Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 46

Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 46
TOLVUR EJS Tekjur EJS sl. fjögur ár. íhugaði breytingarnar fyrir fjórum árum Olgeir segir að það hafi ekki farið nægilega vel saman að EJS hafi verið allt í senn: tölvusali, hugbúnaðarhús, þjónustufyrirtæki og í stórum verkefnum erlendis. Því hafi þurft að skipta félaginu upp í fjögur dótturfélög sem hefðu eignarhaldsfélag yfir sér. Draga hafi þurft skýrari línur þarna á milli og ná upp meiri einbeitingu og sölu á hverju sviði fyrir sig. Hann segist raunar hafa íhugað þessar breytingar í bráðum fjögur ár. „Þær eiga að skila okkur aukinni markaðshlutdeild í sölu á tölvum og hugbúnaði - sem og auknum útflutningi á hugbúnaði og hug- búnaðarlausnum." Olgeir hefur verið forstjóri EJS síðastliðin tólf ár og unnið hjá fyrirtækinu frá árinu 1981 er hann réðst til Einars J. Skúla- sonar sem fyrsti tölvumaður fyrirtækisins. Hann tekur við stjórnarformennskunni í samstæðunni af Helga Þór Guð- mundssyni. Helgi var að vísu ekki með titilinn „starfandi" stjórnarformaður. Helgi hefur unnið hjá fyrirtækinu frá árinu 1960, eða í um fjörutíu og tvö ár, og mun starfa þar áfram. Þeir Olgeir og Helgi eru ásamt Bjarna B. Asgeirssyni þrír stærstu hluthafar fyrirtækisins, samtals með um 48% hlut. Kaupþing er ijórði stærsti hluthafinn, með um 10% hlut. Alls eru hluthafar í EJS um 600 talsins. Fyrirtækið er ekki á Verð- bréfaþingi. „Það er ekki hentugt að skrá það þar eins og staðan er núna,“ segir Olgeir. „En vonandi gerist það þó fyrr en seinna.“ Síðasta ar erfitt fyrir EJS EJS er í 60. sæti á lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtæki landsins. Það var með tæpa 3,2 milljarða í veltu á árinu 2000 en á síðasta ári dróst veltan saman um tæpan hálfan milljarð og var um 2,7 millj- arðar. Starfsmönnum hjá samstæðunni fækkaði að sama skapi úr um 300 í um 250. Hópuppsögnum var ekki beitt heldur var sú aðferð notuð að ráða ekki nýja starfsmenn í stað þeirra sem hættu. Tap EJS varð til þess að eiginfjárhlutfallið lækkaði úr 49% í 25% í lok síðasta árs. Viðskiptavinirnir eru á þriðja þúsund, þeirra á meðal eru um 40 af 100 stærstu fyrir- tækjum landsins sem nota hugbúnaðarkerfi frá fyrirtækinu. Hagnaður f. skatta EJS sl. fjögur ár. 323 Olgeir segir um tap síðasta árs að þar hafi mest munað um 300 milljóna króna gjaldþrot Mekkanos og Kveikja, fyrrver- andi dótturfélaga EJS, en einnig hafi minni útflutningur á hugbúnaði til Asíu, almennur samdráttur í upplýsingageir- anum hér á landi, niðurfelling útistandandi krafna vegna þrenginga í efnahagslífinu. Hin nýja regnhlíf Með nýju skipuriti er EJS-samstæðan orðin regnhlíf ijögurra dótturfélaga. EJS Group er regnhlífin, eignarhaldsfélagið, og þar verður Olgeir starfandi stjórnar- formaður og eini starfsmaðurinn. Dótturfélögin eru EJS, Hugur, EJS International og EJS Limited í Skotlandi. Viðar Viðarsson, þróunarstjóri hjá EJS, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri EJS. Páll Freysteinsson, sem áður var framkvæmdastjóri þjónustu- og hugbúnaðarsviðs EJS, verður framkvæmdastjóri Hugar. Gunnar Ingimundarson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Hugar, tekur við stöðu sölu- og mark- aðsstjóra Hugar. Sigurður Grendal Magnússon, fyrrverandi aðstoðarmaður forstjóra EJS, verður framkvæmdastjóri EJS International. Skotinn John Docherty verður áfram fram- kvæmdastjóri EJS Limited, með aðsetur í Glasgow í Skotlandi. Fléttan í Ejs-Skákinni Olgeir er ágætur skákmaður og má segja að flétta hans í EJS-skákinni líti svona út: 1) EJS við Grensásveg á að einbeita sér að sölu á tölvum og tölvukerf- um innanlands og keppa af meira afli við aðra stóra tölvusala, eins og Nýherja, Aco-Tæknival og Opin kerfi. 2) Hin þekkta hugbúnaðardeild EJS flyst yfir í hugbúnaðarhúsið Hug í Kópavogi, sem er dótturfélag EJS Group, og verður fyrir vik- ið stærra og sterkara sem aftur mun gefa því aukinn mátt til að takast á við innlend og erlend verkefni. 3) EJS International mun byggja sóknina á gamla og nýja markaði á víðtækari lausnum en áður. 4)Nafni Hugar UK í Skotlandi hefur verið breytt í EJS Limited og endurspeglar nafnbreyt- ingin breyttar áherslur. Fyrirtækinu er ætlað að selja fram- leiðsluvörur Hugar á Bretlandsmarkaði og annast þjónustu við kaupendur. Olgeir verður starfandi stjórnarformaður samstæðunnar, EJS Group, en samkvæmt breytingunum heyra núna fjögur dótturfélög undir hana - EJS, Hugur, EJS International og EJS Limited í Skotlandi. Þau eru ekki aðeins taflmennirnir í EJS-skákinni, þau eru sjálf EJS-fæðukeðjan! 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.