Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 61

Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 61
IVl ENNTU N MBA-NÁM örugg og góð Jjárfesting fyrir þann sem á þess kost að fara í námið. I annan stað má gera greinarmun á útlögðum kostnaði og fórnarkostn- aði við það að fara í MBA-nám. Við sem stöndum að MBA-náminu í Háskóla Islands skipuleggjum það þannig að fórnarkostnaður verði sem minnstur. Þetta sést m.a. á því að námið er skipu- lagt þannig að hægt sé að vinna með þvi og að við leggjum áherslu á að fá til landsins færustu er- lenda gestafyrirlesara til að spara nemendum tíma í stað þess að þeim sé gert að fara utan. Þegar kemur að útlögðum kostnaði þá verður kennslugjaldið Jyrir MBA-námið 2002-2004 ein og hálf milljón króna. Auk þess verða nemendur að gera ráð íyrir að kaupa bækur Jyrir um 180.000 krónur. Allir nemendur verða að hafa far- tölvu og sé hún ekki til staðar þá má reikna með að hún kosti ríflega 200.000 krónur. Reynslan er að MBA-nemar líta á þennan kostnað sem Jjár- festingu og í mörgum tilvikum er það vinnuveit- andi MBA-nemans sem leggur út fyrir kostnaði. Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir auk þess lán Jyrir kennslugjaldinu til þeirra einstaklinga sem kjósa að fara þá leiðina við að Jjármagna námið. - Er hægt að stunda námið með vinnu? Svarið við þessari spurningu er eindregið já. Nánast allir þeir sem eru núna í MBA-náminu eru að vinna með þvi. Það eru kannski ekki allir í fullri vinnu og dæmi eru um það að nem- endur hafi dregið úr vinnu til að ná sem mestu úr MBA-náminu, t.d. fara í fleiri valnámskeið en þeir þurfa. Eins er það reynslan á seinna ári í náminu að MBA-nemar eru farnir að hafa tekjur af námsvinnunni. Námið er byggt á því að nemendur séu í virkum tengslum við fyrirtæki og vinni verkefni sem gagnast Jyrirtækj- unum. Samanlagt hafa nemendur unnið um eitt hundrað slík verkeJhi fyrir Jyrirtæki og stofnanir hér á landi. Gæði þessara verkefna eru slik að Jyrirtækin og stofnanirnar, sem þau eru unnin fyrir, eru farin að greiða Jyrir þau og hagnýta sér niður- stöðurnar beint í rekstri sínum. - Hverjir geta sótt um MBA-nám? Hverjar eru forliröJur? Meginreglan er að MBA-námið er lyrir alla þá sem hafa lokið háskólaprófi í einhverju fagi. Háskólaprófið eitt og sér er þó ekki nægilegt. Nokkurra ára reynslu af rekstri og stjórnunarstörfum er líka afar mikilvægur undanfari íyrir MBA-nám. Þetta þýðir að meðalaldur MBA-nemenda er nær fertugu en þrítugu og að hópurinn sem sækir MBA-námið er með afar Jjölbreyttan bak- grunn. Þetta sést best á nemendahópnum sem stundar MBA- námið í Háskóla íslands núna, sjá www.mba.is. - Hversu margir hafa sótt um fyrir næsta ár? Nú eru 45 nemendur sem ljúka MBA-náminu. Þeir verða fyrstír til að útskrifast með MBA-gráðu frá Háskóla íslands og reyndar þeir íýrstu sem fá gráðuna frá íslenskum háskóla. Nýr hópur mun hefja nám í september nk. og það hafa fleiri sótt um en við getum tekið á mótí. 55 manns komust að haustið 2000 og likleg- ast verður Jjöldinn svipaður nú. - Hvar nýtist það best og hvaða réttíndi gefur það? Þeir sem ljúka MBA-námi frá Háskóla íslands útskrifast með meistaragráðu. Þeir eins og aðrir sem lokið hafa MBA-námi frá viðurkenndum háskóla fá rétt til að nota starfsheitíð viðskipta- fræðingur. Við sem stöndum að MBA-náminu í Háskóla Isands erum þess fullviss að sá kostur sem við erum að bjóða upp á sé almennt mjög hagnýtur, árangursríkur og fræðilega traustur. Þetta nám nýtíst mjög víða og miðar fyrst og fremst að því að gera einstaklinginn víðsýnni, hæfari og betri til að takast á við stjórnun Jyrirtækja og stofnana. Við erum með nemendur sem koma úr nánast öllum geirum athafnalífsins, þ.e. bæði fólk sem vinnur hjá stórum og smáum fyrirtækjum og fólk sem er í ábyrgðarstörfum í opinberum stofnunum. MBA-námið í Háskóla Islands gefur þannig breiða almenna færni í viðskipta- fræði og stjórnun, auk þess sem MBA-nemendur geta með skynsamlegu vali á valfögum náð sér til viðbótar í ákveðna sér- þekkingu, t.d. í stefnumiðaðri stjórnun, markaðsfræði, mannauðsstjórnun, rekstrarsJjórnun, Jjármálum og reiknings- haldi svo eitthvað sé nefnt. - Eitthvað fleira sem þú vilt segja um námið? Engin lýsing á MBA-náminu er fullkomlega tæmandi. Mikilvæg- ast er að undirstrika það að MBA-námið í Háskóla Islands er í stöðugri þróun. Við litum á það sem lykilatriði að virkja alla þá sem koma að náminu með einum eða öðrum hættí. I raun má segja að samstarf og samvirkni séu lykilorðin í rekstri námsins. MBA-námið er á vegum viðskiptaskorar viðskipta- og hagfræði- deildar Háskóla íslands. Við höfum svo gert samning við Endur- menntun Háskóla íslands um ákveðna þættí í framkvæmd námsins. Við sækjumst eftír að fá tíl liðs við okkur afar hæfa kennara úr öðrum deildum skólans, einnig reynda stjórnendur úr atvinnulifinu og þá færustu erlenda fyrirlesara sem við eigum völ á á hverjum tíma. Eg hef með mér í náminu mjög virka stjórn, góða og samhenta kennara og afar góðan hóp nemenda. Ég vil að lokum segja það að ég lít á það sem afar mikilvægt atriði í hlutverki mínu sem forstöðumanns námsins að virkja fólk með mér og eiga þátt í að tengja saman þá sem hafa hag af því að ná saman. Það er ávinningurinn íýrir hvern og einn sem ræður úrslitum um orðspor og gæði námsins. 33 Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, dósent í viðskiþta- og hagfræðideild Háskóla Islands: „Nokkurra ára reynslu afrekstri og stjórnunarstörfum er líka afar mikilvægur undan- fari jyrir MBA-nám. “ 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.