Búfræðingurinn - 01.10.1951, Blaðsíða 88
86
ÍSÚFH/EÐINGURINN
Frá því 1930 og til ársloka 1947 hafa verið sléttaðir í gömlu
túnunum 6427 ha. Samkvæmt túnþýfismælingunum 1945 og
1946 voru rúmlega 6000 ha. þýfðir af gömlu túnunum þá, síð-
an liafa verið sléttaðir 3Q00 ha., og er þá ekki meðtalin sléttun
síðustu tveggja ára. Á sama árabili hafa verið settar upp tún-
girðingar, sem eru 7366 km. að lengcl.
Á árabilinu 1920 til 1940 gekk erfiðlega að koma framræsl-
unni í liorf. Með hækkandi verðlagi á vinnu varð fjárhagslega
því nær ókleift fyrir bændur að vinna að framræslunni með
liandafli, en 1942 var byrjað að nota hér, við gröft opinna
skurða, skurðgiöfur á beltum með Drag Line graftartækjum.
Síðan hefur fjöldi skurðgrafna, sem vinna að framræslu fyrir
bændur, verið sem hér segir: 2 árið 1942, 2 árið 1943, 5 árið
1944, 9 árið 1945, 14 árið 1946, 32 árið 1947, 35 árið 1948 og
37 árið 1949. Þessar gröfur eru eign Vélasjóðs og leigðar rækt-
unarsamböndum hreppa, lneppabúnaðarfélögum og búnaðar-
samböndum. Ræktunarsambönd og annar félagsskapur bænda
hefur eignazt á síðustu árum 8 skurðgröfur, svo að síðastliðið
ár hafa 45 skurðgröfur unnið að framræslu fyrir bændur.
Á árunum 1942—1946 eru grafnir opnir skurðir samtals 344
km. og rými 1,371 þúsund teningsmetrar. Árið 1948 nemur
gröfturinn með skurðgröfum Vélasjóðs, 1.052 þúsund rúm-
metur, og 1949, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri, hafa verið
grafnir 1.635 þúsund rúmmetrar. Það hafa því verið grafnir hjá
bændum á síðustu 8 árum 1077 km., að rúmmáli 4102 þúsund
rúmmetrar. Það svarar til, að ræstir hefðu verið 6835 ha. lands,
ef miðað er við það verkmagn, sem venjulega kemur á ha. lands
við framræslu til túnræktar. Þessi framræsla hefur kostað, sé
reiknað með meðalverði pr. rúmmetra á þessu árabili, kr.
7.154.000. Þessi framræsla gefur stórfellda, bætta aðstöðu til
túnræktar fyrir bændur á næstu árum, því að víða var aðstaða
sú, að ræktun varð eklti við komið vegna vöntunar á fram-
ræslu. Þrátt fyrir þessar miklu framræsluframkvæmdir, eru
heil héruð, sem engin afnot liafa enn fengið af skurðgröfunum,
enda er það svo, að vegna erfiðrar aðstöðu til milliflutninga,
verður þeim ekki alls staðar við komið. Þar sem lítið er hægt