Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 80
10 ár á Islandi
Aárinu 2001 áttí MaxMara 50 ára afmæli
en þetta stóra fyrirtæki er fjölskyldu-
fyrirtæki enn í eigu stolnanda þess og
barna hans. MaxMara var stolnað árið 1951
af Achille Maramotti, sonarsyni Marinu
Rinaldi, sem var klæðskeri á 19. öld í Reggio
Emilia á Italiu. Italía stóð frammi fyrir sínu
mesta efnahagslega framfaraskeiði á 20. öld-
inni, svo segja má að Maramottí hafi verið
með fyrirtæki sitt á réttum stað á réttum
tíma. MaxMara hefur átt mikilli velgengni
að fagna og eru fyrirtæki fjölskyldunnar
orðin mörg, öll í kvenfatatískunni, og kallast
samsteypa þeirra MaxMara Fashion Group.
Systkinin þrjú, börn stofnandans, sjá nú um
daglegan rekstur fyrirtækjanna. Luigi Mara-
motti er yfirstjórnandi MaxMara og hinna
fyrirtækjanna, Igenazio Maramottí og Maria
Ludovica Maramottí hafa hvort sitt fyrirtæki
til stjórnunar. A vegum fyrirtækjanna eru nú
1.240 verslanir um allan heim og 3.600
starfsmenn. Innan MaxMara Fashion
Group eru mörg fyrirtæki. MaxMara er
móðurfyrirtækið og það elsta. Helstu önnur
fyrirtækin eru: Marina Rinaldi (sérhæfir sig
í tískufatnaði í stærri stærðum), Max & Co.
(sérhæfir sig í klassískum fatnaði fyrir
ungar konur), Marella og Pennyblack. Inn-
an fyrirtækjanna rúmast fatnaður á konur
við öll tækifæri en nú eru framleiddar 29
vörulinur af fyrirtækjasamsteypunni, fatn-
aður, skór, fylgihlutir, gleraugu og nú síðast
ilmvötn og sokkabuxur.
Fjölmargir frægir fatahönnuðir hafa
starfað með MaxMara í gegnum árin og
starfa enn. Má nefna Emmanuelle Kahn,
Karl Lagerfeld, Moschino, Luciano Soprani,
Guy Paulin, Narcisco Rodriquez og Dolce &
Cabbana. Það hefur hins vegar alla tíð verið
stefna fyrirtækisins að framleiða fatnaðinn
undir sínu eigin vörumerki. Samstarf
MaxMara við hönnuðina hefur verið byggt
á því að báðir aðilar hafi hag af. Eða eins og
Luigi Maramottí segir: „Við fáum hönnuði
tíl að vinna fyrir okkur því sköpunargáfa
þeirra nýtist okkur vel. Við lærum af
hönnuðunum og þeir læra af okkur og allir
græða.“ Frá upphafi hefur það verið höfuðá-
hersla MaxMara að fatnaðurinn sé sígildur,
hafi mikið notagildi og að gæðin séu mikil.
Stefnt er að því að konur geti notað flíkurnar
ár eftír ár, látið þær passa inn i það sem þær
eiga fyrir og það sem bætist við síðar. Þar
sem flíkurnar eru vandaðar að allri gerð og
úr fyrsta flokks efnum, hefur það tekist
mæta vel.
ÁSt á listaverkum í tilefni 50 ára afmælis
MaxMara var gefin út bók. I henni er fjöldi
greina og viðtala við forráðamenn fyrir-
tækisins sem birst hafa út um allan heim.
Bókin gefur góða mynd af framgangi fyrir-
tækisins og lífsviðhorfi og háttum flölskyld-
unnar. Maramottí fjölskyldan býr í gömlum
kastala í Reggio Emilia á Ítalíu. Kastalinn er
reyndar frá ýmsum tímum því elstí hlutinn
er frá 10. öld og sá nýjasti frá þeirri 18. Innan
hans er að finna gríðarlega stórt listasafn, en
myndlist er ein af ástríðum Luigi Maramottí
og reyndar tjölskyldunnar allrar.
,Á viðskiptaferðum mínum stelst ég
stundum í burtu - reyndar við hvert tækifæri
sem gefst - og skoða listasöfn, þó það sé
ekki nema í 20-30 minútur, það er mér nauð-
syn,“ segir framkvæmdastjórinn, Luigi
Maramottí, sem elskar fallega hluti. „Ég lit á
það sem nauðsyn að taka lífinu rólega og
njóta augnabliksins því það gefur manni færi
á að skynja dýptína í því sem fram fer í
kringum mann.“ SH
Uerslunin MaxMara, Hverfisgötu 6, hefur verið starfrækt á Islandi í 10 ár. Eigendur
eru tveir, Kristbjörg Dlafsdóttir og Þóra Emilía Ármannsdóttir.
Uerslunin er með allar fatalínur sem tilheyra MaxMara fyrirtækinu, þ.e. MaxMara,
MaxMara Basic, „S“ MaxMara, Sportmax, Ulfeekend, Pianoforte, skó og fylgihluti frá
MaxMara.
Frá Marina Rinaldi, sem er fatnaður í stærðunum frá 40 til 52, er uerslunin með MR-
Dayuuear, MR-Uoyage, MR-Basic, MR-Sport, MR-Eligante, skó og fylgihluti.
Nú fást einnig ilmuötnin frá MaxMara, Sportmax og Marina Rinaldi í uersluninni.