Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 95
FYRIRTÆKIN Á NETINU
Forsíða Job.is. Vefurinn greinist í fernt; atvinnutorg, náms-
torg, framatorg og réttindatorg.
Á framatorginu má finna kynningu á ýmsum fyrir-
tœkjum.
Fjölsóttur atvinnuvefur
Meirihluti þeirra sem eru í atvinnuleit, eða velyfir 90 prósent, hafa skráð sig á atvinnutorgið hjá
Job.is. Þar eru um 10púsund einstaklingar sem vilja hafa augun opin fyrir„draumastarfinu“.
Skráningar eftir mismunandi störfum voru nefnilega tæplega 61.600 talsins í lok mánaðarins,
par afmá gera ráð fyrir að margir hafi skráð sig nokkrum sinnum.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Einn stærsti auglýsingamiðill landsins fyrir fyrirtæki og
ráðningastofur er tvímælalaust Job.is sem hefur verið
starfræktur í nokkur ár. Meirihluti þeirra sem eru í
atvinnuleit á Islandi í dag, eða yfir 90 prósent, hafa skráð sig á
atvinnutorgið hjá Job.is, eða um 10 þúsund einstaklingar í leit
að störfum, sem eru tæplega 67.000 skráningar. Þá eru um
3.800 einstaklingar atvinnulausir á íslandi um þessar mundir
og má búast við að stærsti hluti þeirra hafi farið inn á Job.is í
atvinnuleit.Vefurinn hefur verið í sókn á þessu ári eins og sjá
má á tölunum. Fyrir breytingar í byijun ársins voru skráning-
arnar aðeins 24.000 talsins. Þær hafa því heldur betur tekið
kipp auk þess sem vefurinn mælist sem einn ijölsóttasti vefur
landsins með 5.000 heimsóknum á viku. I hveijum mánuði
auglýsa um 50-60 fyrirtæki á vefnum.
„Greinilegt er að breytingarnar hafa náð tilgangi sínum. Við
höfum náð markmiði okkar með vefnum. Fólk getur nú séð
allar upplýsingar um störf og atvinnu á einum stað með ein-
földum og þægilegum hætti,“ segir Kolbeinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Job.is.
í fjórum hlutum Job.is er atvinnutorg í ijórum hlutum. Á
atvinnutorginu er hægt að leita að lausum störfum eða skrá sig
í Umbann sem sjálfvirkt sendir tölvupóst í hvert skipti sem
áhugavert starf er auglýst. Á framatorginu er að finna ýmsar
grundvallar upplýsingar um fyrirtæki, starfsmannastefnu
þeirra og framtíðarsýn. Á réttindatorginu er hægt að fá upplýs-
ingar um það hvernig á að sækja um starf, hvaða stéttarfélög
eru fyrir hendi og hvaða laun eru í boði. Á námstorginu er svo
að finna fræðslu um námskeið, endurmenntun og ráðstefnur.
Á þessu torgi er einnig boðið upp á að senda sjálfvirkan tölvu-
póst ef eitthvað áhugavert er auglýst.
Skilaði hagnaði Þegar fyrirtæki vill ráða starfsmann hefur
það um nokkrar leiðir að velja. Ein leið er sú að semja við
ráðningastofu um að auglýsa eftir og finna starfsmann. Gera
má ráð fyrir að kostnaður við slíka ráðningu geti numið allt
frá 60 þúsundum króna upp í eina milljón eftir því hvert
starfið er. Önnur leið er sú að skrá atvinnuauglýsingu á Job.is
og greiða 9.800 krónur fyrir birtingu í eina viku. En þó að
kostnaður við birtinguna sé ekki hár hefur vefurinn gengið
ágætlega. Kolbeinn segir að veltan hafi verið um 15-18 millj-
ónir króna á ári og fyrstu þrjú árin hafi vefurinn skilað
hagnaði. Staðan er hinsvegar erfiðari í ár. „Árið í ár hefur
verið erfiðasta árið hingað til en ég hugsa að það sleppi. Við
horfum björtum augum til framtíðar því að eftirspurnin á eftir
að aukast á næstunni," segir hann.
Það var Guðjón Guðmundsson, einn aðaleigandi Liðsauka,
sem stofnaði Job.is fyrir nokkrum árum. IMG óskaði eftir sam-
starfi við vefinn svo að nú er hann kominn undir einn hatt með
Mannafli, Liðsauka og er 1 samstarfi við PWC og Mannval. Eig-
endur Job.is eru Guðjón, IMG og Kolbeinn Pálsson fram-
kvæmdasþóri sem jafnframt er eini starfsmaður vefsins.
VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR ■ FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS
95