19. júní - 19.06.2001, Page 77
þátt í skipulagningu ráðstefnunnar fyrir (slands hönd. I október
sl. var Svanfríður Jónasdóttir, alþingismaður sem sæti á í
Vestnorræna ráðinu, gestur á opnum fundi KRFÍ og greindi hún
þar frá því hverju Færeyjaráðstefnan hefur skilað í löndunum
þremur.
Árlegur jólafundur Kvenréttindafélagsins var haldinn 12.
desember í Skólabæ. Að þessu sinni lásu upp úr nýútgefnum
bókum sínum þau Vilborg Dagbjartsdóttir, Guðrún Guölaugs-
dóttir, Guðrún Helgadóttir og Rúnar Helgi Vignisson. Sr. Auður
Eir Vilhjálmsdóttir flutti jólahugvekju. Bókahappdrættið, kakóið
og piparkökurnar voru líka á sínum stað.
Föstudagskvöldið 2. mars sl. stóð félagið fyrir kvöldvöku með
valkyrjunni, víkingnum og fyrrum varaformanni KRFÍ, Ellen
Ingvadóttur. Ellen sagði okkur, á mjög svo skemmtilegan og
eftirminnilegan hátt, frá siglingu sinni með víkingaskipinu
íslendingi sem farin var í tilefni af afmæli landafundanna.
25 ára afmæli kvennafridagsins
Þann 24. október 2000 voru 25 ár liðin frá heimsfrægum frídegi
íslenskra kvenna. Margt var gert til að minnast dagsins.
Kvenréttindafélagið, í samstarfi við Jafnréttisstofu, stóð fyrir
hádegisverðarfundi sem haldinn var samtímis á Grand Hótel í
Reykjavík ogá Fiðlaranum á Akureyri. Fjarfundarbúnaður kom
þar að góðum notum. Mjög vel mætt var á báða staðina.
Reykjavíkurmegin flutti Vilborg Harðardóttir erindi, en hún stóð
í eldlínunni fyrir 25 árum og á Akureyri var Valgerður
Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, og flutti fund-
inum sitt erindi. Hólmfríður Sveinsdóttir stjórnaði fundinum.
Auk hádegisverðarfundarins tók félagiö þennan sama dag þátt
í heimsgöngu kvenna gegn örbirgð og ofbeldi. llm var að ræða
samstarf fjölmargra samtaka og gengið var frá Hlemmi niður á
Ingólfstorg þar sem haldinn var útifundur.
Mansal
Mansal (trafficking) er stórt vandamál I heiminum í dag. Eins og
áður segir þá kviknaði sú hugmynd I kjölfar NOKS fundar í
nóvember sl. að Kvenréttindafélagið stefndi saman helstu sér-
fræðingum landsins til að ræða þau mál. Þann 6. desember
boðaöi félagið eftirtalda aðila til lokaðs fundar í kjallara
Hallveigastaða: félagsmálaráðuneytið, dómsmálaráðuneytið,
Jafnréttisfulltrúa Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðarbæjar,
Jafnréttisstofu, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöfina, Ríkis-
lögreglustjóra, Stígamót, Útlendingaeftirlitið, Bríeti — félag ungra
feminista, Barnaheill, Rauða krossinn, Unifem, Mannréttinda-
skrifstofuna og Rannsóknir og greiningu. Tilgangurinn með
fundinum var að leiöa saman þá sem mesta þekkingu og
reynslu hafa á málinu. Mjög góð mæting var á fundinn og þótti
hann afar þarfur. Ákveðið var að hópurinn kæmi aftur saman að
nokkrum mánuðum liðnum.
Eiga konur áhyggjulaust ævikvöld?
Þann 27. janúar, á 94. afmælisdegi KRFÍ, stóð félagið fyrir
ráðstefnu í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni „Eiga konur
áhyggjulaust ævikvöld?" Þar var fjallað um kjör eldri kvenna og
félagslegt jafnrétti. Þau sem héldu erindi voru: Sigríður Jóns-
dóttir, félagsfræðingur, flutti hugleiðingu um konur á efri árum;
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, forstöðukona félagsstarfs aldraðra í
Kópavogi, flutti erindi um hið svokallaða „Kópavogsmódel" og
stöðu eldri kvenna; Bjarnfríður Leósdóttir, fyrrverandi kennari
og verkalýðsforkólfur, flutti erindi sem hún kallaði „Hvar eru
konurnar í verkalýðshreyfingunni?"; og Gunnar Páll Pálsson,
forstöðumaður hagdeildar VR, flutti erindið „Starfslok og
atvinnu öryggi eldri kvenna". Auk þessa fluttu þær Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiparáðherra og Hólmfríður
Sveinsdóttir, starfandi formaður KRFl, stutt ávörp. Flosi Ólafs-
son, leikari og stórbóndi stjórnaði ráðstefnunni með miklum
glæsibrag. Að erindum loknum, skiptu ráðstefnugestir sér upp
í þrjá vinnuhópa. Mjög athyglisverðar og líflegar umræður urðu
í vinnuhópunum og greindu hópstjórarnir frá þeim í lok
ráðstefnunnar. Hópstjórarnir voru þær Bryndís Hlöðversdóttir
og Lára V. Júlíusdóttir, báðar fyrrum formenn KRFl og Helga
Guðmundsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Islands.
Meðal þess sem vinnuhóparnir komu sér saman um var að
beina því til stjórnar KRFl að beita sér fyrir bættum lífeyris-
réttindum og kynningu á möguleikum hjóna/sambýlisfólks á að
semja um skiptingu á lífeyrisréttindum sín á milli. Ekki má
skilja við ráðstefnuna án þess að minnast á þátt Ingu Sólnes (
allri undirbúningsvinnunni en hennar aðstoð er ómetanleg.
Dr. Björg C. Þorláksson
I ár eru 75 ár liðin slðan dr. Björg Þorláksson varði doktors-
ritgerð sína við Sorbonne háskólann í París, fyrst allra íslend-
inga og í raun fyrsti Norðurlandabúinn sem þar lýkur doktor-
sprófi. Stofnaður hefur verið áhugahópur og sjóður um minn-
ingu Bjargar. Eitt af markmiðum hópsins er að láta steypa I
brons brjóstmynd af Björgu, gerða eftir gifsafsteypu Ásmundar
Sveinssonar. Styttunni er ætlaður staður innan skipulagssvæðis
Háskóla (slands. Björg Einarsdóttir og Kristín Þóra Harðardóttir
eru fulltrúar KRFl í áhugahópnum.
Hér er í raun fátt eitt talið af starfsemi Kvenréttindafélagsins á
árinu 2000-2001. Ég gæti nefnt margt fleira, en læt hér staðar
numið. Þar sem ég gef ekki kost á mér í stjórn Kvenréttinda-
félagsins þá vil ég nota þetta tækifæri og þakka þeim sem ég
hef starfað með undanfarin fjögur ár. Þetta hefur verið afar
skemmtilegur og gefandi tími. Nýjum formanni, stjórn og félag-
inu öllu óska ég alls hins besta um ókomna tíð.
24. mars 2001
Hólmfríður Sveinsdóttir
75