Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 90
Það er óneitanlega þægilegt fyrir fólk að þanta bara í rólegheitum
heima hjá sér og hafa möguleika á að sækja vöruna annaðhvort í
verslunina í Leijsstöð eða í vélinni þegar þangað er komið.
„Það er bæði hægt að panta í
gegnum síma og svo á vefsíðunni
okkar www.sagaboutique.is allt eftir
því sem hentar hverjum og einum.“
Saga Boutique
Saga Boutique er bœði í Leifsstöð og um borð í
vélum Flugleiða. Saga Boutique er tollfrjáls. Og
takið eftir að hægt er að panta fyrirfram úr
bæklingi Saga Boutique og fá vöruna afgreidda í
Leijsstöð eða í vélinni þegar pangað erkomið.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafcson.
Saga Boutique er sú deild innan Flugleiða sem sér um sölu
um borð í flugvélum og rekstur verslunarinnar Saga
Boutique í Leifsstöð. Vöruúrvalið á þessum tveim stöðum
er ekki hið sama, þannig er áhersla lögð á fatnað og skó í versl-
uninni en þar sem plássið er takmarkað í flugvélunum eru þar
smærri hlutir eins og snyrtivörur, belti, silki, skartgripir o.fl.
Þekktir hönnuðir „Mörg af þekktustu tískuhúsum heims láta
framleiða vörur sínar á Italíu þó svo merkið sé þeirra,“ segir
Ragnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður Saga Boutique. „Við
getum nefnt sem dæmi skyrtur og leðurvörur frá Boss, silki-
klútar frá Donnu Karan og Burberry og fatnað frá Cerrutti
sem bæði er úr ítölskum efnum og saumaður þar.
Af öðrum vel þekktum merkjum, sem Saga Boutique býður,
má nefna Mantero Seta, sem framleiða silkislæður og háls-
bindi fyrir öll stærstu helstu tískuhúsin. Við kaupum leður-
vörur frá I Santi og einnig verslum við við Janacke sem sér-
hæfir sig í gerð bursta og spegla.
Ragnhildur segir stóran hluta skartgripa verslunarinnar vera
af ítölskum uppruna svo og ýmsa fylgihluti. „Það er einfaldlega
þannig að það sem Italir framleiða er mjög fallegt og smekklegt,
enda eru þeir þekktir fyrir að skila ekki frá sér vöru nema hún
sé vel unnin og ítölsk hönnun er með afbrigðum falleg.“
Hæflt að panta fyrírfram Ragnhildur segir það fara vaxandi að
farþegar hafi vara á sér og pantí fyrirfram úr bæklingi Saga
Boutique. „Það er óneitanlega þægilegt fyrir fólk að panta bara í
rólegheitum heima hjá sér og hafa möguleika á að sækja vöruna
annaðhvort í verslunina í Leifsstöð eða í vélinni þegar þangað er
komið,“ segir Ragnhildur. „Með því tryggja farþegar einnig að
nákvæmlega sú vara sem óskað er eftír sé til, því við höfum
takmarkað magn af hverri vöru um borð. Það er bæði hægt að
panta í gegnum síma og svo á vefsíðunni okkar www.saga-
boutique.is allt eftir því sem hentar hvetjum og einum.“
Upplýsingar á Netinu Á vefsíðu verslunarinnar er mikið af
upplýsingum sem koma ferðalangi vel. Þar er hægt að
umreikna gjaldmiðla, leita eftir sérstökum vörumerkjum,
skoða sértilboðin og svo auðvitað panta. Þetta er til mikilla
þæginda fyrir farþega.
„Þeir sem panta svona selja kortanúmer sín til tryggingar en
greiða vöruna ekki fyrr en þeir sækja hana,“ segir Ragnhildur.
Breyttir tímar Ragnhildur hefur góða reynslu af því að versla
við Itali. Hún segir þá vinsamlega og elskulega og þó svo áður
fyrr hafi borið við að seint hafi verið afgreitt, þá sé það fyrir bí.
Allt standi eins og stafur á bók sem sagt sé og öll samskipti til
fyrirmyndar, hvort sem um er að ræða lítil eða stór fyrirtæki.
„Eg fer oft til Italíu og á orðið marga góða kunningja og vini
þar. Mér finnst alveg frábært að ferðast um þar og mæli með því
við hvern og einn sem hefur möguleika á því. Enda er landið
afskaplega flölbreytt og fallegt. Frábært að heimsækja það.“B!i
90