Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 71

Frjáls verslun - 01.02.2002, Page 71
MARKAÐSIVIflL NÝ TÆKNI MICHAEL DOUGLAS Frumsýnd 8. febrúar um land allt. ...spennutryllir ái DON'T SAY AWORD spdrts PlayStation 2 Fyrirtækin hafa upþgötvað áhrifamátt SMS-tœkninnar. 10-11 verslanirnar auglýstu nýlega lukkuleik og bíómyndin Don’t Say a Word var auglýst í tengslum vib SMS. Þeirsem senda inn SMS-skilaboð lenda í pottinum og fá svo í framtíðinni auglýsingar og tilboð frá fyrirtœkjunum - á SMS. Um síðustu áramót voru farsímanotendur Lands- síma íslands um 148 þús- und talsins, sem þýðir 66 prósenta markaðs- hlutdeild, GSM-notendur hjá Tali voru um 60 þús- und talsins, eða 27 prósenta markaðshlut- deild, og hjá Íslandssíma voru notendurnir 15 þúsund talsins, eða um 7 prósent, en GSM-þjónusta Íslandssíma hófst í mars á síðasta ári. aði jú þátttakendur 49 krónur að senda hvert skeyti. Vefsetrið Núlleinn.is hefur einnig prófað að vera með markaðsleik. Það var með spilaleik, þar sem þátttakendur fengu lukkunúmer og gátu sent það inn með SMS-skilaboðum til að kanna hvort þeir hefðu fengið vinning. En fyrirtækin hafa einnig nýtt sér SMS-kerfið til að auka þjónustu sína enda er SMS frábært upplýsingatæki og gagn- virknin óneitanlega kostur þó að hún geti líka verið galli. Lík- amsræktarstöðvarnar geta t.d. látið vita um breytta tíma eða veikindi þjálfara með því að senda SMS-skilaboð, Europay íslandi hefur auglýst sértilboð til Atlas korthafa í gegnum SMS, Smárabíó sendir upplýsingar um frumsýningar og forsýningar í SMS, hljómsveitin Sálin auglýsir tónleika, Rauði kross Islands notaði nýlega þessa tækni til að óska eftir fólki til að selja penna til styrktar vinnu gegn ofbeldi, fyrirtækið Hausverk hefur notað SMS-kerfið til atkvæðagreiðslu og það sama hafa fleiri fyrirtæki gert og munu gera. Markviss markaðsaðferð Þegar fólk sendir inn símanúmerið sitt í SMS-leik er reglan sú að gefið er jáyrði fyrir því að fá aug- lýsingar og tilboð frá viðkomandi fyrirtækjum og þannig geta fyrirtækin safnað saman góðum gagnagrunni, hópi fólks sem vill fá upplýsingar og auglýsingar. Fyrirtækin þurfa þvi ekki að eyða kröftum sínum og Jjármunum í t.d. auglýsingar á lands- vísu heldur geta sent auglýsingarnar beint á sinn markhóp. SMS-tæknin gefur því mjög markvissa og beina markaðsað- ferð. BK kjúklingur á Grensásvegi hefur nýtt sér þessa aðferð um nokkurt skeið meðal framhaldsskólanema og hefur svör- unin verið á bilinu 15-30 prósent, sem þykir góður árangur. Þessi tækni gefur kost á að flokka markhópinn niður, t.d. eftir kyni, aldri, háralit o.s.frv., í samræmi við þær upplýsingar sem þátttakendur gefa. Þannig þarf ung kona ekki að fá SMS-skeyti frá herrafataverslunum nema hún vilji það og ungir strákar fá ekki tilboð frá kvenfataverslunum nema þeir vilji það. Þátttak- endur geta svo skráð sig úr gagnagrunninum þegar og ef þeir vilja hætta að fá tilboð og auglýsingar fyrirtækjanna. Kringlan var með útsöluleik á SMS eftir áramótin þar sem þátttakendur í þúsundatali sendu inn skeytið „is utsala sms“ og tóku þátt í happdrætti með ijölda vinninga frá verslunum Kringlunnar. Með þessu voru símanúmer þátttakenda komin í gagnagrunn Kringlunnar og fá þeir í framtíðinni tilboð og auglýsingar í farsíma sinn. Nema þeir skrái sig aftur úr grunn- inum! ívar Sigurjónsson, markaðsstjóri Kringlunnar, er mjög ánægður með leikinn og segir að nokkur þúsund farsíma- númer hafi bæst við í SMS-grunn Kringlunnar en fyrir voru þau um 5.000 talsins. „Leikurinn fékk fínar viðtökur. Þetta markaðsstarf skilar sér mjög vel fyrir þær verslanir, sem hafa sent auglýsingar og tilboð á SMS, því að það er gert með sam- þykki þeirra sem fá þau. Líkurnar á því að við fáum viðbrögð við slíku áreiti eru meiri en venjulega því að þetta fólk vill fá að vita þegar tilboð og auglýsingar eru í gangi,“ segir hann og telur gott að hafa unnið með yngri aldurshópunum í markaðs- málum til lengri tíma litið þó að það skili sér ekki endilega í viðskiptum núna. SMS í Skyrinu líka En SMS-æðið hefur skotið upp kollinum á ótrúlegustu sviðum. Skemmtilegur angi af því er markaðs- setning á nýju skyri, SMS-smáskyrinu, sem Mjólkurbú Flóa- manna sendi á markað fyrir nokkru. Birgir Guðmundsson mjólkurbússtjóri segir að með þessu heiti sé verið að höfða til þess markhóps sem nýtir sér SMS-tæknina, barna og ung- linga, á svipaðan hátt og gert hafi verið með Skyr.is þegar það var sett á markað í fyrra. „Þegar við fórum að framleiða þetta afbrigði af skyrinu þá datt okkur í hug að tengja það þessari tækni og höfða til unga fólksins. Það eru æði margir, sem eiga börn og unglinga, en auðvitað þarf ekki annað en að ganga um götur til að sjá að þessi hópur er endalaust, stanslaust og stöðugt að pikka inn þessi skilaboð í síma,“ segir hann. S3 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.