19. júní - 19.06.1980, Qupperneq 38
JpML
irliftí
Fríða Proppé.
Texti og
myndir.
Börnin voru greinilega
upp með sér að fá Erling
til að segja þeim til í
málaralistinni. Ljósm.
Fríða Proppé.
„Vantar svo til algjörlega
kar 1 m ann s í m y n cl in a‘ ‘
— rætt við tvo karlmenn, sem starfað hafa við dagvistarheimili
í janúarmánuði sl. fékk ungur
maður launaseðil sinn, þannig
merktan: „Erling Ellingsen starfs-
stúlka, kr. . . .“ Mistök? — Erling
leitaði réttar síns til Jafnréttisráðs,
sökum þessarar kvenkenningar og
svörin voru þau, að það hefðu nú
borist alvarlegri kvartanir, og
starfsstúlka hét hann áfram.
— Til að útskýra málið þá vann
Erling sem starfsmaður (Starfs-
mannafélaginu Sókn) við leik-
skólann Fellaborg í Breiðholti í
nokkra mánuði, þ. e. frá des. sl. til
páska. 19. júní bað Erling að segja
frá reynslu sinni á þessum starfs-
vettvangi, sem hingað til hefur
verið talinn vettvangur kvenna. A.
m. k. hefur það ekki verið alvana-
legt, að foreldrar hitti fyrir karl-
kynsstarfsmenn, er þeir koma með
börn sín og sækja, á leikskóla og
önnur dagvistarheimili.
„Það var þá helst að eldri börnin
segðu: „Hvern ert þú að sækja?“
eða þegar þau höfðu kynnst mér og
ég fékk mér sæti: „Af hverju mátt
þú setjast i konustólinn?“
Við erum stödd i Fellaborg.
Forstöðukonan, Sjöfn Ólafsdóttir,
býður upp á kaffi og segir í þessu
tilefni: „Þetta með konustólana er
gott dæmi um komu Erlings hing-
að. Við höfum hér, eins og á öðrum
barnaheimilum, sérstök húsgögn
fyrir börnin og önnur fyrir okkur
starfsfólkið. Hér höfðu aðeins verið
kvenkynsstarfsmenn fram að því
að Erling kom og fullorðinsstól-
arnir fengið nafnið „konustólar“.
Nú heita þeir „starfsmannastólar“,
— erfiðara að bera fram fyrir ungt
barn, — en eðlilegra.“
„Hvað kunningjarnir sögðu?
Þeir hlógu allir,“ sagði Erling,
„fyrst í stað a. m. k. og ímynduðu
sér, að ég væri alla daga að skipta
um bleyjur. Þeir sættust þó á þetta,
eins og hverja aðra staðreynd —
hvað annað?“
— Hvernig kunnir þú við
starfið?
„Þrælvel, ég var hér reyndar að-
eins stuttan tíma dag hvern og sem
þriðji maður á deild. Það var ekki
erfitt. Foreldrarnir voru eiginlega
lengur að ná þessu en börnin —
voru ekki alveg klár á þessu.“
I þessum svifum vatt sér inn á
völlinn Sigmar Karlsson sálfræð-
ingur, en hann hefur eftirlit með
36