19. júní - 19.06.2001, Blaðsíða 69
YFIR 20 ÞLISUND kdnur hlaupa saman
Á ÁRI HVERJU í KVENNAHLAUPI ÍSÍ
Yfir 20 þúsund konur á landinu öllu hafa tekið þátt í kvennahlaupi Iþrótta- og Ólympíusambands Islands undanfarin ár og er gert
ráð fyrir svipuðum fjölda í ár. Að þessu sinni fer hlaupið fram á yfir áttatíu stöðum víðs vegar um landið hinn 16. júnf að sögn Gígju
Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra kvennahlaupsins. „Markmið hlaupsins er fyrst og fremst að vekja áhuga kvenna á hreyfingu og
heilsurækt," segir Gígja í samtali við 19. júní.
Kvennahlaup (SÍ fór fyrst fram í Garðabænum árið 1990 en þá tóku þátt um 2.500 konur. Síðan þá hafa æ fleiri konur tekið þátt
jafnframt því sem hlaupið hefur farið fram á fleiri stöðum á landinu. Hin síðari ár hefur aukinheldur verið hlaupiö á nokkrum stöðum
erlendis. Þar á meðal í Belgíu, Danmörku, Bandaríkjunum og í Namibíu
Gígja segir að ÍSÍ sé ekki síst með þessu hlaupi að leggja
áherslu á almenningsíþróttir og fullyrðir að fjöldi kvenna hafi tekið
sín fyrstu skref í frekari heilsueflingu með því að taka þátt í
kvennahlaupinu. „Margar konur hafa byrjað að stunda reglulega
heilsurækt með þátttöku sinni í hlaupinu," segir hún og bendir
jafnframt á að elstu þátttakendurnir hafi verið hátt á tíræðisaldri.
Þeir yngstu séu böm sem keyrð eru í barnavagni. „Því má bæta
við að rannsóknir hafa sýnt að tengsl séu á milli þátttöku mæðra
í hreyfingu og heilsurækt og dætra þeirra. Þannig eru meiri líkur á
því að stúlka stundi heilsurækt ef móðir hennar sýnir gott fordæmi
og gerir slíkt hið sama."
Þegar Gígja er innt eftir því hvers vegna hlaupið hafi hlotið eins
góðar viðtökur og raun ber vitni segir hún að það sé ef til vill vegna
þess hve góð stemmning hafi skapast í kringum það frá upphafi.
„Það myndaðist strax afar jákvæð stemmning í kringum hlaupið.
Þar taka þátt mæður, systur, dætur og vinkonur og eiga ánægju-
lega og heilsusamlega stund saman," útskýrir hún, „en hlaupið er
þó sennilega líka vinsælt vegna þess að það er ekki keppni. Aðal-
atriðið er að taka þátt. Hver kona getur því hlaupið eða gengið á
sfnum eigin hraða." En hvers vegna stendur fSÍ ekki líka að karla-
hlaupi? „Þarna kemur að mismuni kynjanna. Ég efast um að
stemmning í þessum mæli myndi skapast í kringum sérstakt
karlahlaup. Brottfall stúlkna úr íþróttum er auk þess hlutfallslega
meira en brottfall drengja. Með þessu er því verið að hvetja konur
sérstaklega til að hreyfa sig og stunda heilsumsamlegt líferni." •
Spjallað á leiðinni! Hressar konur á Stöðvarfirði