19. júní - 19.06.2001, Qupperneq 12
Fylgstu með því nýjasta: Konan
Ung kona (18-24), sem stefnir út úr myndinni, er í forgrunni. Það er líkt og hún
hafi tekið eftir lesandanum (eða einhverjum sundlaugargesti), hún gýtur á hann
augunum, og gefur honum órætt merki. Grannur líkami henni kveikir hugmyndir
um næringarskort eða önnur veikindi. Andlit hennar er einnig fölt en það flokkast
undir kúl og augnhvarmarnir eru málaðir svartir. Fölt andlitið undirstrikar einnig
veikleika konunnar, og það minnir einnig á „heróínlúkkið" sem var áberandi í
tískublöðum fyrir nokkrum árum. Hár hennar er litað svart og hún er augljóslega
með gervitagl. Hún hefur aðeins einn handlegg og hann er óvenju langur (e.t.v.
lengdur í tölvuforriti). Óneitanlega veikir það stöðu hennar að vera einhent, það
tekur frá henni jafnvægiö. (Önnur kona var einnig sýnd í þessari auglýsingaher-
ferð mbl.is og var hún Kka einhent, líkt og handleggurinn hafi verið snöggskorinn
af). Unga konan er í naflastuttum ermalausum bol og lætur gallabuxurnar hanga
á mjöðmunum. Hún hefurtil áherslu, hnepptfrá buxnastrengnum. Bakvið hana
er fjölskyldusundlaugin í Laugardalnum með rjúkandi heitu vatni og vísar hitinn
til tilfinninganna því mýtan segir konuna stjórnast af tilfinningum en karlinn af
kaldri skynsemi (Tjörnin).
Sundlaugargestir eru úr fókus en í hitaþokunni má greina konur, börn og föður
að skemmta sér við að lyfta upp barni (karlar mega leika við börn). Þekkt er að
flokka konuna og tunglið saman og karlinn og sólina. í þessari mynd er engin sól,
heldur stuðst við raflýsingu undir dimmum himni sem er grár við sjónarrönd.
Bakgrunnurinn er einnig allur í láréttum línum, sem getur verið táknrænt fyrir
stöðu konunnar, ef turnar tákna stööu karla. Hvað vill þessi kona? Vilji hennar er
hulinn, jafnvel löngun hennar líka, hinsvegar þarf hún sennilega að gera eitthvað
til að komast áfram. Máttur meyjarinnar er fólginn í tælandi augnaráðinu og frá-
hnepptum buxnastrengnum.
Textinn er mbl.is - fylgstu með þvi nýjasta, er að sjálfsögðu tvíræður. Þar eru
fréttirnar nýjastar og myndin sýnir nýjustu útgáfuna að kvenmanni; veikburða
með einn handlegg og gervitagl (breytir sér eftir aðstæðum) treystir hún enn á
líkama sinn. Völd hennar liggja í (freistandi) augnaráðinu, ekki einbeitnum
viljanum eða valdastofnunum eins og Ráðhúsinu, heldur því sem fráhnepptur
buxnastrengurinn vekur til umhugsunar.
Svalt barnauppeldi
Ég er með augað á myndbirtingu kynjanna núna, en í auglýsingagagnrýni væri
einnig kjörið að velta fyrir sér hvort auglýsingarnar virki á markhópinn. Fór hann
á mbl.is og fengu hóparnir, sem fyrirsæturnar eiga að tákna, það sem þær leita
að á mbl.is? Þegar auglýsingaherferðin stóð sem hæst voru opnaðir tveir nýir vefir
á mbl.is, annar um barnauppeldi og hinn um heilsurækt. Mér dettur hvorugt í
hug þegar ég virði fyrirsæturnar fyrir mér og velti fyrir mér hópunum sem þær
eiga að tákna. Einnig mætti kanna hvort auglýsíngarnar kæmust yfir þröskuldana
þrjá. Þær hafa styrkinn til að ná athygli, og þær hafa vafalaust vakið áhuga eða
löngun í útlitið og fötin sem fyrirsæturnar klæðast. En leiddu auglýsingarnar til
þeirrar hegðunar að vafra um á mbl.is (í leit að kúl efni fyrir ungt fólk)?
Þriðja (viöbótar)umræðuefniö gæti verið um ábyrgðina og að spyrja, í anda
Václav Havel, hver ber ábyrgöina á því að að birta áberandi skakkar myndir af
kynjunum í síbylju-auglýsingum? (Ég heyri flissið; hér er hefð að þagga niður
samfélagslega gagnrýni um birtingarform konunnar, og ábyrgð er ekki vinsæl
eftir á.)
Á morgun er nýr dagur
Dökkhærð ung kona (18-24) í erma- og axlarlausum bol sem nær ekki niður að
nafla er fyrir framan. Fyrir aftan hana er ungur rauðhærður maöur með grallara-
legan svip. Það er púki eða leikur í honum og svipurinn segir: Sjáið, ég ætla að
ýta henni! Konan er dansandi og líkt og hún sé að missa jafnvægíö. Hann er í
áberandi betri stöðu á myndinni en hún.
Hann er í svörtum bol og stuttum svörtum sportjakka renndum langleiðina
upp. Hún er aftur á móti í svörtum bol sem hylur hvorki axlir hennar né maga.
Hún er buxnalaus og birtist einungis í svörtum nærbuxum. (Hvað er hún að spá?)
Það eru vandræðaleg átök í myndinni. Hann er með tak á henni og hún reynir
10