19. júní


19. júní - 19.06.1980, Page 63

19. júní - 19.06.1980, Page 63
stunda vinnu fram að fæðingu. Með frumvarpinu er brotið blað í viðurkenningu á hinum sjálf- sagða rétti föður og barns til að mynda tilfinningatengsl og vera samvistum á fyrsta æviskeiði barnsins. Þetta mætti þó koma skýrar fram. Stjórn KRFÍ leggur því til að orðalag 4. ml. 1. mgr. 1 gr. verði á þessa leið: Mæður taki að jafnaði orlof fyrsta mánuðinn, en því sem eftir er af orlofstímanum er foreldrum heimilt að skipta með sér að ósk beggja. Stjórnin álítur, að foreldri í launuðu starfi eigi að halda fullum launum i fæðingarorlofi, en ekki aðeins dagvinnulaunum, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. I frumvarpinu er lagt til, að ein- stakir vinnuveitendur standi að Gerður Framh. af bls. 13. félags- og menningarmálum auk jafnréttismálanna, sem í raun snerta alla þætti þjóðfélagsins. Kjörtímabilið 1970—74 átti ég sæti í barnaverndarnefnd Reykja- víkur og æskulýðsráði, 1974—78 í félagsmálaráði og stjórn borgar- bókasafns og er áfram í þessum nefndum og formaður félagsmála- ráðs frá 1978. Þá hef ég átt sæti í skólastjórn Samvinnuskólans frá 1977. Ég átti sæti í framkvæmda- nefnd, sem beitti sér fyrir sjálfs- ákvörðunarrétti kvenna í sam- bandi við fóstureyðingar og fram- kvæmdanefnd kvennafrís 1975. Einnig er ég í stjórn KRFÍ frá 1976. Þá hef ég átt sæti í nokkrum stofnunum Framsóknarflokksins. 4. — Vafalaust, þar sem kynferði niitt hefur mótað allt lifsviðhorf rnitt og sett mark sitt á hugsanir niínar og gerðir. Eg hef gegnt kvenhlutverkinu, en með nokkrum mótþróa stundum. ó. — Það hafa vonandi orðið einhverjar hugarfarsbreytingar til stjórnmálaþátttöku kvenna þótt ekki séu þær áþreifanlegar. Hlut- mestu leyti straum af greiðslum launa til starfsmanna sinna í fæðingarorlofi. Þetta álítur stjórn KRFÍ neikvæðasta atriði frum- varpsins, og leggur eindregið til, að fæðingardagpeningar og laun í fæðingarorlofi verði i öllum til- vikum greidd af lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkisins. Eigi einstakir vinnuveitendur að inna af hendi fæðingarorlofsgreiðslur til sinna starfsmanna, þó að tak- mörkuðu leyti sé, er veruleg hætta á, að það skerði atvinnumöguleika og launakjör foreldra ungra barna (sérstaklega mæðra) og komi mjög misþungt niður á einstökum vinnuveitendum. Fæðing nýrra einstaklinga er samfélagslegt hagsmunamál, en ekki einkamál foreldra og vinnu- fall kvenna er t.d. það sama nú og árið 1970 bæði á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur. Stað- reyndin er sú, að aðstæður kvenna til slíkrar þátttöku hafa lítið batn- að og þar stendur hnífurinn í kúnni. Þá er spurningin hve miklu konur eiga að fórna við núverandi aðstæður fyrir þátttöku í stjórn- málum, sem óvíst er að beri sýni- legan árangur; þá á ég við að eyða tíma í að dúlla með, án þess að hafa veruleg áhrif. Eg heyrði mætan stjórnmálamann hafa það á orði, að gott væri að hafa eina konu í nefnd en tvær væru of mikið 6. — Eg hygg, að það þurfi mikla breytingu á þjóðfélaginu og starf- semi stjórnmálaflokka ef stórauka á þátttöku kvenna. Það nægir ekki að breyta hlutverki kvenna, hlut- verk karlmanna þarf einnig að breytast. Báðir aðilar verða að deila með sér störfum inn á við og út á við. Þá fyrst kemst á jafnrétti, þegar störf eiginkonunnar eru talin jafn mikilvæg og merkileg og störf eiginmannsins. Stjórnmálaflokk- arnir og ríkisvaldið þurfa að móta samræmda fjölskyldupólitík, sem tekur mið af breyttum aðstæðum og viðhorfum. veitenda þeirra. Því ber að afla fjár til greiðslu launa í fæðingarorlofi í samræmi við það. Sé atvinnu- rekstrinum í landinu ætlað að standa undir þessum greiðslum að hluta, telur stjórn KRFl, að þeim skuli skilyrðislaust jafnað á alla launagreiðendur. Að lokum skal það tekið fram, að stjórnin fagnar því, að frumvarp um fæðingarorlof hefur verið lagt fram, og vonar að málið fái skjóta og góða afgreiðslu á Alþingi með þeim athugasemdum sem hér hafa verið gerðar.“ Ábending um ítarefni: Norðurlandaráð NU-B 1979:10, skýrsla um „barselsorlov — forældre og borns behov i perioden omkring graviditet, fod- sel og barnets forste leveár, specielt med henblik pá barselsorlov.“ Höf. Vibeke Gotzsche, Lene Lier og Hanne Munck. Afbrotið nauðgun Framh. af bls. 59. nauðgunarmáli þar sem fórnar- lambi brotsins voru dæmdar 25 þúsund danskar krónur í miska- bætur vegna afleiðinga þess. Reyndar er það misjafnt hvort bótakröfur fyrir andlegt tjón komi yfirleitt fram í slíkum málum hér á landi og misjafnt er hversu háar þær eru dæmdar. Um þennan þátt mála er nokkuð fjallað í ritgerðinni og einnig hvaða tjóni afbrotið veldur og um kærulíkur á þessum brotum hér á landi. Þessi ritgerð er auðvitað ekki tæmandi skrif um þetta efni, en ég tel að óeðlilega lítið hafi um afbrotið verið skrifað og að margt mætti betur fara, hvað það varðar í réttarkerfinu. Þegar ein fyrsta konan sem lagði stund á lögfræði við Háskóla íslands var ásamt skólafélögum sínum komin á þann stað i námsefninu í refsi- rétti að fjalla átti um þetta brot, var hlaupið yfir það af hreinni kurteisi við hana. Kannski hafa slík misskilin siðgæðisviðhorf gert meira illt en gott, því þetta er varla eitthvað „dónalegt“ afbrot, heldur hreint mannréttindaafbrot. Ásdís J. Rafnar. 61

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.