19. júní


19. júní - 19.06.1980, Síða 29

19. júní - 19.06.1980, Síða 29
Fremur leitað til starfsbræðranna 30 ára kerfisfræðingur (kvk) Sagði að tiltölulega fáar konur störfuðu sem kerfisfræðingar, og hún væri sú eina á sínum vinnu- stað. Konum færi hins vegar hægt fjölgandi í þessari starfsgrein, en þegar hún lauk námi fyrir 10 árum heyrði það til hreinna undantekn- inga, að konur færu í kerfisfræði. Hún kvaðst starfa með 3 kerfis- fræðingum og væru þau öll jafnsett launalega. Það væri hins vegar til- hneiging í fyrirtækinu, sem þau starfa við, til að láta líta út sem einhver hinna þriggja væri yfir- maður hennar. Samstarfsmenn hennar kæmu alveg fram við hana sem jafningja, en yfirmenn fyrir- tækisins kæmu gjarnan fyrirmæl- um til þeirra og ætluðust til, að þeir skýrðu þau síðan út fyrir henni. Hún kvaðst hafa starfað hjá bönkum og tryggingarfélögum og þar virtist ætla að ríkja enn um sinn ákaflega hefðbundin verka- skipting og viðhorf yfirmanna væru, að henni bæri að viðhalda. Sjálf kvaðst hún ekki finna svo mjög fyrir þessu, þar sem kerfis- fræðingar ynnu ákaflega sjálfstætt að sínum afmörkuðu verkefnum. Sagði hún að þessar viðteknu skoðanir hefðu þó sannfært sig um það, að hún myndi aldrei kæra sig um að fást við stjórnun, því hún væri sannfærð um það, að karl- menn yrðu aldrei settir til að vinna undir hennar stjórn. Erfiðara að fá konur hækkaðar Forstjóri opinb. stofnunar (kk) Kvaðst hafa reynslu af því að mikil tregða væri á að hækka kon- ur í launum, sem ynnu hjá því opinbera. Samninganefnd ríkis- starfsmanna, sem að mestu væri skipuð körlum, og fulltrúar fjár- málaráðuneytisins, virtust mjög tregir til að heimila launahækkun í þeim störfum, sem konur væru einar um. Það væri orðið nokkuð algengt, að konur ynnu ábyrgðar- mikil störf hjá hinu opinbera án þess að fá laun i samræmi við þá ábyrgð, sem þær bæru. Hann kvaðst álíta að mál liðkuðust öll, ef karlmenn færu að vinna störfin, sem konur gengdu nú. Þá væri byrjað á því að hækka laun fyrir viðkomandi starf. Sjálfur kvaðst forstjórinn verða að játa, að konur ættu mun auðveldara með að vinna sig upp, eins og það væri kallað, Lnnan sömu stofnunar. Hann kvaðst til dæmis verða að játa, að ef kona og karl, með sömu menntun, sæktu um ábyrgðarmik- ið starf í sinni stofnun hefði hann tilhneigingu til að ráða karlinn fremur. Þetta gerði hann, ef að konan kæmi frá öðru fyrirtæki. Ef hann hins vegar þekkti til vinnu- bragða konunnar úr sinni stofnun, teldi hann hana eiga góða mögu- leika á að fá stöðuhækkun. Er hann var inntur eftir skýringu á þessari afstöðu, sagði hann að sér þætti álitlegra að ráða karlmann, ef hann vissi lítið um kvenmanninn. Konur á barneignaraldri gætu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.