Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 23
Undanfarnar vikur hafa verið
einhver lífiegasti tími í
viðskiptalífinu sem um getur.
Segja má að sprett hafi verið
úr spori með þeim hætti að
hófadynur bergmáli um allan
fjármálaheiminn og að
stórsamningar hafi jafnvel
rykfallið samdægurs vegna
frétta af nýjum stórviðskiptum
- slíkur hefur jóreykurinn
verið á velli viðskipta.
HOFADYNUR BERGMALAR VIÐA
Samson kaupir 45,8% hlut r Landsbanka.
S-hÓpurínn kaupir 45,8% hlut í Búnaðarbanka.
Kaup Hesteyrar á 22,5% hlut í Keri var 9 stiga leikur. Þórólfur
Gíslason náði undir sig í leiðinni Keri, VÍS og Búnaðarbankanum og er
Þórólfur núna óumdeildur leiðtogi S-hópsins. Hann hefur velt Úlafi
Úlafssyni, forstjóra Samskipa, af valdastóli sem foringja S-hópsins.
Barátta Kaupþings um yfirtöku á Skeljungi. Kaupþing er stærsti
hluthafinn, með 23,4%, og reynir að kaupa 20,8% hlut Shell Petrole-
um í Skeljungi. Núverandi meirihluti í Skeljungi valdar hins vegar reiti í
þessari skák sinni við Kaupþing.
Gaumur er kominn með yfir 10% hlut í Flugleiðum.
Magnús Þorsteinsson, einn eigenda Samsons, kaupir helming-
inn í Atlanta.
Kaupþing með yfirtökutilboð á sænska bankanum JP Nordiska og
sækir um skráningu í Stokkhólmi.
Kaupþing eignast 44% í Meiði sem aftur á 18% í Kaupþingi.
Kaupþing selur Spron Frjálsa fjárfestingarbankann og nemur sölu-
hagnaðurinn 1,5 milljörðum.
Landsbankinn kaupir 55% r sp fjármögnun
Heklubræður selja Tryggva Jónssyni Heklu.
Kolbeinn Kristinsson í Myllunni-Brauði eignast Mylluna að fullu.
ÚA kaupir breskt útgerðarfyrirtæki sem er með vænan kvóta í
Barentshafi.
Eimskip kaupir HB á Akranesi og er orðið stærsta útgerðarfyrir-
tæki landsins í gegnum félög sín, ÚA, HB og Skagstrending.
Íslandssími kaupir Tal á 4,1 milljarð og Kenneth Peterson, eig-
andi Norðuráls, á núna 40% í Íslandssíma og er orðinn bæði ál- og
símakóngur.
Baugur kaupir yfir 15% hlut í bresku verslunarkeðjunni Big Food í
Bretlandi, en það á verslunarkeðjurnar lceland, Booker og Wooward.
Spurningin er núna: Hver á ísland?
Afl með Þorstein Uilhelmsson f fararbroddi selur r Þormóði
ramma - Sæbergi og Þorbirni-Fiskanesi fyrir yfir 4 milljarða króna eftir
æsilega baráttu við Róbert Guðfinnsson og Úlaf Marteinsson, forkólfa
Þormóðs ramma - Sæbergs.
Ualfells-fjölskyldan selur Steypustöðina eftir að hafa rekið hana í
55 ár.
Fálög í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Þorsteins Más Baldvins-
sonar og fleiri selja eignarhlut f Islandsbanka fyrir yfir 11 milljarða.
Baugur selur hlut sinn í Arcadia f Bretlandi á yfir 20 milljarða og fékk
í söluhagnað yfir 8 milljarða króna eftir skatta. B3
23