Eyjólfur Sverrisson (10) 1 mark Matthías Hallgrímsson (11) 1 mark Arnór Guðjohnsen (14) 0 mörk Heiðar Helguson (12) 0 mörk N1-deild karla Afturelding - Valur 22-23 (7-12) Mörk Aftureldingar (skot): Bjarni Aron Þórðar- son 7 (14), Haukur Sörli Sigurvinsson 6 (10), Jón Andri Helgason 4 (7), Daníel Jónsson 2 (7), Arnar Freyr Theodórsson 2 (6/1), Aron Gylfason 1 (2). Varin skot: Hafþór Einarsson 18 (41/3) 44%. Hraðaupphlaup: 4 (Haukur 2, Jón, Bjarni). Fiskuð víti: 1 (Bjarni). Utan vallar: 14 mínútur. Mörk Vals (skot): Sturla Ásgeirsson 5 (6), Valdimar Fannar Þórsson 5/2 (9/2), Ernir Hrafn Arnarson 4 (13/1), Alexandr Jedic 3 (6), Jón Björgvin Pétursson 2 (4), Fannar Þorbjörnsson 2 (3), Anton Rúnarsson 2 (4), Heiðar Þór Aðal- steinsson 1 (2). Varin skot: Ingvar Guðmundsson 13 (35/1) 42%. Hraðaupphlaup: 5 (Sturla 3, Fannar, Anton). Fiskuð víti: 3 (Sturla, Jón, Ernir). Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Magnús Jóns- son, ágætir. STAÐAN Akureyri 6 6 0 0 183-148 12 HK 7 6 0 1 242-232 12 Fram 7 5 0 2 236-202 10 FH 6 4 0 2 188-168 8 Haukar 7 3 0 4 183-193 6 Afturelding 7 1 0 6 179-203 2 Selfoss 7 1 0 6 196-224 2 Valur 7 1 0 6 173-210 2 Iceland Express deild karla Hamar - KFÍ 83-69 (52-39) Stig Hamars: Andre Dabney 21, Nerijus Taraskus 12, Darri Hilmarsson 12 (9 fráköst, 5 stoðsending- ar), Ragnar Nathanaelsson 10 (10 fráköst), Svavar Páll Pálsson 9 (9 fráköst), Ellert Arnarson 9, Kjartan Kárason 6, Snorri Þorvaldsson 4. Stig KFÍ: Craig Schoen 18, Darco Milosevic 12, Nebojsa Knezevic 12 (10 fráköst), Hugh Barnett 10, Daði Berg Grétarsson 7, Carl Josey 5, Pance Ilievski 3, Ari Gylfason 2. STAÐA EFSTU LIÐA Snæfell 7 6 1 684-642 12 Grindavík 7 6 1 642-559 10 KR 7 5 2 702-599 10 Hamar 7 4 3 590-574 8 Stjarnan 7 4 3 610-594 8 Keflavík 7 4 3 623-610 8 Fjölnir 7 3 4 624-619 6 Haukar 7 3 4 601-634 6 Sænska úrvalsdeildin HK Aranäs - Drott Halmstad 22-27 Gunnar Steinn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Drott Halmstad. ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Hamar komst í gær upp í fjórða sæti Iceland Express deildar karla eftir sigur á KFÍ í frestuðum leik, 83-69. Hamars- menn byrjuðu vel í leiknum og voru þrettán stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 30-17. Þeir létu forystuna aldrei af hendi eftir þetta. Hamar er nú með átta stig eins og Stjarnan og Keflavík og er í fimmta sæti deildarinnar. Andre Dabney var atkvæðamestur hjá liðinu í gær með 21 stig en Darri Hilmarsson var einnig drjúgur með tólf stig, níu fráköst og fimm stoðsendingar. Lítið virðist ganga hjá KFÍ þessa dagana en þetta var fjórða tap liðsins í röð í deildinni þar sem Ísfirðingar eru í níunda sæti. - esá Iceland Express deild karla: Hamar upp í fjórða sætið ÖFLUGUR Andre Dabney var stigahæstur hjá Hamri í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.