Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 60

Frjáls verslun - 01.04.2002, Blaðsíða 60
Menntun MBA-nám MBA á íslandi / Fyrstu MBA-nemarnir frá Háskóla Islands útskrifast nú íjúní en áðurþurftu þeir sem höfðu hug á slíku námi að fara til útlanda. Háskólinn í Reykjavík og Háskóli íslands bjóða báðir uþp á MBA-nám en á Bifröst verður boðið upp á það frá og með haustinu 2003. Eftir Vigsísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson MBA við Háskóla íslands - Hvers konar nám er MBA-nám? MBA-námið er spennandi möguleiki fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa háskóla- prófi í einhverju fagi; t.d. verkfræði, lög- fræði, læknisfræði, viðskiptaífæði, hjúkr- unarfræði, kennslufræði, líffræði, félags- fræði eða listum; og hafa umtalsverða starfs- og stjórnunarreynslu til að verða sér úti um aukna þekkingu og færni í við- skiptafræði og stjórnun. Þeir sem ljúka náminu útskrifast með MBA-gráðu, sem er meistaragráða C,Master of Business Administration"). MBA-gráðan er vel þekkt og alþjóðlega viður- kennd. Af þeim sökum er MBA-nám keimlíkt hvar sem er í heiminum. Það styrkist og endurspeglast af því að óháðir aðilar, eins og td. AMBA (Association of MBA's), gefa út viðmið um MBA-nám og taka að sér að votta slíkt nám. MBA-námið í Háskóla Islands hefur verið þróað með hliðsjón af þessum viðmiðum og einnig með hliðsjón af samanburðar- rannsóknum sem við gerum á góðum MBA-skólum erlendis. MBA-námið í Háskóla Islands er 45 eininga nám sem skiptíst í kjarna og valfög. I kjarnanum eru ellefu fög sem gefa haldgóða þekkingu á viðskiptafræði og stjórnun, sjá upplýsingar á www.mba.is. Valfögin sem nemendur hafa haft úr að velja, núna vorið 2002, eru tíu talsins. Hver nemandi verður að taka minnst þijú valfög og vinna lokaverkefiii. Hann getur þó sleppt loka- verkefni og tekið flórða valfagið. Margir nemendur gera það, ekki síst vegna þess að flestum námskeiðum lýkur með raun- verkefni sem unnið er fyrir eða í samstarfi við eitthvert fyrirtæki og þau verkefni eru í raun eins og lokaverkefni. Það sem er sér- stakt við valfögin hjá okkur er að þau eru þróuð i samræmi við óskir nemendanna um sérsvið og áherslur. - Hversu langt er námið? Þetta er 45 eininga nám. Það stendur yfir í tæp tvö ár og skiptíst í fjögur misseri. Nemendurnir sem hófu námið í september árið 2000 eru að útskrifast núna í júní 2002. MBA-námið fer fram síðla dags og fram á kvöld tvo daga í viku, mánudaga og fimmtu- daga. Meginreglan er að hvert námskeið standi yfir í níu vikur og að nemandinn sæki tvö námskeið það tímabil. Nokkur námskeið voru haldin sér, þannig að þá var námstíminn ijórar og hálf vika. Milli námskeiða er hlé í eina viku og milli missera er námshléið lengra allt eftír því hvenær ársins hléið er. Sumarhléið er tveir mánuðir. - Hvemig hefur MBA-námið gengið fyrir sig íHÍ? MBA-námið í Háskóla Islands hefur gengið mjög vel í þau tæpu tvö ár sem liðin eru frá þvi að fyrstu nemendurnir hófu námið. Það fór, held ég, ekki framhjá neinum þegar við kynntum þá ákvörðun að bjóða upp á MBA-námið vorið 2000. Sú ákvörðun var mjög eðlilegt skref í þróun viðskiptafræðináms hér á landi, sérstaklega í ljósi þess að það er að verða mun algengara að háskólamenntað fólk sæki sér meiri menntun en þá sem fyrsta háskólagráðan er til vitnis um. Eg vil undirstrika að þeir sem lokið hafa fyrstu háskólagráðu og vilja mennta sig frekar í viðskiptafræði hafa úr mörgum kostum að velja hjá okkur. Við hófum kennslu á nokkrum sérsviðum til MS-prófs í viðskiptafræði árið 1997 og nemendum hefur fyölgað jafnt og þétt í MS-náminu. Við munum svo í haust bjóða velkomna fyrstu nemendurna í MA-nám í mannauðsstjórnun. MS- og MA-námið flokkast undir rann- sóknartengt framhaldsnám í viðskiptafræði og miðar að sérhæf- ingu á afmörkuðum sviðum, eins og stjórnun og stefnumótun, fjármáluin, markaðsfræði og mannauðsstjórnun svo dæmi séu tekin. MBA-námið er öðru vísi og það hefur mikla sérstöðu. Það flokkast ekki undir rannsóknartengt framhaldsnám og það er ætlað þeim sem þegar hafa mikla starfsreynslu. Erlendis er þetta nám gjarnan nefnt „executive MBA“. MBA-námið er ætlað þeim sem vilja styrkja þekkingu sína almennt í viðskiptafræði og sérstaklega öðlast forsendur tíl að stóreflast sem stjórnendur. - Hvað kostar MBA-nám? Það er að nokkru að hyggja þegar talað er um kostnað við að fara í MBA-nám. I fyrsta lagi er það spurning hvort rétt sé að tala um kostnað, þar sem þetta er í raun fjárfesting og líklega afar Boðið hefur verið upp á MBA- nám sl. tvö ár. Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, dósent í við- skipta- og hagfrœðideild Háskóla / Islands, er forstöðumaður MBA- / námsins í Háskóla Islands og situr hér fyrir svörum. 60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.