Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 72
Við ákváðum að það væri
gaman að rifja upp fortíðina í
máli og myndum. Eitthvað
svipað hafði raunar verið gert í
Eystrasaltsríkjunum fyrir ekki
löngu en þó ekki eins. Upphaflega
var hugmyndin sú að taka öll árin
60 og tengja þannig í gegnum
hátíðir og uppákomur sem orðið
hafa, en fljótlega sáum við að það
væri miklu skemmtilegra að sýna
daglegt líf fólks í gegnum eigin
augu þess og með það lögðum við upp.
Þegar fyrirtækið varð 50 ára slógum við upp rokktónleikum
sem lengi voru í minnum hafðir en nú langaði okkur til að gera
eitthvað annað - öðruvísi," segir Guðjón Guðmundsson,
markaðsstjóri Vífilfells, um söguna á bak við auglýsingaher-
ferð fyrirtækisins á 60 ára afmæli Coca-Cola hérlendis.
Guðjón segir að hugmyndin hafi mótast smám saman og í
Auglýsing Vífilfells á 60 ára afinæli
Coca-Cola hér á landi er uppfull af
gömlum 8 mm filmum úr daglegu lífi
fólks. Þetta er skemmtileg hugmynd. En
hvernig fóru peir að pví að grafa upp
allar pessar gömlu kvikmyndir hjá fólki?
Eftir Vigdisi Stefánsdóttur Mvndir: Geir Ólafsson
samvinnu við auglýsingastofuna
Gott fólk var ákveðið að reyna að
finna gamlar kvikmyndir fólks þar
sem sæjust skemmtileg tilefni, eins
og barnaafmæli, fólk að eiga nota-
legar stundir og þess háttar.
Gekk ótrúlega vel að finna myndir
„Það gekk ótrúlega vel að finna
gömul myndbrot og fengum við
filmur víðs vegar að. Það kom td. í
ljós að starfsfólk hjá Vífilfelli, aug-
lýsingastofunni og Saga film, sem framleiddi auglýsinguna, átti
talsvert af gömlum 8 mm filmum. Áður en yfir lauk vorum við
komnir með margra klukkustunda langt myndefni og feikinóg
efni til að gera það sem okkur langaði til,“ segir Guðjón.
„Við höfum svo hug á því að taka þessar filmur allar og
vinna úr þeim heimildarmynd því það er heilmikil saga í þeim
og gaman fyrir seinni tíma kynslóðir að eiga og sjá þessar
72