Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 63
MENNTUN IVIBfl-NÁM
anstendur af 15 námskeiðum, 3 námstefnum erlendis og loka-
verkefni. Samstarfsskólar eru: Erasmus-háskólinn í Rotterdam,
Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn, Kölnarháskóli í Þýska-
landi, Viðskiptaháskólinn í Aþenu, Fylkisháskólinn í Georgíu í
Bandaríkjunum, Viðskiptaháskólinn í Bergen, Háskólinn í
Denver, ESADE í Barcelóna og EGADE-háskólinn í Monterrey,
Mexíkó. Kennarar eru sérfræðingar HR en auk þess kemur um
helmingur kennara frá samstarfsskólum erlendis sem gefur
náminu alþjóðlegt viðmið og eykur gæði þess. Kennt er á ensku.
MBA-nám með áherslu á mannauðsstjórnun í náminu er lögð
sérstök áhersla á mannauðsstjórnun og haldin verða sérhæfð
námskeið á sviði mannauðsstjórnunar. Það tekur 21 mánuð að
ljúka náminu og skiptist námstíminn í fjögur misseri. Námið
gefur 45 einingar og samanstendur af 14 námskeiðum auk loka-
verkefnis. Hægt er að bæta við sig sérsniðnum viðbótarnám-
skeiðum og rannsóknartengdu verkefni og ljúka 60 eininga
M.Sc.-gráðu í mannauðsstjórnun (tekur 2 ár til viðbótar). Að af-
loknu fyrsta námsári gefst nemendum tækifæri til að sækja
námskeið við erlenda samstarfsskóla og verkefnavinnu í alþjóð-
legum fyrirtækjum gegnum þátttöku í sumarnámi sem HR er
aðili að.
Að náminu koma sérfræðingar HR á sviði mannauðsstjórn-
unar og viðskipta, sérfræðingar úr atvinnulifinu og kennarar á
um þriðjungi námskeiða eru erlendir sérfræðingar frá skólum á
borð við London School of Economics, University of Minnesota
og Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfii. Kennsla fer að mestu
leytí fram á íslensku en á sumum námskeiðum á ensku. Sér-
hæfð námskeið á sviði mannauðsstjórnunar eru: Stefnumótun í
starfsmannamálum, Þjálfun og starfsþróun, Vinnumarkaðs-
fræði, Mönnun og ráðningar, Vinnuréttur, Frammistöðu-
stjórnun og Laun og umbun. SH
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Staðarnám á
Bifröst
Viðskiptaháskólinn á Bifröst hefur ekki boðið MBA-nám
fram til þessa en stefnt er að því að bjóða upp á slíkt nám
frá og með haustinu 2003, að sögn Runólfs Ágústssonar
skólameistara.
„Sérstakur þróunarhópur er að taka til starfa en hann
verður skipaður fulltrúum háskólans og atvinnulífsins," segir
Runólfur. „Hann á að ákvarða um innihald námsins og fyrir-
komulag. Ljóst er þó að væntanlega verður hér um að ræða
11 mánaða 45 eininga staðarnám á Bifröst í samstarfi við
erlenda háskóla. Þetta fyrirkomulag er öðruvísi en hjá HÍ og
HR sem báðir eru með hlutanám með vinnu. Fyrirkomulagið
er hins vegar þekkt víða erlendis við suma af þekktustu við-
skiptaháskólum heimsins og má sem dæmi nefna að margir
íslendingar hafa lokið MBA-námi frá Edinborgarháskóla með
þessum hætti.“ S9
Runólfur Ágústsson, skólameistari á Bifröst: „MBA-nám verður í boði
á Bifröst frá og með haustinu 2003. “
63