19. júní - 19.06.2001, Blaðsíða 39
síðan karlmaður var rekinn úr starfi hérlendis fyrir að ætla að nota hluta fæðingarorlofs eins og hann átti rétt á. Fleiri eru
þeir sem hafa fengið augngotur og háðsglósur fyrir eitthvað svipað.
Á allra síðustu árum hafa þó veriö merkjanlegar breytingar hér á. Reyndar var mér hér um daginn sagt frá eiganda
fyrirtækis sem nú krefst þess af þeim ungu körlum sem hann ræður til starfa að þeir lofi að fara ekki í fæðingarorlof.
Vonandi eru þeir ekki margir atvinnurekendurnir sem á þennan hátt haga sér og vonandi er enginn hinna ungu karla
sem tekur slíkt loforð alvarlega þegar á hólminn er komið, enda með öllu ólöglegt að fara fram á slíkt. Hins vegar er
það nógu fróðlegt að þessi staða skuli koma upp. Þegar ég vann á Skrifstofu jafnréttismála þá hringdu alltaf við og
við þangað ungar konur sem kvörtuðu undan því að væntanlegur vinnuveitandi hafði farið fram á að þær lofuðu að
eignast ekki börn næstu tvö til þrjú ár. Nú virðast bæði kynin geta orðið fyrir slíkum ómerkings viðbrögðum þegar
leitað er eftir atvinnu.
Það eru með öðrum orðum teikn á lofti um að umönnunarhlutverk karla sé að verða almennari þáttur í tilveru
þeirra og kominn tími til. Svo á eftir að koma í Ijós hvort það muni skila einhverju inn í „kvennastörf" á vinnu-
markaði, hvort aukin umhyggjustörf karla á heimilum muni auðvelda þeim körlum sem það vilja að starfa
við uppeldis- og umhyggjustörf. Merkilegt nokk virðist ekki mikill áhugi af opinberri hálfu að hafa áhrif á
þau mál. Það veldur mun meiri áhyggjum að konur eru ekki nema um 20% þeirra sem eru að læra verk-
fræði en að varla nokkur karl er meðal þeirra sem eru að læra hjúkrunarfræði. Það er vond en áleitin
hugsun að ástæðan fyrir því sé að mannvirkjagerð og hugbúnaðarvinna teljist merkilegra innlegg
í samfélagið en að sinna þörfum barna, sjúklinga og gamalmenna. Mér er minnisstæð predikun
Sigurbjörns Einarssonar biskups þegar Vigdís Finnbogadóttir var sett í embætti forseta
Islands. Sigurbjörn nefndi að nú væri kona í fyrsta sinn sett í þetta embætti en kyn-
ferði Vigdísar væri ekki atriði. „Þess skal hún hvorki njóta né gjalda," voru orð
hans. Skelfing held ég að karlar í „kvennastörfum" og konur í
„karlastörfum" yrðu fegin ef menn almennt gætu haft þessi einföldu
orð að leiðarljósi.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL
við sjáum um fjármálin
Sérkjör Heimilislínu fela í sér mikið hagræði og fjárhagslegan ávinning
fyrir skilvísa og trausta viðskiptavini. Sérkjör Heimilislínu eru víðtæk
fjármálaþjónusta á vildarkjörum fyrir þá sem þurfa mikið fjárhagslegt
svigrúm. I þjónustunni felst m.a.
• Hærri innlánsvextir
• Allt að 750.000 króna yfirdráttar-
heimild á Gullreikningi
• Lægri vextir á yfirdráttarheimild
• Gulldebetkort ásamt 150frium
kortafærslum á ári
• Gullkreditkort VISA, eða
Mastercard Heimskort
• Aðgangur að Heimilisbankanum
á Internetinu
• Allt að 750.000 króna
skuldabréfalán til allt að fimm
ára, án ábyrgðarmanna
/ SERKT Ö~R
H E I M I L I S L í N U N N A R
• Allt að 2.000.000 króna
reikningslán á hagstæðum
kjörum
• Greiðsluþjónusta með
útgjaldadreifingu
• Útgjaldadreifing í Heimilisbanka
Búnaðarbankans
• Netklúbbur Heimilislínu
• Húsnæðislán til allt að 25 ára
• Ódýrari bílalán Lýsingar
• Árgjald þjónustunnar er
7.500 krónur