Frjáls verslun - 01.04.2002, Side 53
RAFTÆKJAMARKAÐURINN PFflFF
í gegnum, fýrst þegar saumavélaiðn-
aðurinn fór og svo í því ástandi sem
hefur ríkt á heimilistækjamarkaði
undanfarin ár.“
- Hvað með sjálfa þig; ertu alin upp
í Pfaff eins og svo margir sem starfa
i fiölskyldufyrirtækjum?
„Nei, ég kom ekkert inn í fyrirtækið
fyrr en ég hafði lokið framhaldsnámi
í Bandaríkjunum árið 1991. Ég vann
alltaf í fiski á mínum skólaárum, í
ein sjö eða átta ár, því að mér fannst
afi og pabbi borga svo illa að ég hélt
að ég myndi ekki lifa veturinn af á
þeim launum. Ég tók mér frí eftir
stúdentspróf og var einkaritari hjá
framkvæmdastjóra Vífilfells í
nokkur ár áður en ég ákvað að fara í
háskólanám. Ég er viðskiptafræð-
ingur frá Háskóla íslands og er með
MBA-gráðu frá Bandaríkjunum. Þó
að ég sé af þessari fjölskyldu þá vann
ég aldrei í fyrirtækinu í fríum og tel
það að vissu leyti kost. Ég þekki ýmsan annan rekstur en
þennan,“ svarar hún og er ánægð með það hvernig kynslóða-
skiptin hafa gengið fyrir sig í fyrirtækinu.
,Afi, Magnús Þorgeirsson, var
óhræddur við að láta pabba taka við
stjórnartaumunum þegar hann var
ungur og pabbi hefur gert nákvæm-
lega það sama. Það ríkir fullkomið
traust milli kynslóða og það er mjög
gott að leita til pabba og fá ráðlegg-
ingar,“ svarar hún.
Aldrei fréttist neitt... Pfaff er sögu-
legt fyrirtæki þvi að Skuggaráðu-
neytið svokallaða hittist þar alltaf í
morgunkaffi í 40 ár. Skuggaráðu-
neytið fékk á sig þetta nafn þegar
stjórnmálamennirnir og fyrrverandi
ráðherrarnir Lúðvík Jósefsson og Al-
bert Guðmundsson fóru að koma í
morgunkaffi í Pfaff fimm daga vik-
unnar allan ársins hring. Þetta byij-
aði þannig að Magnús Þorgeirsson
og Lúðvík urðu bestu vinir eftir að
þeir kynntust á Viðskiptaþingi í
Moskvu um miðjan sjötta áratuginn.
Stuttu seinna fór Lúðvík að mæta í
kaffi í Pfaff og hélt hann þeim sið í tæp 40 ár og seinna byrjuðu
Albert og þeir hinir að mæta þar. Var mikið hlegið og gert
óspart grín en aldrei fréttist neitt út af þeim ,Jundum“! 33
Kristmann Magnússon, Ragnheiður Aradóttir, fyrsti
viðskiptavinur Pfaff og Magnús Þorgeirsson, stofhandi
Pfaffá Islandi, við fyrstu vélina sem Pfaffseldi. Ragn-
heiður keypti pá vél. Myndin var tekin á hálfrar aldar
afmœli Pfaff árið 1979 en fyrirtœkið hafði eignast vél-
ina nokkru áður.
Mynd úr einkasafni
Tdlvuvædd
S KJALAVISTUN
□ RLJGG VISTUN OG SKRANING I GEGNUM NETIÐ
SKJÖL aðsend og innanhúss með viðhengi og
MYNDUM. HÆGT AÐ TENGJA ÖLL. MAL VIÐ BREFALYKLA
FYRIRTÆKJA OG STOFNANA, DAFGREIDD MAL, FRESTUÐ MÁL,
MÁL í VINNSLU O.FL.
HÓPVINNU- □ G FUNDARGERÐARKERFI
SKOÐUN á stöðu mála og erinda á hverjum tíma,
SÖGU ÞEIRRA, HVER ER MEÐ MÁLIÐ HJÁ SER O.FL.
FU N DARG ERÐ ARKERFI. VlSTUN OG SKONNUN Á
PAPPÍRSSKJÖLUM.
ERINDREKI HENTAR OLLUM REKSTRI,
BOÐIÐ ER UPP Á SÉRSNIÐNAR UTGÁFUR,
T.D. FYRIR SVEITARFÉLÖB OG STOFNANIR.
s
KOSTIR
* ElNFÖLD OG FLJÓTVIRK LEIT, SPAF3AR TÍMA OG PENINGA.
* SÆKIÐ, SKDÐIÐ OG PRENTIÐ SKJÖL, T.D. Á FERÐALAGI.
* Leit eftir fjölbreyttum og öruggum
LEITARS Kl LYRÐUM.
* Dregur úr þörf fyrir ljósritun.
* LÆKKUN Á FLUTNINGS” og pappírskostnaði.
* Dregur úr þörf fyrir geymslupláss.
* Kemur í veg fyrir að skjöl týnist eða breytist
án vitundar.
* Kerfið er samofið Microsoft lausnum.
* TRYGGIR ÖRYGGI OG AÐGANG GAGNA.
ÁRMÚLI 2, 1 OS REYKJAVÍK,
. - SÍMI 569 5100, FAX 569 5251,
lir SKYRR@SKYRR.IS
53