Frjáls verslun - 01.04.2002, Síða 19
Hafþór Hajsteinsson, forstjóri Atlanta. „Þessari sþurningu hefur verið velt uþþ í fjölmiðlum öðru hverju en þessi tvö flugfélög hafa mjög ólíka starf-
semi. Flugleiðir eru ferðaþjónustufyrirtœki með hótel, bílaleigur o.s.frv. Við erum eingöngu í flugrekstri, í því sem við kunnum best, en höfum átt
ágætis samstarf við Flugleiðir ígegnum tíðina. Okkur finnst starjsemin bara það ólík að sameining henti ekki. “
gera út 43 botur
- Kemur sameining til greina af ykkar hálfu, t.d. við Atlanta?
„Við höfum aldrei verið í viðræðum við þá og höfum ekkert
velt því fyrir okkur,“ svarar Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða. „Þeir eru í allt öðruvísi rekstri en við. Atlanta er
aðallega í leiguflugi fyrir önnur flugfélög, svipað og við ger-
um í okkar leiguflugi. Þeir eru á allt öðrum markaði en við, í
stórum vélum og með allt aðra kjarasamninga við sitt starfs-
fólk en Flugleiðir. Þeir hafa langtum sveigjanlegri starfsemi
og vinna nær eingöngu erlendis.“
19 þotur hjá Atlanta Flugfélagið Atlanta, sem er í eigu hjón-
anna Arngríms Jóhannssonar og Þóru Guðmundsdóttur, er
stærsta íslenska flugfélagið ef tekið er tillit til þotu-, sæta-
fjölda eða fraktrýmis en ekki ef litið er til veltunnar. Atlanta er
með 19 þotur í rekstri og eru það stærstu þoturnar á markað-
num. Félagið var með 19 þotur af tveimur gerðum, Boeing
767, sem tekur 290-325 farþega, og Boeing 747, sem tekur
472 farþega. Félagið er þó að minnka við sig um þessar
mundir, láta frá sér fjórar af stóru vélunum og taka inn tvær
minni, Boeing 767, þar sem minni flugvélar hæfa markaðnum
betur. Flugflotann munu því skipa 14 Boeing 747 vélar og 5
Boeing 767 vélar frá byrjun júnímánaðar.
Ársreikningar Atlanta 2001 höfðu ekki verið kynntir opin-
berlega þegar þessi grein var unnin en Hafþór Hafsteins-
son, forstjóri fyrirtækisins, sagði í samtali við blaðamann
að veltan hefði numið rúmum 20 milljörðum króna í fyrra og
reksturinn hafi skilað 150 milljóna króna hagnaði eftir skatta,
þrátt fyrir áfallið í Bandaríkjunum 11. september. Atlanta á
þegar tvær 747 þotur og er með ljórar Boeing 747 þotur til
viðbótar á þriggja til fimm ára kaupleigu, og tvær Boeing 767
vélar á tíu ára kaupleigu. Hinar vélarnar er fyrirtækið með á
leigu. Heildarverðmæti vélanna er um 7 milljarðar króna.
Samningar Atlanta eru sveigjanlegri en hjá Flugleiðum.
„Við reynum alltaf að gæta þess að ná þannig samningum að
leigutími á flugvélum sé í samræmi við verkefni vélarinnar
þannig að við ábyrgjumst aðeins leigu í þann tima sem verkefn-
ið stendur. Ef um lengri samninga er að ræða eru leigukjörin
hagstæðari og þá höfum við yfirleitt borgað fasta mánaðarleigu
„Við erum alltaf að skoða ný tækrfæri og þá fyrst og fremst úti í heimi. Við erum að gera ýmsa nýja
hluti erlendis, t.d. að stofna flugfélag á Spáni, Pullmantur flir, í samvinnu við eina af stærstu ferða-
skrifstofunum þar, Pullmantur, sem selur mestmegnis ferðir með skemmtiferðaskipum“ segir
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta.
19