Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 47
STJÓRNUN STflRFSMflTSVIÐTÖL
Símon hafði velt því mikið íyrir sér hvernig mætti endurskipuleggja deildina. í
starfsmatsviðtalinu bjnjaði ívan strax að gagnrýna og lýsa því iyrir Símoni hvað
hann mætti laga í sínu fari. „Nóg pláss íyrir úrbætur," segir hann. Ivan gefur
Símoni mínus B fýrir afköst en neitar svo að útskýra útreikninginn eða rökstyðja
einkunnagjöfina. Þegar Símon kveðst ekki samþykkja þetta túlkar Ivan það strax
sem svo að Simon geti ekki tekið gagnrýni og smám saman þróast samtal þeirra
þannig að Símon segist ekki hafa áhuga á stöðuhækkun og þeir byija að þrefa.
Starfsmatsviðtalið varð hvorki fugl né fiskur. Þegar Símon gerði tilraun til að
kynna hugmyndir sínar um endurskipulagningu á deildinni lokaði Ivan eyrunum,
gekk um gólf, fór að blístra og sýndi mjög greinilega að hann vildi ekki hlusta.
„Það eina, sem hægt er að ræða um við sjúkling, er það sem hægt er að lækna eða
bæta. Það er eins hjá okkur. Þú ræðir ekki persónu starfsmannsins. Þú ræðir
árangur, frammistöðu, staðreyndir. Þú hlustar, þú heldur ekki íyrirlestur. Þú ræðir
niðurstöður. Ef eitthvað hefur náð að batna skaltu ræða það,“ segir læknirinn við
Símon.
Lærdómurinn:
Ekki gagnrýna persónu starfsmannsins heldur verk hans. Hlustaðu og
fáðu starfsmanninn til að koma með tillögur til úrbóta.
Blindinginn Símon hafði unnið í almannatengslum hjá Parker og Gibbs og var
kallaður þar í starfsmatsviðtal. „Yfirmaðurinn var allt í lagi, hún hlustaði,“ segir
hann. „En hún hafði einn slæman galla.“ Wynona vildi nefnilega ekki horfast í
augu við hlutina og sagði aldrei neitt. Þetta kom berlega fram í viðtali hennar við
Símon. Símon hafði skrifað gagnrýna grein um mengunarvandamál innan
atvinnugreinarinnar og birt á vefsíðu fyrirtækisins. Þar talaði hann um „nauðgun
umhverfisins" og þótti taka full sterkt til orða. Wynona taldi óheppilegt að nafn
fyrirtækisins tengdist greininni og Wynona og Símon flækjast út í umræður um
verndun umhverfisins fyrir komandi kynslóðir. Wynona vill nefna greinina í
skýrslu til yfirstjórnarinnar en Símon er óhress með það og telur sig vera beittan
ritskoðun. Þau komast að þeirri niðurstöðu að greinin verði ekki nefnd í skýrsl-
unni. „Þau hefðu átt að boða mig í agaviðtal á þeim tíma,“ segir hann og telur að
Wynona sé „blindingi" því að hún hafi ekki viljað „horfast í augu við neitt. Lokaði
augunum, blessunin! Bauð upp á að á sig væri ráðist. Eg vissi að ég tefldi á tæp-
asta vað. Þau hefðu átt að sækja mig daginn eftir að ég sendi bréfið út,“ segir hann.
Lærdómurinn:
Aríðandi er að horfast í augu við hlutina og taka strax á þeim.
Ávinningur með starfsmatsviðtali
Sést hvar viðkomandi er staddur og hvert
hann þarf að komast.
Ráð fyrir starfsmatsviðtal
Ræddu málin reglulega. Vertu sýnilegur á
skrifstofunni þannig að starfsmenn hafi
aðgang að þér.
Gerðu þér far um að hlusta eftir vísbend-
ingum og sýna áhuga, fá starfsmennina til
að koma með tillögur að úrbótum.
Undirbúðu þig fyrir viðtalið, kynntu þér bak-
grunninn, lestu minnispunkta og ræddu við
fyrri yfirmenn viðkomandi starfsmanns.
Gefðu starfsmanninum færi á að undirbúa
sig.
Gagnrýndu staðreyndir, verk og hegðun -
það sem hægt er að breyta. Ekki persónu-
leika eða eðli fólks.
Ræddu málin opinskátt.
Ræddu árangur, frammistöðu, staðreyndir og
niðurstöður. Líka jákvæðu hlutina í starfi
viðkomandi.
Starfsmatsviðtalið varð hvorki fugl né fiskur. Þegar Símon
gerði tilraun til að kynna hugmyndir sínar um endurskipu-
lagningu á deildinni lokaði ívan eyrunum, gekk um gólf,
horfði út um gluggann, fór að blístra og sýndi mjög greinilega
að hann vildi ekki hlusta.
Símon hafði gagnrýnt atvinnugreinina á vefsíðu fyrirtækisins
og talað um „nauðgun umhverfisins". Wynona tekur þetta
upp í starfsmatsviðtali í stað þess að boða Símon í agaviðtal.
Símon telur að hún hafi ekki viljað horfast í augu við hlutina.
Myndir: Video Arts. Dreifingaraðili: Video og tölvulausn ehf.