Frjáls verslun - 01.09.2002, Blaðsíða 20
FORSÍÐUEFNIHÓFADYNUR Á HLUTflBRÉFfl MflRKflDl
Þeir spunnu fléttuna...
Þórólfur Gíslason, kauþfélagsstjóri á Sauðár-
króki.
Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-
Þinganess.
Jón Eðvald Friðriksson, framkvœmdastjóri
Fiskiðjunnar Skagfirðings.
... og Þórólfur varð foringi S-hópsins
Arni Tómasson, banka-
stjóri Búnaðarbankans.
Hjörleijur Jakobsson, for-
stjóri Olíufélagsins ehf.
Finnur Ingóljsson, forstjóri
VÍS.
Ólafur Olajsson, forstjóri
Samskiþa og eigandi
Kjalars.
þessi leikur Þórólfs á þennan reit virðist hafa komið honum í
opna skjöldu. Eignarhaldsfélagið Hesteyri er í eigu Fiskiðj-
unnar Skagfirðings og Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði.
Fyrrnefnda félagið er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og er
Þórólfur stjórnarformaður Hesteyrar. Nýleg krafa Þórólfs um
hluthafafund í Keri, þar sem Hesteyri vill fá mann í stjórn Kers,
er eðlilegur leikur í skákinni hjá Þórólfi því þar með nær hann
formlega meirihluta í stjórn Kers og leiðir félagið, hvort sem
hann tekur strax við stjórnarformennskunni af Kristjáni Lofts-
syni eða ekki.
Atvikin höguðu því hins vegar þannig til að þegar Hesteyri
keypti hlutinn af Islandsbanka tók Þórólfur sjálfkrafa sæti í
stjórn Kers sem varamaður Þórðar Jóhannessonar, fram-
kvæmdastjóra Straums, sem sagði sig þar úr stjórn við sölu
íslandsbanka. Flestir spá því að Aðalsteinn Ingólfsson, for-
stjóri Skinneyjar-Þinganess á Hornafirði, verði fulltrúi Hest-
eyrar í stjórn Kers, annars myndu Skagfirðingar eignast tvo
fulltrúa ef Jón Eðvald Friðriksson, forstjóri Fiskiðjunnar
Skagfirðings, tæki sætið - og þá hallaði býsna mikið á Horn-
firðinga.
20