Frjáls verslun - 01.04.2002, Side 10
í takt uið hið breytta hlutverk bankaútibúa er að finna fræðslu-
hnrn í útibúinu, þar sem hægt er að bjóða viðskiptavinum og
öðrum gestum SPU upp á fræðslu og kynningar.
Þrátt fyrir breytt hlutverk bankaútibúa er starfsemin ávallt
nokkuð formföst. í nýjum bankaútibúum finnast hefðbundin
bankahólf.
heimsóknir til SPV í gegnum tölvu eru nú eins og fyrr segir yfir 20.000
á mánuði." Viðskiptavinir geta sem sagt núorðið valið um hvort þeir
sinna bankaviðskiptum sínum í útibúum, tölvu, síma eða lófatölvu og
fljótlega verður hægt að gera slfkt hið sama gegnum sjónvarpið. Bjarni
segir GSM-bankann, sem SPV býður upp á, njóta vinsælda, en hann
gerir viðskiptavinum kleift að vera með heimabankann í GSM-símanum.
Pá er hægt með GSM-bankanum, að framkvæma allar helstu bankaað-
gerðir með auðveldum hætti hvar sem er. Bjarni segir bankaþjónustu
vera þess eðlis að tiltölulega auðvelt sé að heimfæra hana á Netið og
enn séu vanmetnir möguleikar þess hvað varðar bankaþjónustu, en að
sjálfsögðu verði þó að varast að fara of geyst þvt markaðurinn verði að
vera tilbúinn fyrir hina auknu möguleika.
„Bankaútibú sinna greiðslumiðlun í mun minna mæli en verið hefur
vegna þess hversu aðgengilegt er að stunda almenn bankaviðskipti á
Netinu og viðskiptavinir geta verið í sambandi við starfsmenn bankanna
í gegnum Netið eða síma. í stað þess að fara í útibúið séu margir mögu-
leikar í boði, þ.e. að millifæra og greiða reikninga sína á Netinu, í síma,
í sjálfsafgreiðslutækjum, greiðsluþjónustu eða beingreiðslum. Almenn
bankaþjónusta þróast í þá átt að verða enn sjálfvirkari,” segir Bjarni.
Hann segir trúlegt að útibúanet bankanna eigi eftir að dragast saman
þótt ekki verði af sameiningu banka fljótlega. Bankar með tiltölulega háan
fjölda útibúa munu væntanlega leitast við að ná niður rekstrarkostnaði
sínum með fækkun útibúa.
Annar stærsti sparisjóðurinn
Aðspurður segir Bjarni ekki ráðgert að fjölga útibúum SPV frekar á
næstunni. Hann segir SPV vera með samsetningu í dag sem henti
ágætlega og að vöxtur í framtlðinni muni eiga sér stað í gegnum Netið
og enn betri nýtingu þeirra útibúa sem SPV rekur nú þegar í Borgartúni,
Hraunbæ og Síðumúla. Bjarni segir Netið, þ.e. sjálfsafgreiðslu og sjálf-
virkni, gera sjóðnum kleift að auka umsvifin án þess að fjölga útibúum og
starfsfólki. Áhrifin á bankakerfið eru og verða mikil, útibúin hafa verið að
breytast úr afgreiðslustöðum í miðstöðvar sem sjá um flóknari
afgreiðslu og veita ráðgjöf á sviði fjármála.
Umsvif Sparisjóðs vélstjóra hafa aukist mikið og sé litið til eigin-
fjárstöðu er hann nú annar stærsti sparisjóður landsins. Bjarni segir að
eiginfjárstaða SPV sé sterk og mikill vöxtur hafi verið í starfseminni síð-
ustu ár. Sérstök áhersla hefur verið lögð á þjónustu við einstaklinga og
fjölskyldurnar auk þjónustu við meðalstór og minni fyrirtæki. „Það hefur
fjölgað í viðskiptamannahópnum okkar að undanförnu og ég get nefnt að
á síðasta ári bættust við hjá okkur hátt í 3.000 nýir innlánsreikningar
umfram þá sem var eytt."
Mikil aukning eiginfjárhlutfalls
Hagnaður eftir skatta á árinu 2001 var 418 milljónir króna og eiginfjár-
hlutfall yfir 19%. Hagnaður SPV fyrir tekju- og eignarskatt var 283 millj-
ónir króna árið 2001, en var 1.272 milljónir árið 2000. Hagnaður eftir
skatta árið 2001 var 418 milljónir en var 909 milljónir árið 2000.
Bjarni segir skýringuna á meiri hagnaði á árinu 2000 en í fyrra vera þá
að á árinu 2000 hafi SPV selt hlut sinn i Kaupþingi. Hann segir horfur
á þessu ári mjög góðar og ánægjulegt sé að eigið fé Sparisjóðs vélstjóra
hafi aukist um yfir 600 milljónir króna á síðasta ári og verið tæpir þrír
milljarðar króna í árslok. Stofnfé sjóðsins sé einungis um 31 milljón
króna, mismunurinn þama á sé því raunverulegt eigið fé. Eiginfjárhlutfall
skv. CAD-reglum sé einnig með því hæsta sem þekkist meðal lánastofn-
ana hér á landi, yfir 19%, en það má ekki vera undir 8%.
Um 9% innlánaaukning á síðasta ári
Heildarútlán SPV að markaðsverðbréfum meðtöldum voru í lok síðasta
árs 17.083 milljónir króna og höfðu vaxið á árinu um 13%. Útlán til við-
skiptamanna voru 14.243 milljónir. Helstu útlánaformin eru sem fyrr
verðtryggð lán og reikningslán. Öll eign sparisjóðsins í skráðum verð-
bréfum er færð á markaðsgengi. Heildarinnlán sparisjóðsins og verð-
bréfaútgáfa voru í lok síðasta árs 13.316 milljónir og höfðu vaxið um
9% á árinu. [H
n
8pV
Sparisjóður
vélstjóra
Sparisjóður vélstjóra er til húsa að Hraunbæ 119 í Árbænum,
Borgartúni 18 og Síðumúla 1. Sími: 575 4000,
þjónustuver 575 4100 ■ Veffang: www.spv.is
10