Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 26

Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 26
egar Rudolph W. Giuliani, sem heimamenn kalla Rudy, tók við embætti borgarstjóra New York 1993 var borgin niðurnídd og þjökuð af glæpum. Fyrrum glæsitorgið og miðdepill borgarinnar, Times Square, var gott dæmi um hnignunina. Nú þegar hann er hættur er torgið orðið nógu fínt til að það sé aftur orðið eftir- sótt heimiUsfang íyrir fyrirtæki sem vilja láta að sér kveða - eins og nýja ráð- gjafafyrirtækið Giuliani Partners. A nýjum vettvangi tekur Giuliani nú að sér ráðgjafaverkefni á sviði stjórnunar, hefur meðal annars veitt ráð um hvernig megi draga úr glæpum í glæpahijáðum stórborgum. I bókinni „Leadership" íjaHar Rudy GuiHani um það sem hann hefiir lært um stjórnun á starfsferíi sínum sem lögfræðingur, saksóknari og borgarstjóri og fléttar lærdóminn saman við svipmyndir úr lífi sínu. Meginstoðin í stjórnspeki GiuHanis er að ráða gott fólk. Þegar hann flutti úr borgarstjórnarskrifstofunum tók hann með sér megnið af nánustu samstarfs- mönnum sínum yfir í GiuHani Partners, svo hann er greinilega ekki alslæmur stjórnandi. úr ítalskri verkamannafjölskyldu GiuHani er ameríski draumur- inn holdi klæddur, fæddur 1944 inn i ítalska verkamannaijöl- skyldu og bjó umkringdur frændum og frænkum, þar á meðal slökkviliðsmönnum og löggum. Það er oft sagt um þá sem Sigrún Davíðsdóttir fiallar hér um nýja bók Rudolphs Giulianis, fyrr- verandi borgarstjóra New York, um stjórnun, en hann stjórnar meö heila og hjartanu. Meginstoóin í stjórn- speki Giulianis er aó ráða gott fólk. Effir Sigrúnu Davíðsdóttur 26

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.