Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Side 19

Frjáls verslun - 01.09.2002, Side 19
Þessi mynd ertileinkuð Eignarhaldsfélaginu Hesteyri sem keypti 22,5% hlut í Keri (Olíufélaginu) en þau kaup urðu til þess að Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, velti Ólafi Ólafssyni, for- stjóra Samskipa, af stalli sem foringja S-hópsins. Ker, VÍS og Búnaðarbankinn í einni fléttu. Það verður að segjast eins og er að þetta er ein mesta leikflétta í íslenskum viðskiptum í áraraðir og verðskuldar Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, mikla athygli fyrir vikið. ÞÓRÓLFUR VELTIR ÓLAFIAF VALDASTÓLI Það hefur í raun lítið farið fyrir því að Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skag- firðinga, hafi velt Ólafi Ólafssyni, forstjóra Samskipa, af valdastóli sem foringja S-hópsins. Hann gerði það með afar óvæntri fléttu með kaupum Hesteyrar á 22,5% hlut í Keri í endaðan ágúst sl. Ólafur náði undirtökum í S-hópnum fyrir um einu ári með aðstoð Landsbankans og Kristjáns Loftssonar, stjórnarformanns Kers, og varð það til þess að Geir Magnússon, forstjóri Oliufélagsins, og Axel Gíslason, forstjóri VÍS, misstu völd sín sem framlínumenn hópsins og hætti Axel m.a. vegna þess sem forstjóri VÍS á dögunum. Flétta Ólafs í fyrra var geymd en ekki gleymd hjá mörgum samvinnumanninum af gamla skólanum. Miklir stirðleikar eru núna sagðir vera á milli Þórólfs og Ólafs, ekki síst eftir að Þórólfur bað um hluthafafund í Keri til að koma fulltrúa Hesteyrar að í stjórn Kers. Það breytir því ekki að Þórólfur er núna leiðtoginn og leiðir S-hópinn. Sýnist sem Ólafur hafi einangrast og að hann eigi ekki annarra kosta völ en að vera liðsmaður í áhöfn Þórólfs. Ólafur valdaði ekki reitinn Það kom mörgum á óvart að Ólafur Ólafsson skyldi ekki hafa valdað reitinn betur í skákinni, þ.e. 22,5% hlut íslandsbanka í Keri (áður hlutur Straums), því

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.