Frjáls verslun - 01.04.2001, Blaðsíða 41
BflUGSVELDIÐ ÞENST ÚT
menn í eldlfnunni
Þeirskipa fimm manna framkvœmdastjórn Baugs
og hafa stabió í ströngu ab undanförnu í útrás
Baugs sem færa mun fyrirtækib til hæstu hæba á
mælistikunni yfir stærstu fyrirtæki landsins. Það
verdurþað langstærsta hérlendis og er áætluð
velta þess um 114 milljarðar á þessu ári. Það er
næstum tvöfalt meiri velta en stærsta fyrirtæki
landsins síðustu tvö árin, SIF, hefur verið með.
Skipurit Baugs hf.
Stjórnarformaður
Hrelnn Loftsson
Forstjóri / CEO
jón Asgelr Jóhannesson
Eftír Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
Þeir skipa fimm manna framkvæmdastjórn Baugs og hafa
staðið í ströngu að undanförnu. Þetta eru þeir Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs, Tryggvi Jónsson, aðstoð-
arforstjóri Baugs, og framkvæmdastjórarnir, Árni Pétur Jóns-
son, Jón Björnsson og Jón Scheving Thorsteinsson. Allt ung-
ir menn, aldurforsetinn í
hópnum er Tryggvi Jóns-
son, 46 ára að aldri. Allir
hafa þeir verið býsna kunn-
ir í íslensku viðskiptalífi
síðustu árin. Nú stýra þeir
stærsta fyrirtæki landsins
því útrás Baugs að undan-
förnu til Evrópu og Banda-
ríkjanna mun þegar á
þessu ári færa fyrirtækið til
hæstu hæða á mæli-
stikunni yfir stærstu fýrir-
tæki landsins. Það verður
það langstærsta hérlendis
og er áætluð velta þess um
114 milljarðar á þessu ári.
Það er næstum tvöfalt
meiri velta en stærsta fyrir-
tæki landsins síðustu tvö
árin, SÍF, hefur verið með
og hefur það þó haft dá-
góða yfirburði.
Baugssveitin lætur að sér
kveða Það verður ekki
annað séð en að Jóni Ás-
geiri hafi tekist ágætlega
upp í mannvali varðandi næstráðendur sína, en allir hafa þeir
fimmmenningar nokkuð ólíkan bakgrunn í viðskiptum. Árni
Pétur Jónsson er sá nýjasti í hópi framkvæmdastjóra Baugs
en hann tók við starfi framkvæmdastjóra matvörusviðs fyrir
rúmum mánuði, eða 25. apríl sl., þegar nýtt skipurit Baugs
var kynnt til sögunnar. Ekki fer á milli mála að Jón Ásgeir þarf
á afar sterkri liðsheild stjórnenda að halda því tími hans og
kraftar munu að mestu fara í að halda utan um útrás Baugs til
Evrópu og Bandaríkjanna.
Fyrir utan fimmmenningana í framkvæmdastjórninni hefur
Baugur á að skipa reyndu og sjóuðu fólki í mörgum öðrum
helstu lykilstöðum. Þar má nefna Guðmund Marteinsson, frkv-
stj. Bónuss, Finn Árnason, frkvstj. Hagkaups, Árna Ingvarsson,
frkvstj. Nýkaups, Þórð Þórisson, frkvstj. 10-11, Lárus Oskarsson,
frkvstj. Aðfanga, Halldór Hreinsson, frkvsfy Útilifs, Bryndísi
Hrafnkelsdóttur, frkvstj. Debenhams á Norðurlöndum, Sigrúnu
Andersen, trkvstj. Arcadia á Islandi, sem rekur TopShop í
Reykjavík, Kristjón Grétarsson, frkvstj. Arcadia á Norðurlöndun-
um, Lindu Jóhannsdóttur fjármálastjóra og Söru Lind Þorsteins-
dóttur, forstöðumann upplýsinga- og kynningarsviðs Baugs.
Aðstoðarforstjóri / COO
Tryggvl Jónsson
Dótturfyrirtæki I
Istoðir, Bónus Dollar, SMS, Avaxtahúsló, GkJ
][
]f
Starfsmannaþjónusta
[ Sjóðsstjórn ) [ Upplýsingatækni j [ Baugsskólinn ]
—í Bókhald J [ Þróun / rekstur ] [ Verkefnisstjórn / ráðgjöf J
—[ Hagdeild ]
Innra eftirlit
Öryggisdeild
Matvörusvið
Aml Pótur Jónsson
][
Sérvðrusvið
Jón Bjömsson
b'nus
M
HBHBSH
nCa lyfja
] L
Þróunarsvið
Jón Scheving Thorstelnsson
DEBENHAMS
TOPSHOP
TO P M A N
Þróun innanlands
Þróun erlendis
Internetsjóður Baugs
Önnur sérvörufyrirtæki
3
Nýtt skipurit Baugs hefur tekið gildi í kjölfar útrásarinnar. Ekki fer á milli mála að Jón Asgeir þarf á afar
sterkri liðsheild stjórnenda að halda því tími hans og kraftar munu að mestufara í að halda utan um útrás
Baugs til Evrópu og Bandaríkjanna.
Auðvitað er áhættan veruleg í útrás Baugs, eins og í öllum svona viðskiptum. Stóra spurningin, sem
flestir í viðskiptalífinu spyrja sig að, er hvaða þekkingu og reynslu lykilstjórnendur og eigendur Baugs
hafi fram að færa inn í Arcadia Group og Bonus Stores Incorp. í Bandaríkjunum. Hvað hafa þeir Baugs-
menn að gefa inn í þessar samsteypur sem fjárfestar erlendis virðast ekki hafa búið yfir?
41