Frjáls verslun - 01.09.2002, Side 36
FRÉTTASKÝRING SJflVflRÚTVEGURINN
Hröð atburðarás og óvæntar fregnir hafa einkennt
sjávarútveginn að undanfórnu en sameining
sjávarútvegsfyrirtækja hefur verið að eiga sérstað á
mun skemmri tíma en búist var við. Atburðarásin
er komin í gang, milljarðar hafa skipt um hendur
og eigendurfyrirtækja eru önnum kafnir við að
reyna að skapa sér samningsstöðu. Mikil óvissa er
ríkjandi um framhaldið en pó þykir Ijóst að
fyrirtækjum mun fækka enn frekar.
Effir Guðrúnu Helgu SigurðardóUur Myndin Geir Ólafsson
Blokkamyndun hefur verið ráðandi í umræðunni um sjáv-
arútvegsfyrirtækin að undanförnu enda hafa atburðir
síðustu vikna og mánaða frekar ýtt undir þá umræðu en
hitt. Rúmlega tiu útgerðarfyrirtæki hafa yfir 50 prósent kvót-
ans að ráða og telja menn sig geta nú þegar greint þrjár til íjór-
ar blokkir; Samheija, Eimskip, S-hópinn svokallaða og Þor-
móð ramma-Sæberg og tengd fyrirtæki. Málið er þó örlítið
flóknara en svo enda tengjast útgerðirnar mikið innbyrðis. Því
hefur verið spáð um langt skeið að blokkirnar verði ijórar til
sex og að þar komi til viðbótar inn Grandi og hugsanlega Jjár-
festingafélagið Afl, sem er í eigu Landsbankans og Þorsteins
Vilhelmssonar skipstjóra, auk ijölmargra smærri útgerða víða
um land sem eiga góða lífsmöguleika, að minnsta kosti enn
um sinn þó að líklega renni þær smám saman saman við
stærri fyrirtæki. Þarna má nefna sem dæmi Stálskip í Hafnar-
firði, Ögurvík í Reykjavík, ijölskyldufyrirtækið Vísi í Grinda-
vík, Sigurð Agústsson í Stykkishólmi, smærri útgerðir í Vest-
mannaeyjum og ótal fleiri. Það er þó rétt að hafa í huga að allt
getur gerst, ekki síst það sem ólíklegt þykir, það sýnir reynsl-
an síðustu vikur t.d. með samruna HB við Eimskip í stað
Granda eins og flestir áttu von á.
Úvissa er ríkjandi Þróunin
hefur verið hröð og margt hefur
komið á óvart. Margir héldu að Þor-
steinn Vilhelmsson, stjórnarfor-
maður ijárfestingafélagsins
Afls, væri að byggja upp
eina helstu blokkina í
íslenskum sjávarút-
vegi, en gjörbreyt-
ing hefur orðið
þar á, í bili að
minnsta kosti, og
óvíst hvaða stefnu
Þorsteinn og félagar
hans í Afli taka. Eftir átök
undanfarinna vikna um stefnu og sam-
einingar í sjávarútvegi, hraðann almennt
í slíkum málum og yfirráð í Þormóði
ramma-Sæbergi og Þorbirni-Fiskanesi
verður ekki betur séð en að Þorsteinn
hafi lotið í lægra haldi með kaupum
nýstofnaðs félags, Ráeyrar ehf., á 46
prósenta hlut í Þormóði ramma-Sæbergi, níu prósentum í
Þorbirni-Fiskanesi og 6,1 prósenta hlut í óskráðu fyrirtæki,
Scandsea International AB, fyrir tæplega ijóra milljarða króna.
Rétt er að rekja atburðarásina í grófum dráttum. í september
keypti Afl hlut Granda í Þormóði ramma-Sæbergi. Við það kom
upp tortryggni milli vinanna Þorsteins, sem enn mun vera sár
eftir átökin í Samheija fyrr á árum, og Róberts Guðfinnssonar,
stjórnarformanns Þormóðs ramma-Sæbergs. Fyrir fáum
vikum síðan skiptu svo 2,5 prósent um hendur og mun
Þorsteinn þá hafa talið að Róbert og félagar ætluðu að ná yfir-
ráðum í félaginu, samkvæmt heimildum Fijálsrar verslunar.
Formlega séð er hinsvegar talað um átök milli fjárfestinga-
sjóðs, sem fer inn og út úr fyrirtækjum til að hámarka arðsemi
sína, og einstaklinga sem vilja byggja upp langtíma ijárfest-
ingu. Ráeyri er í eigu Þormóðs ramma-Sæbergs, sem á tæp 50
36