Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 88
SÉRBLAÐ UM FIIMIMLAIMD
„Þrjú helstu vörumerkin okkar frá Finnlandi eiga það sammerkt að vera sérlega vandaðar
og þekktar vörurf segir Guðmundur K. Björnsson framkvæmdastjóri.
Hackman Hackman eldhúsvörur, pottar
og pönnur og önnur áhöld til elda-
mennsku, hafa lengi fengist hjá Ásbirni
Olafssyni ehf. Þekktastir eru sennilega
Polaris-pottarnir, sem í dag eru framleiddir
undir merkjum Hackman. Hackman-pott-
arnir eru hágæða stálpottar og eru þeir til
í ýmsum verðflokkum, en allir eru þeir
með 40 ára ábyrgð.
Nýjasta línan frá Hackman er Tools, en
undir því merki fást í dag pottar, pönnur,
skálar, hnífapör og ýmiskonar eldhúsá-
höld. Þessi vara hefur hlotið mikla athygli
og ijölda hönnunarverðlauna. Fjöldi
þekktra hönnuða og arkitekta hefur komið
að hönnun á Hackman-vörunum.
littala glervörur Finnskar glervörur eru
í hæsta gæðaflokki og finnskir hönnuðir
þekktir fýrir framsækna og klassíska
hönnun. Það kemur því engum á óvart að
eitt frægasta vörumerki heims í glervöru
skuli vera frá Finnlandi en þaðan kemur
Iittala sem síðustu 70 árin eða svo hefur
borið höfuð og herðar yfir aðra glerfram-
leiðendur. Fjölmargir heimsþekktir hönn-
uðir hafa hannað fýrir Iittala og má nefna
nöfn eins og Alvar Aalto sem hannaði vas-
ann sem sennilega er þekktasti glervasi
heims árið 1936, en sá er enn í framleiðslu
óbreyttur og ekki að sjá að vinsældir hans
Finnsk hönnun frábær
Fyrirtækið sem framleiðir Nokia-stígvélin
er í bænum Nokia, sem er skammt frá
Helsinki, en Ásbjörn Ólafsson flytur þau
inn. Sögu Nokia-stígvélanna má rekja aftur til
ársins 1898, og enn í dag er hvert einasta stíg-
vél handgert, sett saman úr 20 hlutum. I lok
framleiðsluferlisins þarf hvert par að standast
strangt gæðaeftirlit. Nokia-gúmmístígvélin
eru sennilega þekktust hjá þeim sem þurfa
starfs síns vegna að nota stígvél mikið, meðal annars vegna
þess að þau eru fótlaga og sérstaklega endingargóð. Nokia-
stígvélin henta börnum sérlega vel, þar sem þau eru létt, stöm
og falla vel að fæti. Þess má einnig geta að Nokia er eini
stígvélaframleiðandinn á Norðurlöndum og sá stærsti á ESB-
svæðinu.
Leaf lakkrískonfehl með meiru Ásbjörn ólafsson hefur alltaf
flutt inn talsvert af sælgæti og eitt af þekktari merkjum fyrir-
tækisins er Allsorts lakkrískonfekt en það er framleitt af
finnsku fýrirtæki sem heitir Leaf og er mjög stór sælgætisfram-
leiðandi þar í landi. „Við kaupum reyndar íleira frá þeim, eins
og bland í poka og lakkrískrítar (skólakrítarnar) sem flestir
þekkja,“ segir Guðmundur.
séu neitt að dala. (Þess má einnig geta að
Alvar Aalto teiknaði Norræna húsið á íslandi).
Önnur gömul og alveg sígild hönnun er gler-
lína eftir Aino Aalto sem teiknuð var árið 1932
sem þriðja kynslóð er að kaupa til heimilisins.
Af yngri hönnuðum má nefna Konstantin
Grcic, sem hannaði glasalínu sem passar ein-
staklega vel inn á nýtísku heimili. „Við erum
nú að endurmarkaðssetja Iittala á íslandi og
höfum bætt við okkur vörulínum frá þvf sem áður var,“ segir
Guðmundur. „Við höfum einnig bætt við söluaðilum og má t.d.
nefna að Tékkkristall og Blómabúð Akureyrar eru nýir sölu-
aðilar, en íyrir er Artform."
Þess má til gamans geta að hið heimsfræga tímarit Wall-
paper innréttaði á dögunum skrifstofubyggingu fyrir sig, og
urðu einungis vörur frá Hackman / Tools og Iittala fýrir valinu.
Gotf að Skipta við Finna Hvað varðar samskipti við Finnana
segir Guðmundur sérlega þægilegt að eiga við þá viðskipti. Allt
sem þeir segja standist og vörurnar sérlega vandaðar. „Mín
upplifun er sú að Finnar hafi hlýtt og notalegt viðmót, eins og
aðrar Norðurlandaþjóðir, og engin vandkvæði hafa komið upp
í samskiptum okkar á milli,“ segir Guðmundur að lokum. 33
/ /
Asbjörn Olafsson ehf.
hefur lengi flutt inn
vörur frá Finnlandi,
svo sem stígvél, bús-
áhöld og sælgæti.
88