Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 67
Gamli og nýi tíminn. Bensínskúrinn í Ananaustum, nýja þjónustustöðin jjœr.
þúsundum litra í skip við hafnarbakka sé hið sama og jarðýtu á
reginfjöllum. Við ákváðum að bijóta upp rikjandi ástand og
stuðla að lægra verði á olíu til fiskiskipa. Við vorum sannfærðir
um að rétt væri að bijóta upp ríkjandi kerfi og bjóða betri kjör,“
segir Einar Benediktsson.
Olís-menn vissu að þeir yrðu einnig að bjóða öðrum
útgerðum bætt kjör. Að öðrum kosti kynni útspil þeirra að enda
með ósköpum og hafa hatrömm átök í för með sér. Einar Bene-
diktsson tók því föggur sínar þegar landsmenn héldu jól hátíð-
leg árið 1994 og hélt á fund allra helstu útgerða í viðskiptum við
Olís. Hann ferðaðist vítt og breytt um landið í mislyndum vetrar-
veðrum, hitti útgerðarmenn að máli og bauð ný kjör í samræmi
við umfang viðskipta.
Olís fékk viðskiptin við Utgerðarfélag Akureyringa og Esso
svaraði með því að lækka listaverð á oliu til fiskiskipa. En Olís
hélt öllum sínum viðskiptum, enda kunnu útgerðarmenn að
meta frumkvæði Olís. Félagið fékk aukinn byr í seglin. Árið 1995
var hið söluhæsta í sögu Olíuverzlunar íslands fram til þess
tíma. Markaðshlutdeild félagsins jókst úr 28,2% árið 1994 í 30,2%
árið 1995. Félagið rauf 30% múrinn en slíkt hafði ekki átt sér stað
í áratugi. Hagnaður eftir skatta var 153 milljónir króna, sem var
besta afkoma félagsins um langt árabil.
Bensínstöðvar entíurnyjaðar Og nýir tímar héldu innreið sína í
viðskiptum á bensíni. Einar Benediktsson fór fyrir einu
umfangsmesta átaki í sögu Olíuverzlunar íslands. Endurnýjun
bensínstöðva félagsins. Það var vandasamt verkefni og miklar
umræður fóru fram innan félagsins. Olís hafði ásýnd fátæka
félagsins og starfsmenn höfðu mátt þola góðlátlegar glósur
félaga sinna hjá Esso og Shell: „Þessir skúrar ykkar hanga uppi
á grænni málningu einni saman.“
Framkvæmdastjórn OLIS. Frá vinstri: Helga Friðriksdóttir, Samúel Guð-
mundsson, Einar Benediktsson, Ragnheiður Bjórk Guðmundsdóttir,
ÓlafurBjarki Ragnarsson,Jón Olafur Halldórsson og Einar Marinósson.
En Olís hafði nokkuð sem Esso og Shell höfðu ekki. íslenskt
nafn! Félagið, sem kennt var við Blj hafði orðið að leggja niður
nafn og taka upp íslenskt vegna þorskastríðanna og ákvörðunar
íslenskra stjórnvalda árið 1953 að flytja inn olíu frá Sovétrikj-
unum í skiptum fyrir fisk. British Petroleum Company í Lund-
únum hafði selt hlut sinn í olíukreppunni upp úr 1970. Frá 1976
hafði Olís-merkið prýtt stöðvar félagsins. Það hafði reynst giftu-
samleg ákvörðun hjá Önundi Asgeirssyni og félögum.
I anda olíufélagsins, sem kennt er við Island og gekk götuna
fram eftir veg með íslenskri alþýðuhreyfingu, fékk gamli
bragginn nýtt hlutverk - skúrinn hvarf. Hafist var handa við þjón-
ustustöð við Sæbraut og hver stöðin á fætur annarri fékk nýtt
útlit. Áifheimar, Gullinbrú, Ánanaust, Háaleiti, Ilafnarfjörður og
Garðabær. Og átakið hefur færst út á land - Akureyri, Reykjanes-
bær, Selfoss og Borgarnes. Á næstunni verður lokið við lag-
færingar á landsbyggðinni.
ÓB - ódýrt bensín ÓB - ódýrt bensín var stofiiað sumarið 1996.
Stofnun ÓB krafðist mikils undirbúnings, enda algerlega ný
vídd í sölu á bensíni. Það kallaði á ný dælu- og kassakerfi, lóðir
og uppbyggingu. Það tók tíma. Fyrsta ÓB-stöðin var opnuð við
Fjarðarkaup í Hafnarfirði. Olís var fýrst olíufélaganna til þess að
bjóða viðskiptavinum sínum þijú þjónustustig í samræmi við
þróun erlendis. Fulla þjónustu og sjálfsafgreiðslu á hefbundnum
bensín- og þjónustustöðvum og loks mannlausar sjálfsaf-
greiðslustöðvar, ÓB - ódýrt bensín. „Samkeppni hefur aldrei
verið meiri í viðskiptum með bensín, þó oliufélögin þrjú sæti
stöðugri gagnrýni um hið gagnstæða. Fyrir nokkrum árum var
aðeins eitt verð og eitt þjónustustig í Reykjavík. Allra leiða er leit-
að til þess að koma til móts við óskir viðskiptavina og hagræða í
rekstri," segir Einar Benediktsson. ÓB-stöðvarnar hafa náð
Samverkamenn í Olís: Þorsteinn Már Baldvinsson varaformaður, Einar
Benediktsson forstjóri og Gísli Baldur Garðarsson stjórnarformaður á
aðalfundi 1997.
67