Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 92

Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 92
Lággjaldaflugfélagið Go, sem er íslendingum að góðu kunnugt, hefur sameinast EasyJet sem er í eigu Grikkjans, Stelios Haji-loannou. Grikkinn Stelios Haji-Ioannou, eigandi lággjaldaflugfé- lagsins Easyjet, kaupir Go fyrir 400 milljónir punda af fyrrum starfsmönnum Go. Grikkinn er ordinn óseðj- andi og kominn á mikió flug. Hann hefur hrist hressi- lega upp i markaöi lággjaldaflugfélaga. Eftir Sigrúnu Davíðsdóttur í London Hvernig fer ég að þvi að vinna mér inn fyrir tveimur flug- miðum frá London til Dyflinnar? Með því að ganga í hálf- tíma inn í miðbæ Lundúna og svo heim aftur í stað þess að taka neðanjarðarlestina. Ef strákurinn minn gerir það sama þá spörum við 7,60 pund. Með því að sleppa lestinni tvisvar og bæta við 80 pensum erum við búin að vinna okkur inn 16 pund sem duga okkur fyrir tveimur flugmiðum til Dyflinnar - báðar leiðir. En þangað gengur maður ekki með góðu móti frá London. Flugferðina get ég farið í dýrðlegu boði Ryanair, stærsta lággjaldaflugfélags í Evrópu. Allt bendir núna til að það verði ekki lengur stærsta lággjaldaflugfélagið. Flugfélagið Easyjet stefnir að því að kaupa Go, sem er Islendingum að góðu kunnugt, og skjóta Ryanair aftur fyrir sig. Lúslágt verðið á farseðlinum til Dyflinnar kemur ekki til af góðu. Flugfélögin, sem keppa á flugleiðinni, snartapa á ódýrustu miðunum. Þau hafa hins vegar bætt sér það upp annars staðar þótt verðið á þeim leiðum þyki lágt miðað við tilboð gömlu flugfélaganna. Grikkinn Stelios Haji-loannou En það eru líka önnur og stærri reikningsdæmi í þessum geira. Grikkinn Stelios Haji-Ioannou var ekki nema 28 ára þegar hann krækti sér í flugvél árið 1995 og lét hana fljúga frá Luton-flugvefli til Glasgow og Edinborgar. Luton flugvöflurinn er fjórði flugvöflurinn við London á eftir Heathrow, Gatwick og Stansted. Peningana fékk hann frá Jjölskyldu sinni - sem safnaði þeim örugglega á annan hátt en að sleppa því að taka neðanjarðarlestina í London. Með hjálp fjölskyldupeninganna þurfti hann ekki að sannfæra banka um gróðavonina sem lægi í því að fljúga með fólk á fastandi maga. Hvað um það, velgengni Stelios Haji-Ioannou hefur verið mikil. Iikt og Richard Branson hefur nýtt sér Virgin-nafnið í fleiri atvinnugreinum en fluginu þá hefur Haji-Ioannou skotið rótum viðar, t.d. í Easy-netkaffihúsum og Easy-bílaleigum. Fleira á eftir að fylgja. British Airways Stofnaði Go Það var aðeins fyrir fimm árum, eða árið 1997, sem British Airways stofnaði lággjaldaflugfélagið Go með ofurfallegu lógói (sem nú hverfur fyrir hallærislega appel- sínugula Easyjet lógóinu) og allt gekk vel. Einhverjir umluðu um hvort British Airways væri ekki þar með að höggva í sundur greinina á trénu sem það sjálft situr á. En bjargföst trú British Airways var að lágfargjaldafélögin freistuðu aðeins þeirra sem flygju vegna lága verðsins, efla sætu þeir heima. Rökin voru þau að „bisnessmennirnir“ myndu eftir sem áður fúslega borga ofur- verð fyrir mat á plastbökkum og enn meira fyrir kampavín í gler- glösum. „Bisnessmenn" með lággjaldaflugfélögum En margur heldur mig sig. Undanfarin ár hafa æ fleiri bisnessmenn fúslega sest án plastbakka og kampavíns við hliðina á almúganum hjá lággjalda- flugfélögunum. Sparnaðinn geta þeir notað í heila kampavíns- flösku á áfangastað, farmiða fyrir einhvern sem þá langaði að taka með sér eða bara nýtt hann sem sparnað. Vaxandi hlutdeild „bisnessmanna" hjá lággjaldaflugfélögunum hefur snarbreytt aðstæðum gömlu flugfélaganna. Það eru því fleiri en Flugleiðir sem hafa lagt niður eða ætla að leggja niður plastbakkamatinn. Ef af hvetju seldi British Airways þá Go fyrir 11 mánuðum, fyrst allt gekk svona vel? Menn greinir nokkuð á um það. Sumir segja að forráðamenn þess hafi áttað sig á að BA var í raun að keppa við sjálft sig. Aðrir segja að British Airways hafi þurft að selja Go til að hafa eitthvað upp í 8 milljarða punda skuld sína. Barbara Castani byggði G0 upp Það var Barbara Castani, stjórn- unarráðgjafi um fertugt, sem byggði Go upp. Hana tók sárt að sjá á eftir fyrirtækinu „sínu“ í hendur vandalausra, svo að hún og nokkrir samstarfsmenn fengu tjárfestingafélagið 3i til að flár- magna kaupin á Go fyrir 100 mifljónir punda. Sjálf á hún 4%, en 3i á 67,5% hlut. Þess má geta að kampavínsfyrirtækið Gula ekkjan, Veuve Cliquot, kaus Barböru þessa Castani nýlega sem við- skiptakonu ársins í árlegri útnefningu sinni og þótti það ekki umdeilt val. Grikkinn og Castani komin í hár saman En hvernig skyldi for- ráðamönnum British Airways liða núna, 11 mánuðum seinna, þegar þeir sjá að verðið á Go hefur stokkið úr 100 mifljónum punda í þær 400-500 milljónir punda sem Grikkinn Stelios Haji- Ioannou reiðir fram ef aflt gengur upp? Þeir þegja þunnu hljóði, 92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.