Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 33
stjórnarmaður í ijölmörgum fyrirtækjum,
m.a. í hátækniiðnaði og hugbúnaði, og verið
óhræddur við að taka áhættu. Fyrsta fjárfest-
ingin var árið 1985 þegar hann var viðskipta-
maður í Verzlunarbankanum og honum gafst
kostur á að eignast hlut. Árið 1989 voru Flug-
leiðir að byggja upp nýjan flugflota og styrkja
stöðu Keflavíkurflugvallar sem miðstöðvar.
Takmarkaður áhugi var á bréfum í félaginu en
Birni leist vel á uppbyggingarstarfið og keypti
hluti í félaginu allt fram á haustið 1990. Með Jjár-
festingum sínum hefur Björn efnast vel þó að
auðvitað hafi gengið á ýmsu með árunum. Víðir
Finnbogason stórkaupmaður segir að Björn geri
sér fulla grein iyrir því að sem íjárfestir þurfi
hann að geta tekið tapi af skynsemi og það hafi
hann lika gert. Björn hefur komið að ýmsu lyrir-
tækjum gegnum tíðina, m.a. ÚA, KEA og síðar
Kaldbaki, Geosyn Holding SA í Lúxemborg,
Skagstrendingi og hátækniiyrirtækjum á borð við
Softis, Flögu, Marel, Degasoft og Biostratum.
Hann hefur setið í stjórn margra fyrirtækja, til að
mynda í sljórn útgáfuiyrirtækisins Framtíðarsýnar
1992-1994, Fjarhönnunar hf. 1993-1995, Softis hf.
1994-2000 og Flögu hf. 1996-2000, KEA 1998-2000
og í aðalstjórn og síðan varastjórn ijárfestingafé-
lagsins Kaldbaks frá 2001. Hann er í dag stjórnar-
formaður íslenskra fjárfesta ehf. Björn hefur verið í
Oddfellow-stúku frá 1997 og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum.
Persóna Björn Rúriksson er ævintýramaður, afskaplega orku-
mikill og hugmyndaríkur athafnamaður sem fær mikið af nýjum
hugmyndum og kemur þeim í framlívæmd. Vinir hans lýsa
honum sem mjúkum manni, góðgjörnum, ljúfum, brosmildum
og trúuðum, manni sem hefur sterka trú á sjálfum sér. Karl
Jeppesen, lektor við Kennaraháskóla Islands, segirhann „góðan
mann, afskaplega viðkvæma persónu sem er nærgætin í
nærveru sálar“. Páll Halldórsson flugstjóri segir að Björn sé
„margslungin blanda, opinn og skemmtilegur persónuleiki,
heiðarlegur og óhemju bjartsýnn, áræðinn og stórhuga. Hann er
mjög næmur og trúaður á hið góða, að það sigri í heiminum.
Hann á það tíl að vera utan við sig og er þá á fullu í öðrum heimi.
Ég hef upplifað það að vera með honum á einhveijum stað en
finna að hann er með hugann einhvers staðar allt annars staðar.
Það er mjög sérstakt. Hann er kannski dálítill draumóramaður,
hann getur dottið út og gleymt sér og þá er hugurinn floginn eitt-
hvað annað,“ segir Páll.
Björn er ræðinn maður og góður sögumaður, maður sem á
auðvelt með mannleg samskipti og hefur góða nærveru. Hann
er opinn og einlægur og ræðir fyrst og fremst um þjóðmál og
áhugamál sín. Aldrei er nein lognmolla í kringum hann. Ef
eitthvað er gert á hans hlut eða honum misiíkar eitthvað þá
lætur hann strax vita en hann brýtur aldrei brýr að baki sér.
Hann halknælir aldrei neinum og á auðvelt með að íyrirgefa.
Björn er sagður séður peningamaður og hefur efnast á vel
heppnuðum flárfestíngum sínum þó að hann hafi lent í mótlæti
síðustu árin í takt við þróunina hjá hugbúnaðar- og hátækniJyrir-
tækjum. Hann berst ekki mikið á. Viðskiptafélagar hans segja að
hann hafi almannahag að leiðarljósi og vilji láta gott af sér leiða.
Hann hafi heildarsýn og hugsar til Jramtíðar.
NÆRMYND BJÖRN RURIKSSON
Björn metur tímann mikils, telur
hann dýrmætan og viU nýta hann til
góðra verka og þvi er hann jafn
upptekinn og raun ber vitni. Hann
þykir frjór í hugsun, áhugasamur
og fylginn sér í Jjárfestingum, fær
gífurlegan áhuga á einstökum
verkefnum og sinnir þeim þá
mjög vel. Hann hefur sýnt mikla
þrautseigju og fylgt málum eftir
gegnum þykkt og þunnt. Hann er
óragur við að koma snemma að
verkefnum.
Björn hefur verið harður og
duglegur við sjálfan sig og hrist
af sér það likamlega slen og
sjúkleika sem hrelldi hann í
æsku og fram á síðustu ár.
Hann og þeir sem eru í
kringum hann telja að hann
hafi læknað sig sjálfur með
sjávarsundi sínu. Sjálfur telur
hann sig hafa byggt upp
heilsu og þrótt.
Gallar Birni Rúrikssyni er
lýst sem vinnuþjarki með
mörg járn í eldinum, svoDtið sveiflukenndum i skapi, - manni
sem afitaf er uppteldnn. Haraldur bróðir hans segist ekki geta
séð hann fýrir sér sem 9-5 starfsmann. Hann hefur hátt frum-
kvöðulsins, kemur inn í Jyrirtæki og vinnur vel að uppbygging-
unni, fer svo út og snýr sér að öðrum verkefnum þegar fyrir-
tækið er komið vel á skrið og aðrir geta tekið við. Björn er alltaf
á síðustu stundu. Hann á það til að bóka sig aUtof þétt svo að
hann verður gjarnan óstundvis á fundi. Björn er mikiU fjöl-
skyldumaður en hið mikla vinnuálag kemur niður á Jjölskyldu
og vinum. Haraldur bróðir hans segir að Björn hafi oft talað um
að hann vilji svo gjarnan sinna fólkinu sínu betur en hann geti
það bara ekki. Hann riJjar upp að hann hafi tekið sig til og farið
með Björn í sumarbústað fyrir nokkrum árum þegar vinnu-
álagið hafi keyrt úr hófi. Þar hafi þeir veitt saman bræðurnir og
Björn hafi verið „mjög ánægður með þetta,“ segir Haraldur.
Áhugamál Björn Rúriksson hefur nýtt sér áhugamál sín í
atvinnuskyni. Hann er mikill flugáhugamaður og á 2ja hreyfla
Cessnu og hlut í þyrlu með öðrum. Flugáhuginn byrjaði hjá
honum sem strák þegar hann kynntist Þorsteini Jónssyni
flugkappa og syni hans og fór með þeim út á Reykjavíkurflug-
völl um níu ára aldur. Hann hefur tekið ljósmjmdir í áratugi en
lagt myndavélina nánast á hilluna í dag. Hann hefur stundað
sjósund til fimm ára og trúir því að það hafi haft mjög góð áhrif
á heilsufar sitt. Páll Halldórsson segir sögu frá því þegar hann
uppgötvaði sjósund Björns. Hann hafi þá flogið vestur í Djúpa-
flörð í sumarbústað til dóttur sinnar, hringsólað yfir firðinum til
að láta vita af sér og þá hafi hann séð einhveija þúst syndandi í
miðjum firðinum. Síðan hafi komið í ljós að þarna hafi Björn
verið á ferð. Björn hefur stundað veiðar á silugi og sjóbirtingi í
ám og vötnum í einhveijum mæli. Hann er útivistarmaður og
hefur farið með fjölskyldunni í göngur og ferðalög og fylgist
með strákunum sínum í fótbolta. SD
m Rúriksson er fæddur í Reyfciaw'fe
. „ ioro Foreldrar hans eruR
ember 1950. Sœbiörnsdottir,
33