Búfræðingurinn - 01.10.1951, Blaðsíða 27
11 ú FRÆÐINGURIN N
25
hittast aftur síðar, en ekki ákveðið hvaða ár það skyldi gert. Að
fundi loknum var svo tekin hópmynd af félögunum.
Eftir að snæddur hafði verið hádegisverður var gengið til
guðsþjónustu í dómkirkjunni. har messaði sóknarpresturinn
séra Björn á Vatnsleysu. Friðbjörn Traustason, kennari stjórn-
aði kirkjusöng.
Við sameiginlega kalfidrykkju kl. 15 fluttu ræður Páll
Zóphoníasson, Kristinn Guðmundsson, frú Hildur Björnsdótt-
ir, Lárus Sigurðsson og Gísli Kristjánsson. Hafði verið ákveðið
að Jiá skyldi lokið mótinu, með Jrví að Kristján Karlsson hafði
boðað til Hólamannafundar kl. 17 þennan dag.
Gísli Kristjánsson sagði mótinu lokið, þakkaði öllum kom-
una og árnaði gestum og skólafélögum velfarnaðar. Kvöddust
síðan allir og voru sammála um að sainkoma Jressi hefði verið
mjög ánægjuleg. Þótti skólabræðrum það eitt að, hve lítill
tími var til að talast við og rifja upp gamlar minningar, en tími
anna og aðkallandi starfa leyfði ekki lengri dvöl að sinni.
Allir þátttakendur lögðu fram sinn góða skerf til að gera
mótið ánægjulegt, og hinar ágætu móttökur skólastjórahjón-
anna og allur undirbúningur var veigamikill Jjáttur í þessu
efni.
Þetta er fyrsta nemendamót, sem haldið er á Hólum, en von-
andi koma fleiri á eftir. Víst er Jiað, að Jreir nemendur, sem
Jjarna konm saman 1. og 2. júlí s.I. telja að slík mót hljóti að
hafa nokkurt gildi, bæði fyrir þátttakendur sjálfa og einnig
fyrir skólann og Hólastað. Hinum gömlu nemendum og félög-
um var mikið ánægjuefni að hittast aftur og endurnýja og
styrkja gömul vináttubönd, sem knýtt voru á skólaárunum.
Efalaust hefur þeim nú, sem fulltíða og Jrroskuðum mönnum,
orðið það umhugsunarefni, hvers virði Jreim hefur verið skóla-
námið á Hólum og hve sterkur þáttur áhrifin frá náminu og
hin raunverulega fræðsla hefur orðið í athafnalífi Jieirra og
viðhorfi til landbúnaðarmálanna og þjóðarbúskaparins yfir-
leitt.
í kennslusal Hólaskóla hanga nú, hlið við hlið, glæsilegar
myndir þriggja fyrrverandi skólastjóra. Þegar horft er á J^essar
myndir opnast ósjálfrátt útsýn yfir starfssvið þeirra á liðnum