Frjáls verslun - 01.04.2002, Page 56
Sigurður er mikill áhugamaður um útivist og íþróttir. Hann heldur
með Manchester United og Val, skokkar reglulega, hjólar og stundar
útivist afýmsu tagi.
starfsmanna. Sigurður er traustur vinur vina sinna, maður
sem sýnir stuðning í verki þegar gefur á bátinn hjá öðrum.
Hann er góður ijölskyldumaður sem mætti þó hafa meiri tima
til að vera með fjölskyldu sinni og dætrum.
Gallar Sigurður er frekar lokaður á sjálfan sig og sitt gagn-
vart utanaðkomandi og hleypir fólki ekki mjög nærri sér þó
að hann sé opinn og léttur í viðkynningu. Hann hefur haft
NÆRMYND SIGURÐUR G. GUÐJONSSON
ákaflega gaman af rökræðum í gegnum tíðina, svo mjög að
jafnvel má kalla hann þrasgjarnan. Hann vinnur gríðarlega
mikið og er því oft fjarvistum frá fjölskyldu. Hann á erfitt með
að neita þegar aðstoðar hans eða starfskrafta er óskað -
eiginleiki sem sumir telja kost og aðrir galla. Sigurður hefur
lengi átt náið samstarf við Jón Ólafsson, stjórnarformann og
eiganda Norðurljósa, og telja sumir að hann hafi goldið þess
að standa Jóni of nærri.
Félagsstörf Hann sat í varastjórn Lögmannafélags íslands
1989-1991 og var ritari stjórnar 1991-1993. Hefur setið í stjórn
Islenska útvarpsfélagsins hf. og skyldra félaga linnulítið frá
1991 og verið stjórnarformaður og stjórnarmaður. Hann var í
stjórn Kexverksmiðjunnar Fróns 1991-2000 og stjórnarfor-
maður trésmíðafyrirtækisins Sökkuls frá 1996. Árin 1985-
1987 sat hann í stjórn knattspyrnudeildar Vals. Árið 1996
leiddi hann kosningabaráttu Ólafs Ragnars Grímssonar,
frænda síns, ásamt öðrum úr atvinnulífinu. Sigurður hefur
ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og telst frjálslyndur þó að
ekki sé hann neins staðar flokksbundinn en hann hefur
ákveðnar skoðanir á einkarekstri. Sigurður er ekki í Kiwanis,
Rotary, Lions eða neinum slíkum félögum.
Áhugamál Áhugamálin eru fjölbreytileg. Sigurður fylgist
mikið með íþróttum og þá helst fótbolta. Hann heldur með
Manchester United og Val. Skíði og öll útivera, sem reynir á
líkamlegt þrek, er honum mikið áhugamál. Hann hefur
gaman af útivist af ýmsu tagi, hjólreiðum, hlaupum, skautum
og ijallgöngum. Hann reynir að hreyfa sig eitthvað á hverjum
degi og fór til að mynda með hjólið sitt vestur síðasta sumar
og hjólaði út í Lokinhamra og inn á Baulhúsaskriður.
Sigurður notar bækur og tónlist til að slappa af. Hann hlustar
þá m.a. á Bítlana, Rolling Stones, Pink Floyd og fleiri hljóm-
sveitir frá síðustu 30-40 árum. Þessi tónlistaráhugi á rætur að
rekja til þess þegar hann var gutti á Þingeyri en þá voru þeir
Nafn: Sigurður Guðni Guðjónsson.
Fæðingardagur: 8. nóvember 1951.
Foreldrar: Guðjón Jónsson rafvirkjameistari og Kristjana Guðrún Guð-
steinsdóttir húsfreyja á Þingeyri.
Fjölskylda: Kvæntur Láru Lúðvígsdóttur bankastarfsmanni. Þau eiga tvær
dætur, Eddu Sif, 17 ára, og Söndru Rún, 13 ára.
Menntun: Stúdent frá MA. Hann lauk cand. juris prófi frá HÍ1981. Fram-
haldsnám við Harvard Law School í Cambridge 1983-1984. Hdl. vorið 1982
og hrl. vorið 1988.
Ferill: Kenndi við Gagnfræðaskóla Sfykkishólms 1973-1975. Fulltrúi á Lög-
mannsstofu Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. í Reykjavík frá maí 1981 til 30.
júní 1985. Eigin lögmannsstofa í Reykjavík frá 1985. Forstjóri Norðurljósa frá
mars 2002.
Ahugamál: Öll útivera, knattspyrna, skíði, hjólreiðar, hlaup, skautar og tjall-
göngur. Notar bækur og tónlist til að slappa af. Myndlist.
56