Frjáls verslun - 01.04.2001, Page 56
Gunnar Páll Pálsson, hagfrœðingur hjá VR, telur stjórnendur þurfa að bæta uþplýsingaöflun í Jýrirtœkinu. „Þeir þurfa að koma sér upp ein-
hvers konar mœlikvarða og mœla staðreyndir í stað þess að notast eingöngu við tilfinninguna því að hún virðist vera í þá veru að allt sé miklu
betra sem snýr að þeim sjálfum og þeirra stjórnunarháttum en starfsmennirnir telja. “
Almenn ánægja ríkir
Könnunin sýnir að almenn ánægja ríkir með vinnnuskilyrði á vinnustað, t.d. hvað varðar húsnæði, ör-
yggismál, aðbúnað og matar- og kaffihlé. Bæði stjórnendur og almennir starfsmenn telja sig jafnlynda
og yfirvegaða á vinnustað en almennir starfsmenn telja sig liprari en stjórnendur.
Stjórnendur eru þunglyndari og ekki jafn skapgóðir í vinn-
unni og almennir starfsmenn.
Óskýrar boðleiðir? „Það er eðlilegt að stjórnendur séu al-
varlegri og ábyrgðarfyllri en almennir starfsmenn, það er
kannski ein af ástæðunum fyrir því að þeir eru stjórnendur,“
heldur Gunnar Páll áfram. „Hvað frelsi til ákvarðanatöku
varðar þá eru þeir auðvitað að vinna að framgangi hugmynda
sinna. Ef starfsemin skilar árangri hlýtur fyrirtækið að vera
að færast í þá átt sem hugmyndirnar ganga út á og þá hljóta
stjórnendurnir að fyllast stolti. Aimennir starfsmenn koma lít-
ið sem ekkert að stefnumótun, það eru stjórnendurnir sem
hafa heildarsýnina meðan almennir starfsmenn vita lítið sem
ekkert um hana og fá þess vegna þá tilfinningu að boðleiðirn-
ar séu ekki nógu skýrar og að þeir fái ekki að fylgjast nægi-
lega vel með,“ segir hann.
56