Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 57
Þróunarfélag Islands hf.
Hagsmunir hins almenna fjárfestis
Athygli vekur að lítil viðskipti eru með
bréf sumra félaga í Kauphöllinni sem
þýðir að seljanleikinn er lítill. Þórður
segir að stjórnendur Kauphallarinnar
hafi velt fyrir sér hvort bregðast ætti við
því með einhveijum hætti en megin-
sjónarmiðið sé það að gæta hagsmuna
hins almenna ijárfestis. Þó seljanleikinn
sé lítill sé ekki þar með sagt að það séu
hagsmunir hins almenna ijárfestis að
afskrá félagið. „Okkar markmið er að
það sé eðlileg og traust verðmyndun og
þá þurfa að vera viðskipti með bréfin.
Þetta er eitthvað sem við höfum
áhyggjur af og teljum að þurfi að
skoða,“ segir hann.
Afskráningar árið 2002
Þróunarfélag íslands Þróunarfélag
Islands hf. hefur sameinast Eignar-
haldsfélaginu Alþýðubankanum, EFA,
undir nafni Þróunarfélagsins en kenni-
tölu EFA þar sem það félag hafði ijár-
festingabankaleyfí. Gamla Þróunar-
félagið hefur því verið skráð af markaði
en sameinað fýrirtæki heldur áfram.
Lítil viðskipti hafa verið með bréf í íyrir-
tækinu.
Delta Lyijaíyrirtækin Delta hf. í Hafii-
arfirði og Pharmaco hf. í Garðabæ hafa
sameinast og hefur allri starfsemi undir
nafni Delta verið hætt og félagið tekið af
skrá hjá Kauphöll Islands. Pharmaco hf.
er hinsvegar skráð í Kauphöllinni.
Húsasmiðjan Kauphöllin afskráði
hlutabréf i Húsasmiðjunni hf. um
miðjan september eftir kaup Múla ehf.,
Vogabakka ehf. og Baugs á 70 pró-
sentum hlutabréfa í Húsasmiðjunni hf. í
kjölfar yfirtökutilboðs eignaðist Eignar-
haldsfélag Húsasmiðjunnar ehf. 94,01%
hlut í félaginu.
Skagstrendingur Eftir kaup á bréfum í
Skagstrendingi hf. á Eimskipafélags
íslands hf. 92,7 prósenta hlut og því hafa
bréfin verið afskráð. Eimskipafélagið er
skráð á markaði.
Talenta-Hátækni íslenski hug-
búnaðarsjóðurinn hf., Talenta-Hátækni
og Talenta-Internet hafa sameinast
undir nafni Islenska hugbúnaðar-
sjóðsins. Islenski hugbúnaðarsjóður-
inn hefur haldið skráningu sinni en
Talenta-Hátækni hefur verið afskráð af
vaxtarlista.
Útgerðarfélag Akureyringa hf. Hluta-
bréf Utgerðarfélags Akureyringa hf.
voru afskráð af aðallista eftir að yfir-
tökutilboði Eimskipafélags Islands upp
á 97,5 prósenta hlut hafði verið tekið.
Loðnuvinnslan hf. Loðnuvinnslan og
Hraðfrystihús Fáskrúðsljarðar ehf.
sameinuðust í sumar undir nafni Loðnu-
vinnslunnar en kennitölu Hraðfrysti-
hússins. Hraðfrystihúsið var ekki á
markaði en það var Loðnuvinnslan hins-
vegar og þvi kom til afskráningar þess.
Sameinað félag er ekki á markaði.
Keflavíkurverktakar hf. Hlutabréf Kefla-
víkurverktaka hf. voru afskráð af tilboðs-
markaði snemma á árinu þar sem eignar-
hlutur eins aðila, Eisch Holding SA sem
er í eigu Bjarna Pálssonar stjórnarfor-
manns, var kominn yfir 97 prósent. 33
VEBÐBRÉrAIVlflRKflÐUR AFSKRAN-
Afskráningar 2001
Kaupfélag Eyfirðinga
Samuinnuferðir-Landsýn
Uaxtarsjóðurinn
Héðinn
Skinnaiðnaður
Almenni hlutabréfasjóðurinn
Frjálsi fjárfestingarbankinn
Afskráningar 2000
Hans Petersen
Básafell
Fóðurblandan
Sjáuarótuegssjóður íslands
Samuinnusjóður íslands
Hlutabréfasjóður Norðurlands
Hlutabréfasjóðurinn íshaf
Fjárfestingarbanki atuinnulífsins
íslandsbanki
Krossanes
íslenskar sjáuarafurðir
Jökull
Félög með lítil uiðskipti
Austurbakki
Fiskiðjusamlag Húsauíkur
Fiskmarkaður íslands
Guðmundur Runólfsson
Hraðfrystistöð Þórshafnar
Plastprent
Sláturfélag Suðurlands
íslenska járnblendifélagið
Stáltak
Uaki-DNG
Þróunarfélagið
Frumherji
Ath. Þessi listi er byggður á upplýsingum
um fjölda viðskipta og veltu hjá Kauphöllinni.
Þessi listi er ekki tæmandi. Hugsanlegt er
að fleiri félög eigi heima á þessum lista.
57