Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 51
reisn Balkanpharma, en að það væri ekki þarna til að mjólka
hvern blóðdropa úr fyrirtækinu og hlaupa svo í burtu. Koma
forseta íslands og viðræður hans við forseta Búlgaríu vakti auk
þess mikla athygli í Búlgaríu og var skari búlgarskra frétta-
manna í kringum heimsóknina og opnun verksmiðjunnar og
skilaði það sér í ríkulegri umijöllun í búlgörskum ijölmiðlum
þrjá daga í röð.
Vélin merkt i bak 09 fyrir Forseti íslands var langt í frá einn í
för til Búlgaríu. Um 180 Islendingar voru með honum í för á
vegum Pharmaco og var flogið út í Boeing 747 þotu frá Atlanta -
svonefndri júmbóþotu - og var eigandi Atlanta, Arngrímur
Jóhannsson, í ilugstjórasætinu. Það vakti athygli allra að merki
Pharmaco, Delta og Balkanpharma höfðu verið máluð á vélina.
I hópnum voru m.a. hluthafar í Pharmaco, stjórn félagsins,
margir lykilstarfsmenn, fréttamenn og síðast en ekki síst flöl-
margir starfsmenn flármálafyrirtækja og lifeyrissjóða. Til þeirra
kasta mun eflaust koma fari Pharmaco í hlutaijárútboð á næstu
árum vegna frekari fjárfestinga eða kaupa á öðrum lyfjafyrir-
tækjum, en það er boðuð stefria félagsins að halda áfram að vaxa
hratt. Á sama hátt og skilaboðin til búlgörsku þjóðarinnar með
komu forseta Islands við opnun verksmiðjunnar voru skýr, þá
voru skilaboðin ekki síðri með svo Jjölmennum hópi Islendinga:
Hér erum við, þetta erum við að gera, okkur er alvara! S9
RISI í KAUPHÖLL ÍSLANDS
Pharmaco var stofnað árið 1956 og byrjaði sem samstarf sjö
apótekara um innflutning á lyfjum. Þetta var í raun samstarf
litlu apótekanna á þeim tíma þegar allt var njörvað niður í
höftum og innflutningsheimildum. Núna, 46 árum síðar, er
Pharmaco allt annað fyrírtæki. Það er alþjóðleg samsteypa
með höfuðstöðvar á íslandi. Það er annað verðmætasta fyrir-
tækið í Kauphöll Islands, markaðsvirði þess er núna um 42
milljarðar. Samanlögð velta Pharmaco og Delta verður um 300
milljónir dollara á þessu ári, eða um 25 milljarðar króna. Stefnt
er að því að skrá Pharmaco í kauphöll erlendis. Ej
PHARMACO ÆTLAR AÐ VAXA HRATT
Pharmaco ætlar sér að vaxa hratt, eða um 15 til 20% á ári á
næstu árum. Það verður gert með tvennum hætti; innri
vexti núverandi starfsemi og kaupum og yfirtökum á erlend-
um fyrirtækjum. Róbert Wessmann, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Delta og nú annar tveggja forstjóra Pharmaco,
mun annast daglegan rekstur og er ætlað að sjá um að innri
vöxtur aukist um 15 til 20% á ári á meðan Sindri Sindrason,
framkvæmdastjóri Pharmaco sl. 21 ár, verður á „útkikkinu"
gagnvart ljárfestingum í erlendum fyrirtækjum. Sindri hefur
dvalið í Búlgaríu meira og minna frá haustinu 1999 og verið
forstjóri Balkanpharma frá því í október árið 2000.
51