Frjáls verslun - 01.04.2002, Síða 31
FJÁRMÁL LÍFTÍMI deCODE
Morgan Stanley gerir ráð fyrir mikilli tekjuaukningu hjá deCODE á
næstu árum vegna þeirra samninga sem gerðir hafa verið við önnur
fyrirtœki sem og fjölbreyttari afurðir ogfleiri tekjuþóstar.
Skuldir deCODE
(I milljúnum Bandaríkjadala)
90,9
31/03/01 30/06/01 30/09/01 31/12/01 31/03/02
Skuldir deCODEjukust um 69,4 milljónir dala á síðustu tólfmánuðum.
Mest vegna húsbyggingarinnar og tækjakauþa.
Handbært fé deCODE (í milljónum Bandaríkjadala)
31/03/01 30/06/01 30/09/01 31/12/01 31/03/02
DeCODE hefur digra sjóði. Atts 147,1 milljón dala var til ráðstöfunar í
handbæru fé í endaðan mars.
31/03/01 30/06/01 30/09/01 31/12/01 31/03/02
Eigið fé deCODE var í endaðan mars sl. 248,0 milljónir dala. Aukn-
ingin stafar afhlutafjáraukningu vegna kauþanna á MediChem í lok
mars, en greitt var fyrir fyrirtækið með bréfum í deCODE.
þróa lyf út frá erfðafræði og genarannsóknum, þegar New York
Times birti frétt um það um miðjan apríl að Human Genome
Sciences, sem er leiðandi fyrirtæki í genarannsóknum og lyfja-
þróun í Bandaríkjunum, hafi hætt við framleiðslu á einu af lyljum
sínum sem byggði á genarannsóknum og átti að vinna gegn sýk-
ingu hjá krabbameinssjúklingum. Human Genome taldi að lyfið
hefði ekki verið nægilega virkt í prófunum. I fréttinni sagði að
fyrirtækið ætlaði að snúa sér að framleiðslu sambærilegs lyfs
sem byggi á hefðbundnum aðferðum. Ennfremur sagði New
York Times að þetta áfall Human Genome sýndi að erfða-
fræðirannsóknir muni ekki endilega flýta því að fleiri lyf komi á
markað nema mun meiri vinna komi til. I mati á því hvor að-
ferðin sé betri má auðvitað ekki horfa fram hjá þvi að lyf, sem
byggja á hefðbundnum aðferðum, eru líka slegin reglulega af.
Mælt með kaupum upp að genginu 12,50 Þessi uppákoma hjá
Human Genome var um miðjan apríl. Nokkur þekkt greiningar-
fyrirtæki í Bandaríkjunum, eins og Lehman Brothers og JP
Morgan, mæltu engu að síður með kaupum á hlutabréfum í
deCODE um mánuði síðar, eða 15. maí, þegar deCODE birti
afkomutölur fyrir fyrsta ársijórðung. Þau rökstuddu það með þvi
að framtíðartekjur þess ættu eftir að aukast og taprekstrinum að
linna innan nokkurra ára og upp rynnu tímar hagnaðar. Lehman
Brothers mælir t.d. með kaupum í deCODE upp að genginu
12,50. Raunar sýna dæmin að bandarísk íjármálafyrirtæki, sem
greina og meta framtíð annarra fyrirtækja fyrir fjárfesta, eru
langt frá þvi að vera óskeikul. Fyrir liggur lika að Alþingi Islend-
inga hefur tröllatrú á fyrirtækinu og samþykkti nýlega að gefa
tjármálaráðherra leyfi til að veita því ríkisábyrgð fyrir 20 millj-
arða króna skuldabréfaútgáfu til sjö ára, útgáfu sem sögð er hafa
sjálfvirka skilmála um breytingu á því yfir i hlutabréf fari allt í
óeftii og við það félli ríkisábyrgðin niður. Fjárhæðina á að nota til
að byggja upp lyfjaþróunardeild Islenskrar erfðagreiningar hér
á landi. Að vísu gekk það ekki hávaðalaust fyrir sig. Það er langt
síðan að jafnmargir forkólfar í íslensku atvinnulifi hafa andmælt
einu máli. Rök þeirra voru að áhættan væri svo mikil að frekar
ætti að nefna þetta gjöf en ábyrgð, ekki ætti að gera upp á milli
fyrirtækja og hið opinbera ætti frekar að draga úr ríkisafskiptum
en auka þau. Takið eftir að hér er ekki um það að ræða að flytja
efnafræðifyrirtækið MediChem, sem deCODE keypti í mars sl.,
heim til íslands, það verður áfram úti í Chicago, heldur er um
uppbyggingu á nýrri lytjaþróunardeild að ræða.
Hollywood-tjald? Frá fyrstu dögum deCODE hefur mátt skilja
ýmsa harða andstæðinga þess á þá leið að þeir telji að allt dæmið
gangi út á einhvers konar sjónarspil til að ná inn miklu fé frá íjár-
festum til að spila með - að tilurð fyrirtækisins snúist frekar um
ljármál en vísindi. Samkvæmt þessu líta þeir á hina glæsilegu
byggingu íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni, dóttur-
félags deCODE, sem leiktjald, Hollywood-tjald, og að þeir 500
vísindamenn sem þar starfa séu leikarar undir stjórn Kára Stef-
ánssonar. En er þetta trúverðug nálgun á dæminu? Má þá ekki
allt eins spyija sig að því hvort liftækni og lytjaþróun sem
atvinnugrein sé ein stór blekking, að öll þau fyrirtæki sem fást
31