Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 24
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings.
FORSÍÐUEFNI HÓFADYNUR Á HLUTflBREFfl MflRKflÐI
ins um 118 milljarðar. En fyrir aðeins Jjórum árum, í árslok 1998,
var eigið fé Kaupþings 998 milljónir króna og stærð efnahags-
reikningsins 19,5 milljarðar króna. Þetta er ótrúlegur vöxtur.
18 milljarðar bundnir í hlutafé í áðumefndn útboðs- og
skráningarlýsingu kemur fram að Kaupþing eigi bæði í skráð-
um og óskráðum fyrirtækjum. Hinn 30. september sl. námu
heildareignir Kaupþings í skráðum fyrirtækjum alls 12,5 millj-
örðum króna og 5,5 milljörðum króna í óskráðum félögum.
Samtals eru þetta 18 milljarðar króna og finnst mörgum sem
þetta sé býsna há tala sett í samhengi við eigið fé Kaupþings.
Fram kemur að stærstu eignahlutirnir í skráðum fyrirtækjum
eru í Skeljungi (22,61%), Baugi (20,75%) og Össuri (4,92%).
Átökin um Skeljung Þess má geta að hluturinn í Skeljungi er
núna (7. nóv.) kominn í 23,4% og er Kaupþingsbanki þar stærsti
hluthafinn. Kaupþing hefur gert harða atlögu að yfirráðum í
PRÓFSTEINN KAUPÞINGS í STOKKHÓLMI
Eitt forvitnilegasta málið á markaðnum um þessar mundir er
fýrirhuguð skráning Kaupþingsbanka í Kauphöllinni í Stokk-
hólmi fýrir lok þessa mánaðar. Halda má því réttilega fram að
hún sé prófsteinn á skráningu annarra íslenskra fyrirtækja á er-
lendum hlutabréfamörkuðum á næstu árum - og hvaða áhuga
erlendir fjárfestar hafa á íslenskum stórfyrirtækjum. Kaup-
þingsbanki hefur gert yfirtökutilboð í sænska bankann JP Nor-
diska og geta hluthafar JP Nordiska gengið að tilboðinu fyrir
15. nóvember. Tilboðið er háð þeim skilyrðum að yfir 90% hlut-
hafa JP Nordiska gangi að tilboðinu en Kaupþing er þegar eig-
andi um 30% hlutafjár í sænska bankanum. Kaupþing greiðir
fyrir JP Nordiska með hlutafé í Kaupþingi og í boði eru 9,55%
hlutir í Kaupþingi fyrir hvern hlut í JP Nordiska. Heildarhlutur
eigenda JP Nordiska eftir samrunann verður 17,7%.
I nákvæmri útboðs- og skráningarlýsingu, sem Kaupþing
hefur unnið í samvinnu við Handelsbanken Securities í Sviþjóð
og sent frá sér, kemur fram að JP Nordiska er fimmta stærsta
fyrirtækið í kauphöllinni í Stokkhólmi mælt í viðskiptamagni,
með um 6,12% viðskipta, en stærsta fyrirtækið, Carnegie, er með
9,65% viðskiptanna. Hluthafar í JP Nordiska eru yfir 10 þúsund.
Kaupþing mun stækka um 56% þegar bæði eru reiknuð inn sam-
einingin rið Auðlind og JP Nordiska miðað við uppgjör um mitt
þetta ár og heildareignir fara úr 125 milljörðum króna í 194 millj-
arða króna í sameinuðu fyrirtæki.
Skeljungi síðustu vikurnar og meðal annars rætt við Shell
Petroleum í London sem er annar stærsti hluthafinn í Skeljungi
(18,2%) til að ná ráðandi hlut í félaginu. Núverandi meirihluti í
Skeljungi hefur tekið á móti í þessum átökum með mikilli
varnarvinnu. Þessi átök hafa hins vegar þýtt að gengi bréfa í
Skeljungi hafa hækkað. En eitt er víst að hlutur Shell Petroleum
í Lx)ndon er lykillinn að yfirráðum í félaginu. Fróðlegt verður að
sjá hvernig Kaupþing spilar úr sínum spilum „læsist það inni“
með sinn 23,4% hlut og þarf að selja hann aftur til að ná pening-
unum til baka, en virði hans er núna yfir 2,6 milljarðar króna.
Kaupþing er með 5,5 milljarða í óskráðum fyrirtækjum.
Helstu eignirnar þar eru í Fjárfestingarfélaginu Stoðum (40%),
Vífilfelli (25%), Karen Millen í Bretlandi (12,1%) og Bonus
Stores í Bandaríkjunum (35,7) og eru eignahlutirnir í þessum
fjórurn fyrirtækjum metnir á um 3,6 milljarða króna. Þá á Kaup-
þing 44% í Meiði ehf. en það á aftur 18,3% í Kaupþingi fyrir sam-
runann við JP Nordiska.
Eigið féð fer í 18 milljarða króna Áætluð samlegðaráhrif af
samruna Kaupþings og JP Nordiska er á bilinu 400 til 1 millj-
arður króna á ári og því er eftir nokkru að slægjast með sam-
runanum. Aður en að honum kemur mun Kaupþing sameinast
Auðlind. Þá munu JP Nordiska og sænska Jjármálafyrirtækið
Aregon verða formlega sameinað áður
en að samrunanum við Kaupþing
kemur. Eigið fé Kaupþings eftir sam-
runann við JP Nordiska verður 1,9
milljarðar sænskra króna eða um 18
milljarðar íslenskra króna.
Þess má geta að Kaupþing seldi
Frjálsa fjárfestingarbankann hinn 30.
september sl. til Spron og er áætlaður
söluhagnaður Kauþings af þeim
viðskiptum um 1,5 milljarðar króna.
Fasteign Frjálsa fjárfestingarbankans í
Sóltúni fylgir ekki með í kaupunum.
Þessi söluhagnaður bætir eiginfjárstöðu
Kaupþings áður en það rennur saman
við JP Nordiska. SH
Stækkað ört undir stjórn Sigurðar Kaup-
þing hefur stækkað mjög hratt undir for-
ystu Sigurður Einarssonar forstjóra og
má margfalda ýmsar stærðir með tíu frá
því hann tók við forstjórastarfinu af
Bjarna Armannssyni um mitt ár 1997.
Þessi öri vöxtur hefur orðið til þess að
margir hafa ítrekað spurt sig að því
hvort Kaupþing væri að taka of mikla
áhættu til þess eins að stækka. Þetta
hefur verið orðað svona: Er Kaupþing
eins sterkt og það er stórt? I lok síðasta
árs var eigið fé Kaupþings um 9,2 millj-
arðar króna og stærð efnahagsreiknings-
Helstu eigendur Kaupþings
eltir samrunann:
Meiður......................... 13,0%
Lansforsakringar í Svíþjóð... 5,5%
Sparisjóður Keflavíkur....... 4,1%
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7.... 3,4%
Lars Magnusson í Suíþjóð..... 3,4%
Sparisjóðabankinn .............. 2,9%
NBI Holdings Ltd................ 2,7%
Sparisjóður Færeyja............ 2,2%,
Lífeyrissjóður sjómanna...... 2,2%
Aðrir.......................... 80,6%
24