Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 89
Antinori fjölskyldan hóf vínframleiðslu árið 1384 og alls hafa 26 ættliðir
stjórnað fyrirtækinu. Piero Antinori markgreifi segir að hefðin og tæknin skipti
ekki höfuðmáli fyrir fjölskylduna heldur miklu frekar ástríðan og ástin á vín-
ekrunum, víngerðinni og vínunum sjálfum.
irnar eru ótrúlega margar. Afburðagóðir vínframleiðendur á
Ítalíu eru jú ekki margir en þeim fer fiölgandi. Vegna hinnar
ijölskrúðugu flóru ítalskra vína eru ítölsk vín svo sannarlega
spennandi. í engu vínframleiðslulandi heimsins er hægt að
„uppgötva“ eins mörg vín og á Italíu. I mörgum héruðum
Ítalíu eru notaðar heimaræktaðar vínþrúgur af óþekktum
uppruna sem hvergi er annars staðar að fmna í heiminum.
Skipulögð vínrækt hefur verið stunduð lengur á Italíu en í
nokkru öðru landi heimsins, eða í 4.000 ár. Eitt af einkennum
ítalskra vína er léttleiki þeirra, þó til séu öflug og kraftmikil
vín eins og Barolo og Barbareslo. Itölsku vínin eru því einkar
þægileg og góð með mat. Víngúrúinn Hugh Johnson hefur
sagt að ef vel á að vera þá þurfi maður helst að drekka
einfaldari ítölsk rauðvín eða borðvín á Italíu, gjarnan í hérað-
inu þar sem það er framleitt, og ugglaust er sannleikskorn í
þessum orðum Hugh Johnsons. Italskur matur er gífurlega
vinsæll um þessar mundir og gætir ítalskra áhrifa í matargerð
einnig í íslenskum veitingahúsum. En fæstir eiga þess kost
að fara ótt og títt til Italíu, þess vegna verðum við einfaldlega
að fara í Rikið og kaupa okkur flösku af ítölsku víni. Urvalið
af ítölskum vínum í Ríkinu mætti þó alveg vera meira.
Piero Antinori markgreifi Piero Antinori markgreifi kom
hingað til lands í sumar sem leið á vegum Íslensk-ítalska
verslunarráðsins. Enginn hefur haft eins mikil áhrif á þróun
ítalskrar vínframleiðslu seinustu ár og hann. Fjölskyldan hóf
vínframleiðslu árið 1384 og alls hafa 26 ættliðir stjórnað fyrir-
tækinu. Þrátt fyrir langa sögu Antinori ijölskyldunnar segir
greifinn að að hefðin skipti ekki miklu máli fyrir ijölskylduna og
ekki tæknin heldur. Það sem fyrst og fremst skiptir máli er
ástríðan og ástin á vínekrunum, víngerðinni og vínunum
sjálfum. Nauðsynlegt er að sofira ekki á verðinum og það hefur
aldrei verið eins nauðsynlegt og núna. Það má segja að það hafi
orðið bylting í ítalskri vínframleiðslu á undanförnum 25 árum
miðað við seinustu 300 árin þar á undan. Italir voru magnfram-
leiðendur á víni enda var vin matvæli. Fyrir 20 árum síðan
drakk hver Itali um 115 lítra af víni á ári og vínið var helsti orku-
gjafi bænda og verkafólks. Stór hluti þjóðarinnar býr nú í
borgum og bæjum og vinnur ekki erfiðisvinnu. Eins og annars
staðar í Evrópu eru Italir farnir að snæða dýrari og betri mat, vín-
neyslan hefur því dregist verulega saman. Italskir vínframleið-
endur urðu því að draga saman seglin og í staðinn fyrir að fram-
leiða magn urðu þeir að auka gæði framleiðslunnar, í stuttu máli
framleiða minna magn en betra vín og þar af leiðandi dýrara.
Breyta varð blöndun víns og tækninni, fara að nota nýjar þrúgu-
tegundir. Antinori markgreifi segir að líkja megi ítalska vininu
við mat. ítalskur matur er einfaldur en bragðgóður og hollur.
ítalskir vínframleiðendur eru á vissan hátt farnir að starfa á svip-
aðan hátt og tískuhönnuðirnir. Vínið á að vera persónulegt en þó
halda fyrri einkennum, en einnig verður það að falla vel að
kröfum samtímans. Þessi þróun undanfarinna 25 ára hefur svo
sannarlega skilað árangri og 30% ítalsks víns er nú gæðavín.
ítalskir vínframleiðendur hafa hafið framleiðslu víða um heim,
nefna mætti Argentínu, Chile og Bandaríkin í þvi sambandi.
Bland í poha Því miður er margt af því ítalska vini, sem er í
Ríkinu, hálfgert rusl. Vissulega er margt vín ágætt og sumt
alveg ljómandi. Vínáhugafólk verður því að fylgjast vel með og
þá einkum með víni sem er á sérlista eða í reynslusölu. Almennt
má segja að ítalskt rauðvín sé áhugaverðara en það hvíta. Nú er
þó að koma á markaðinn ferskt og ávaxtamikið hvítvín frá Italiu.
Þá henta nokkrar ítalskar rauðvínstegundir afar vel með villi-
bráð. í því sambandi mætti nefna vín frá Pietmont eins og
Barolo og Barbaresco og Veneto vínið sem pressað er úr þurrk-
uðum þrúgum, t.d. Masi Amarone og Bolla Amarone. S3
Sigmar B. Hauksson mæiir með eftirtöldum víntegundum frá
Ítalíu:
Hvítvín:
Masi modello Della Venezie á 1.180 krónur
Mezzacorona Trentino Pino Grigio á 1.310 krónur
Castello Banfi San Angelo Pinot Grigio á 1.780 krónur
Rauðvín:
Masi Modello Delle Venezie á 1.180 krónur
Mezzacorona Trentino Pinot Nero á 1.310 krónur
Bersano Barolo Nirvasco á 2.990 krónur
Fontanafredda Barbaresco á 2.230 krónur
Gaja Sito Moresco á 2.480 krónur
Bamfo Centini á 1.480 krónur
Castello Banfi Sumus á 4.370 krónur
Antiwori Chianti Classico Tenutte Marche á 2.410 krónur
Isole e Olena Chianti Classico á 1.850 krónur
Bolla Valpolicella La Poiane á 1.580 krónur
Masi Amarone á 2.650 krónur
A Mano Primitivo á 1.090 krónur
Paneta Santa Cecilla á 2.520 krónur
89