19. júní - 19.06.1980, Side 51
Guðrún
Egilson.
Konur í
ábyrgðarstöðum
eru mjög
undir smásjá
— rætt við Guðnýju
Guðmundsdóttur konsertmeistara
„Yfirleitt alls staðar erlendis eru
konsertmeistarar karlmenn, og út-
lendum hljómsveitarstjórum og
einleikurum, sem hingað koma,
virðist oft koma á óvart, að ég skuli
vera konsertmeistari. Eitt sinn kom
það fyrir, að gestahljómsveitar-
stjóri taldi mig vera óþarflega af-
skiptasaman einkaritara. Á einum
tónleikum tók svo einleikari í
höndina á fremsta manninum í
annarri fiðlu í stað þess að heilsa
mér, eins og venja er. Það fyndn-
asta var, að þessi einleikari var
kona,“ segir Guðný Guðmunds-
dóttir konsertmeistari í viðtali við
19. júní.
Það var með herkjum að blaða-
manni tókst að króa hana af eina
klukkustund á milli tónleikahalds
og inntökuprófa við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík. Meðan við spjöll-
uðum saman hringdi síminn í sí-
fellu og Guðný þurfti að sinna fyr-
irgreiðslu við nemendur sína,
skrifstofu hljómsveitarinnar og
jafnvel fjölmiðla. Framundan voru
svo miklar annir vegna Listahátíð-
ar i Reykjavík.
„Það er stundum eins og maður
sé að tefla á tæpasta vað,“ segir
Guðný brosandi. „Undanfarnir
mánuðir hafa verið mjög erfiðir,
því að auk starfa minna með
hljómsveitinni og kennslunnar hef
ég leikið einleik og farið í tónleika-
ferðir með Philip Jenkins út um
landið. Við höfum mikið spilað
saman „dúó“ og einnig tríó ásamt
Hafliöa Hallgrímssyni, og að ári
hefur okkur verið boðið í tónleika-
ferð til Svíþjóðar. Framundan hjá
mér eru líka þrjár aðrar tónleika-
ferðir til útlanda, ein til Norður-
landa, ein til Israels og ein til
Bretlands.“
— Hvernig gengur íslenzku
tónlistarfólki að koma sér á fram-
færi erlendis?
„Það gengur upp og ofan. Hér er
til dæmis enginn umboðsaðili fyrir
tónlistarfólk. Kannski þykir fólki
ekki taka því að hafa umboðsskrif-
stofu fyrir þessar fáu hræður hér,
sem eru gjaldgengar á erlendum
markaði, svo að við verðum að
standa í þessu sjálf. Það er svo sem
ekkert skemmtilegt að skrifa bréf
til útlanda og mæla með sjálfum
sér og vita nokkurn veginn fyrir
49