Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2002, Side 37

Frjáls verslun - 01.04.2002, Side 37
SÉRFRÆÐINGAR SPÁ í SPILIN Spumingin til Guðjóns Amgrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, erþessi: Flugleiðir hafa auglýst íslandsferðir í hreskum lestarstöðvum undanfarið undir yfirskriftinni Fancy a Dirty Weekend. Hvernig rökstyðurþú auglýs- ingaherferð undir þessari forskrift og hvaða árangur hefur hún borið? Hvers vegna yfirskriftin Fancy a Dirty Weekend? Flugleiðir hafa í samvinnu við Ferðamálaráð auglýst töluvert í lestarstöðvum í Bretlandi í vetur, og einnig reyndar í Frakklandi og Þýskalandi, með frábærum árangri. Herferðin í Bredandi byggðist á því að kynna stuttar ævintýralegar vetrarferðir til Islands með því að sýna á veggspjöldum stórar glæsilegar lit- myndir frá íslandi með texta sem innihélt orðaleik, eða öfugmæli í gamansömum dúr. Þannig var t.d. sýnd flott mynd af vélsleða- akstri uppi á jökli og undir stóð Dodgems, sem þýða má sem gamaldags klessubíla. Mat- gæðingaferð var auglýst með stórri ljósmynd af fólki útí að borða á mjög huggulegum reyk- vískum veitingastað, en undir stóð Fish and Chips, sem þykir ekki beint hátíðakostur. Undir stórfenglegri ljósmynd af þeysireið á íslenskum hestum í íslensku landslagi stóð Donkey Ride, eða asnaferð. Heilsuferð var auglýst með mynd af pari í Bláa lóninu sem brosti framan í myndavélina með hvíta leðjuna í andlitinu, og undir stóð Fancy A Dirty Week- end? Fleiri veggspjöld voru gerð í sama dúr. í þessari herferð, sem enska auglýsinga- stofan BSP Creative vann með skrifstofu Flugleiða í London, er stuðst við ákveðið þema. Það byggir á sögufrægum ferðalögum Englendinga á sjötta og sjöunda áratugnum til þekktra strandbæja eins og Blackpool og Brighton. Þar ríkti ákveðin stemmning (Carry-on myndirnar lýsa henni vel) sem sveipuð er saknaðarljóma í hugum margra Breta sem núna eru á besta aldri - þeirra sem þá voru börn, en eru nú markhópur aug- lýsinganna. Heiti ferðapakkanna til íslands eru m.a. upprifjun á auglýsingaslagorðum og hugtökum frá þessum tíma, sem nú þykja svolítið fýndin. Líkt og gömul íslensk auglýs- ingaslagorð. Það er því misskilningur að heil auglýs- ingaherferð byggi á setningunni Fancy A Dirty Weekend? því að sú setning er aðeins lítill hluti af heildinni. Þar er að sjálfsögðu verið að beita tvíræðni, annars vegar hinum „skítugu" andlitum sem blasa við fyrir ofan textann og hinsvegar er verið að höfða til para og þau hvött til að skella sér í endurnærandi helgarfií, án barna. í þessu er létt erótísk gam- ansemi. Auglýsingunni er iýrst og fremst beint til hjóna eða sambúðarfólks, og fremur til kvenna en karla. Það eru konurnar ekki síður en karlarnir sem taka ákvarðanir um ferðalög af þessu tagi. Þessi auglýsingaherferð hefur gengið afar vel og ferðamönnum tfá Bretiandi Jjölgaði um 17% á fyrstu þremur mánuðum ársins, og þó ekki sé hægt að fullyrða að aukninguna megi alla rekja beint til auglýsinganna, þykja þær grípandi og kraftmiklar. Og enginn í Bretíandi hefur óskað eftir rökstuðningi! Eftir 11. sept- ember settu Flugleiðir aukinn kraft í markaðs- setningu Islands erlendis með þeim árangri að ferðamönnum til landsins hefur tjölgað fremur en fækkað. Meðal annars hefur í mjög auknum mæli verið notast við veggspjöld í neðanjarðarlestunum í London og París, þar sem höfðað er til yngri og kröfuharðari hluta markaðarins en áður. m Guðjón flrngrímsson, upplýsingafulltrúi Flug- leiða, segir herferðina hafagengið velogferða- mönnum frá Bretlandi fjölgað um 17% á fyrstu þremur mánuðum ársins. „Það er að sjálfsögðu verið að beita tvíræðni, annars vegar hinum „skítugu" andlitum sem blasa við fyrir ofan textann og hins vegar er verið að höfða til para og þau hvött til að skella sér í endurnærandi helgarfrí, án barna. í þessu er létt erótísk gamansemi." 37

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.