Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 8

Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 8
Sigurður B. Stefánsson, framkuæmdastjóri Eignastýringar íslandsbanka. „Heildarfjármunir í uörslu og stýringu Eignastýringar eru nú tæpir 150 milljarðar króna.“ Eigiaflstyring íslandsbanka Góð hlutabréf eru besti fjárfestingarkosturinn í hefð- bundnu árferði, en skuldabréf gegna áuallt mikil- vægu hlutverki í eignasöfnum við að jafna tekju- strauminn með minni áhættu og stöðugri ávöxtun," segir Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Eignastýringar íslandsbanka. „Við núverandi aðstæður, þar sem markað- urinn er að jafna sig eftir niðursveiflu, er hins vegar skyn- samlegt að taka hvert skref gætilega og umbylta ekki eignasöfnum án góðrar ástæðu." Eignastýring Islandsbanka, sem áður hét VÍB, hefur um árabil sér- hæft sig í að ávaxta eignir fyrir viðskiptavini með fjárfestingum í inn- lendum og erlendum verðbréfum og sjóðum. Eignastýring býður meðal annars upp á úrval innlendra og erlendra verðbréfasjóða. Auk þess býður Eignastýring upp á alla almenna þjónustu fyrir viðskipta- vina sína, svo sem reglulegan sparnað í verðbréfum, kaup og sölu húsbréfa og annarra bréfa, vörslu verðbréfa og viðbótarlífeyrissparn- að. Viðskiptavinir Eignastýringar eru einstaklingar og heimili, fyrir- tæki, lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar. Jöfn og þétt aukning umsvifa „Það hefur verið mikill vöxtur í starfsemi Eignastýringar á liðnum árum. Það á ekki síst við um síðustu tvö og hálft ár jafnvel þótt mikil lækkun hafi orðið á verði hlutabréfa á alþjóðamarkaði," segir Sigurður. „Heildarfjármunir í vörslu og stýringu Eignastýringar eru nú tæpir 150 milljarðar króna." —B 8

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.