Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 37
Tólf sjávarútvegsfyrirtæki hafa yfir að ráða
helmingi kvótans í landinu; Eimskip, Samherji,
Þorbjörn-Fiskanes, Grandi, Þormóður rammi-Sæ-
berg, Hraðfrystihúsið-Gunnvör, Vísir, Fiskiðjan Skagfirðingur,
Vinnslustöðin, Síldarvinnslan, ísfélag Vestmannaeyja og Skinney-
Þinganes. Sjávarútvegskóngarnir ráða stórum hluta þessa kvóta.
'SVJAR
prósent, ísfélags Vestmannaeyja, Burðaráss, Olís, Sjóvár-Al-
mennra, Skeljungs, sem líklega eiga um sjö prósent hvert, og
Landsbankans, sem á um 20 prósent.
Leiðir Róberts og Þorsteins hafa sem sagt skilið í sjávar-
útvegi hvað svo sem síðar kann að verða og er ekki gott að
segja hvaða stefnu Afl mun taka í framhaldinu eftir átökin sem
áttu sér stað milli þeirra um Þormóð ramma-Sæberg og
Þorbjörn-Fiskanes. Fjárfestingasjóðurinn Afl hefur það
markmið að bera sem hæsta ávöxtun fyrir eigendur sína á sem
skemmstum tíma og kemur því inn í fyrirtæki og fer út aftur
eftir því sem hentar. Þorsteinn hefur hægt um sig meðan hann
skoðar tækifærin á markaðnum, bæði innan sjávarútvegs og
utan, og margir hafa haft samband við hann án þess að það sé
neitt lengra komið. Afl hefur haldið óbreyttum eignarhlut
sínum í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, SH, og stoltí ísfirð-
inga, Hraðfrystíhúsinu-Gunnvöru, HG, sem aftur á stóran hlut
í Guðmundi Runólfssyni í Grundarfirði. Mikil óvissa er ríkjandi
um það hvaða skref Þorsteinn mun taka í framhaldinu en þó
mun Þorsteinn hafa lýst því einhvern tímann yfir að hann hafi
hug á að stækka HG svo að þar er kannski lykillinn.
Upprisa samvinnumanna S-hópurinn er flókin stærð sem
verður sífellt meira í kastljósinu. Þarna er á ferðinni upprisa
samvinnumanna, sem verður stöðugt öflugri með fyrirtækjum
á borð við Samvinnutryggingar, Samvinnulífeyrissjóðinn, VIS,
Vinnslustöðina, Samskip, Ker og fleiri undir sínum hattí. Þess
má þó geta að um það leyti sem Fijáls verslun fór í prentun
bárust þær fréttir að Olafur Olafsson, forstjóri Samskipa, væri
37