Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 86
Leonard er með mörg þekkt merki í
úrum og skartgripum og Sævar
segist vera ánægður með að geta
boðið sambærilegt eða lægra verð á
flestum vörum sínum miðað við það
sem gerist í öðrum löndum. „Við
reynum að kaupa sem mest beint
inn og sleppum þannig við kostnað
vegna milliliða,“ segir Sævar.
Hjónin Sævar Jónsson og Helga Daníelsdóttir, eigendur Leonard.
Mynd: Geir Ólafsson
Fegurð og gæði
Verslunina Leonard kaupir
kaupir talsvert inn af ítölskum
vörum, bæði skartgripum og
fylgihlutum og segist Sævar Jóns-
son, eigandi verslunarinnar, sífellt
færast meira í þá áttina. .Astæðan
fyrir því að ég fór að flytja inn
ítalskar vörur er kannski fyrst og
fremst sú að ég áttaði mig á því að
á sýningum voru það alltaf
ákveðnir básar sem ég stoppaði við
og þeir voru yfirleitt ítalskir. Hönn-
unin heillaði mig og það var auð-
sjáanlegt að hún stóð öðrum framar. Italir eru yfirleitt langt á
undan öðrum í tískunni og má ef til vill segja að þeir leiði hana,
þó svo aðrir komi gjarnan einu til tveim árum seinna með sína
útgáfu. Þetta á að vísu helst við um skartgripi og úr, því tískan
í fatnaði er mun fyrr á ferðinni og sneggri til. Við getum nefnt
sem dæmi demantskrossa sem nú eru að vísu ekki eins
vinsælir og í fyrra, en þeir voru komnir á Italíu löngu á undan
öðrum stöðum, þó svo krossar hafi alltaf verið vinsælir.“
úr og Skartgrípír Leonard er með mörg þekkt merki í úrum
og skartgripum og Sævar segist vera ánægður með að geta
boðið sambærilegt eða lægra verð á flestum vörum sínum
miðað við það sem gerist í öðrum löndum. „Við reynum að
kaupa sem mest beint inn og sleppum þannig við kostnað
vegna milliliða," segir Sævar. „Að sjálfsögðu látum við svo við-
skiptavini okkar njóta árangursins."
I viðbót við skartgripi og úr býður Leonard upp á ýmsa fylgi-
hlutí, m.a. hanska. „Við erum nýlega farnir að versla við fyrir-
tæki sem framleiðir fyrir tískuhúsin. Þetta eru gríðarlega vand-
aðir hanskar en ég hef gaman af því
að koma til þessa fyrirtækis því það
er frekar lítíð og eigandinn vélritar
enn alla reikninga! Hann sér enga
ástæðu til að breyta þeim háttum
sínum þó komið sé langt fram á
tölvuöld. Saumaskapurinn er hins
vegar frábær og þessir hanskar
bera þess merki að vönduð vinnu-
brögð eru í hávegum höfð.
ítalir sérstakir Sævar segist fara
oft tíl Italíu, að minnsta kostí 3-4
sinnum á ári. „Eg fer í verslunarferðir og á sýningar en mér
finnst líka gott að koma tíl Ítalíu í frí,“ segir hann. „Ég er farinn
að þekkja Mílanó nokkuð vel þó ég hafi lítið verið á Suður-
Italíu. Það sem mér finnst einna best við Ítalíu er maturinn og
mér finnst mikið gaman að fara út að borða á Ítalíu. En ekki á
hefðbundna túristastaði heldur finn ég mér góða matsölustaði
eftir leiðbeiningum íbúanna sjálfra. Uppáhaldsstaðurinn minn
er í lítílli þröngri götu sem erfitt er að finna, enda borða þar
nær eingöngu heimamenn og allt kvöldið er verið að hlaða í
mann mat. Italir eru mjög sérstakir og ég hef ánægju af því að
umgangast þá. Þeir geta reyndar verið bæði skemmtilegir og
leiðinlegir og eru frægir fyrir að svara bæði seint og illa en
stóru fyrirtækin sem hafa myndast síðustu áratugina hafa gert
það verkum að fólk kemst ekki eins upp með þessa þjóðar-
íþrótt Itala. Mér finnst líka afskaplega gaman að fara á skíði til
Italíu og geri það yfirleitt á hverju ári.“
Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á Ítalíu því landið
hefur upp á svo ljölmargt að bjóða, í útívist, mat og víni, hönnun,
náttúrufegurð og ekki síst smekkvísi heimamannna. 33
„Þegar minnst er á ítalska hönnun
kemur ósjálfrátt upp í hugann orö eins
og fegurð og gæbi,“ segir Sævar Jónsson,
sem rekur verslunina Leonard. Hann
kaupir talsvert inn afítölskum vörum,
hæöi skartgripum og fylgihlutum, og
segist sífellt færast meira i pá áttina.
Eftír Vigdísi Stefánsdóttur
86