19. júní


19. júní - 19.06.1980, Síða 14

19. júní - 19.06.1980, Síða 14
Hetjur eða hvunndagsfólk? Konur hafa löngum verið at- kvæðalitlar á vettvangi þjóðmála- baráttunnar. Um þessar mundir sitja aðeins þrjár konur á Alþingi, og hafa ekki orðið fleiri, nema þær sætu sem varamenn. I sveitar- stjórnarmálum hafa konur látið nokkru meira að sér kveða og sitja nú þrjár í borgarstjórn Reykjavík- ur og nokkrar konur til viðbótar BESSl JÓHANNSDÓTTIR: Dúkkulísumyndin er að hverfa 1. — Afskipti mín af stjórnmál- um hófust í Háskóla íslands. Árið 1972 var ég kosin fulltrúi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta í 12 starfa að ýmsum þáttum borgar- mála. í bæjarstjórnum og hrepps- nefndum víða um land hafa konur haslað sér aukinn völl að undan- förnu, en hafa gjarnan helgað sér ákveðna málaflokka öðrum frem- ur. Hafa konur ef til vill önnur áhugasvið en karlmenn, aðrar að- stæður og hafa þær ekki fengið nægilega hvatningu frá samfélag- Stúdentaráð. Auk þess var ég for- maður félags stúdenta i heim- spekideild eitt ár og sat sem fulltrúi stúdenta á deildarfundum í tvö ár. Það var hins vegar tilviljun að ég tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins til vals á frambjóðendum flokksins við komandi borgar- stjórnarkosningar 1974. Það kom mér mikið á óvart hversu góða út- komu ég fékk í prófkjörinu þar sem ekkert var skipulega unnið í „bar- áttunni“. Þetta gladdi mig þó mjög mikið, enda hafði ég fullan áhuga á að taka þátt í stjórnmál- um. 2. — I upphafi hugleiddi ég það aldrei hvort kynferði mitt yrði til þess að hindra mig eða greiða fyrir mér. Ástæðan fyrir því er e.t.v. fyrst og fremst sú að í uppeldi mínu var ég tekin sem einstaklingur en ekki sem eingöngu „kynvera“. 3. — Ég hef unnið að mjög mörgum málaflokkum enda hefur það verið með vilja gert. Innsýn í ákveðin mál fæst ekki nema með snertingu við þau. Ef litið er eftir einhverju megineinkenni má segja að jDeir málaflokkar sem snerta inu? Hvað varð til þess að þær konur, sem eru virkar í stjórnmál- um um þessar mundir, gáfu kost á sér? Til þess að leita svara við þessu lögðum við eftirfarandi spurningar fyrir nokkrar konur, sem verið hafa á Alþingi eða tekið þátt í sveitar- stjórnarmálum: uppeldis- og félagsmál séu mér hugleiknastir, enda snerta þeir beint menntun mína. 4. — Að vissu marki ef leitað er skýringa á vali mínu á menntun minni sem seinna endurvarpast á val á málaflokkum. 5. —Viðhorf hafa breyst mjög mikið á síðustu árum. Konur verða í æ ríkari mæli að sýna að þær hafi eitthvað til brunns að bera, ,,dúkkulisumyndin“ er að hverfa. 6. — Aðeins markviss vinna og áhugi fyrir stjórnmálaþátttöku getur breytt núverandi ástandi. Konur þurfa að taka upp þær bar- áttuaðferðir sem notaðar hafa verið í þúsundir ára. Það gerist ekkert ef einstaklingurinn lokar sig inni i fílabeinsturni eins og konur hafa um of gert. I dag eru karl- menn á margan hátt meiri stuðn- ingsmenn kvenna en kynsystur þeirra, það er eins og þeir vilji fremur meta konur sem einstakl- inga og viðurkenna þátttöku þeirra sem jafningja. Konur loka sig um of inni í einhvers konar „kvenna- komplexum“.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.